„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Nýjar ljósmyndir af kindunum á Höfða: „Þessir vesalingar eiga sér engan málsvara“

Nýjar ljósmyndir af kindunum á Höfða: „Þessir vesalingar eiga sér engan málsvara“
Hægt er að telja rif­beinin á þess­ari kind. Mynd: Steinunn Árnadóttir

Steinunn Árna­dóttir, org­anisti og dýra­vernd­ar­sinni fór nýlega aftur að bænum Höfða í Borg­ar­firði og skoð­aði aðstæður „ágangs­fés“ sem hafa komið sér fyrir í Norð­ur­ár­dal. Segir hún að þeir „ves­al­ingar“ minni hana á „flótta­menn að leita að betra lífi“.

Í nýrri færslu sem Steinunn kallar „Fram­halds­sagan um Hryll­ing­inn á höfða“ fer hún yfir málið sem skekið hefur sveitir Borg­ar­fjarðar frá því að hún hóf máls á þessu í vor. Fjöldi kinda frá bænum Höfða í Þver­ár­hlíð, hafa gengið um sveit­ina, oft illa til reika og með nokk­urra ára gamla ull á sér. Þá hafa kindur borið undir berum himni á meðan svangir hrafnar og refir hafa sólað í kring. „Þetta eru kind­urnar sem búfjár­eft­ir­lits­maður Borg­ar­byggðar segir að ,,séu í besta móti þetta árið“. Hvernig er þá slæmt ár?“ spyr Steinunn og heldur áfram: „Hver ber ábyrgð á að á einum bæ eru yfir 1300 kindur sem hafa ekki notið skjóls eða umhirðu. Allar reglur um umhirðu og vel­ferð dýra eru brotnar, marg­brotnar. Allt undir sér­stöku, vök­ulu eft­ir­liti Mat­væla­stofn­unar.“

Illa farið með gott fé.

Í nið­ur­lagi færsl­unnar er Steinunn afar harð­orð gagn­vart Mat­væla­stofun:

„Um er að ræða yfir 1300 full­orðnar kindur í eigu van­hæfum ein­stak­lingum til skepnu­halds.
Um er að ræða van­hæft eft­ir­lit Mat­væla­stofn­unar.
Um er að ræða að árum saman hefur sveit­ar­fé­lagið litið undan.
Um er að ræða að þetta er skömm á búfjár­haldi á land­inu öllu og setur svartan blett á   sauð­fjár­rækt!“

Kind frá Höfða

Steinunn hefur ítrekað reynt að fá svör frá Svandísi Svav­ars­dóttur mat­væla­ráð­herra en engin svör fengið enn.

Færsluna má lesa hér í heild sinni:

„Fram­halds­sagan um Hryll­ing­inn á höfða:

Eftir að Borg­ar­byggð aug­lýsti að búið væri að virkja 6.gr fjall­skila­sam­þykktar nr. 683/2015 í fjall­skila­um­dæmi Þver­ár­þings https://www.borgarbyggd.is/…/borgarbyggd-auglysir-eftir…

fór ég og skoð­aði aðstæður.

Sunnan megin í Norð­ur­ár­dal hafa kindur úr Þver­ár­hlíð­inni komið sér fyrir. Þær eru kall­aðar því nafni ágangsfé. Ég varð reyndar mjög hugsi yfir þessu orði: Ágangsfé. Eins og ég sé þessa ves­al­inga minna þeir á flótta­menn að leita að betra lífi. Reyna að lifa af!Allar þessar kindur eða öllu heldur allt þetta ágangsfé, er undir eft­ir­liti Mat­væla­stofn­unar. Það fer ekk­ert á milli mála hvaðan þessar kindur koma. Þetta eru kind­urnar sem búfjár­eft­ir­lits­maður Borg­ar­byggðar segir að ,,séu í besta móti þetta árið“. Hvernig er þá slæmt ár?Hver ber ábyrgð á að á einum bæ eru yfir 1300 kindur sem hafa ekki notið skjóls eða umhirðu. Allar reglur um umhirðu og vel­ferð dýra eru brotnar, marg­brotnar. Allt undir sér­stöku, vök­ulu eft­ir­liti Mat­væla­stofn­unar.Sveit­ar­stjórn Borg­ar­byggðar firrir sig ábyrgð þrátt fyrir yfir­lýs­ingu þeirra af sveit­ar­stjórn­ar­fundi 12. maí sl. : ,,Eigi að síðar ber­ast ítrekað erindi til sveit­ar­fé­lags­ins þess efnis að sauðfé af ein­staka bæ njóti ekki nauð­syn­legrar umhirðu og eft­ir­lits umráða­manna og að ekki hafi verið brugð­ist nægj­an­lega við ábend­ingum um slíkt af Mat­væla­stofnun, jafn­vel svo árum skipti. Það er að mati sveit­ar­stjórnar Borg­ar­byggðar ólíð­andi“ …Já það er ólíð­andi, en leysa á vand­ann með að beita sér­stökum ákvæðum um smölun í fjall­skila­um­dæmi Þver­ár­þings (sjá slóð hér að ofan).Að mínu mati er ekki hægt að tala um ágangsfé þegar um ræðir kindur úr fram­halds­sögu minni: Hryll­ingnum á höfða.Um er að ræða yfir 1300 full­orðnar kindur í eigu van­hæfum ein­stak­lingum til skepnu­halds.Um er að ræða van­hæft eft­ir­lit Mat­væla­stofn­unar.Um er að ræða að árum saman hefur sveit­ar­fé­lagið litið undan.Um er að ræða að þetta er skömm á búfjár­haldi á land­inu öllu og setur svartan blett á sauð­fjár­rækt!Með að aðhaf­ast ekk­ert er verið að sam­þykkja aðstæð­unar.Þessir ves­al­ingar eiga sér engan málsvara?

Svandís Svav­ars­dóttir

þetta heyrir víst undir þitt emb­ætti.

Ef ein­hver frétta­stofa vill birta mynd­irnar er það vel­komið í þágu sauð­kind­ar­innar sem á betra skilið“

Illa farin kind
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins