„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Hvað ætlar þú að gera í sumarfríinu?

Hvað ætlar þú að gera í sumarfríinu?
Mynd/Envato Elements

Vin­sælasta spurn­ingin þegar hinir svoköll­uðu sum­ar­frís­mán­uðir nálg­ast er án efa hvað eigi að gera í sum­ar­frí­inu. Henni fylgir ákveðin pressa og felur í sér aðrar und­ir­liggj­andi spurn­ingar: Hvað ætlar þú að gera sem er skemmti­legt, upp­á­tækja­samt, öðru­vísi og spenn­andi? Í henni felst einnig full­yrð­ingin um að áunnið orlofið verði leyst út á sum­ar­mán­uð­unum. Jafn­framt er óskrifuð regla að bannað sé að svara ein­hverju leið­in­legu.

Ég er ekki sum­ar­frí­stýpan og þar af leið­andi þreytir spurn­ingin mig. Iðulega svara ég „leið­in­lega“ og veld við­mæl­anda ákveðnum von­brigðum. Sko nei, ég ætla ekki að gera neitt … sem þykir frá­sagn­ar­vert né heldur er ég þess vís á að leysa út orlofið mitt í þær vikur sem kall­ast sumar á Íslandi.

Hugs­an­lega hefur mér mislukk­að­ist að læra að taka sum­ar­frí. Yfir skóla­árin voru sumrin alla jafna ver­tíð. Tíminn var nýttur til að safna í forða og frek­ari fjár­ráða fyrir vet­ur­inn. Eftir skól­ann mistókst mér vilj­andi eða óvilj­andi að eign­ast börn, svo ég er og hef aldrei verið háð skóla­fr­íum barna eða leik­skóla­lok­unum. Þar af leið­andi hef ég ætíð mátt sæta rest með frí í júlí, og annað hvort þurft að leysa fríið mitt út fyrr eða seinna. Þrátt fyrir allt er sum­arið upp­á­halds­tím­inn minn.

Margt er líkt með lifn­að­ar­háttum Íslend­inga og bjarna; á sumrin vökum við – á vet­urna liggjum við í híði. Búsetan á norð­ur­hveli er æði strembin; dimmir vetr­ar­mán­uð­irnir og kuld­inn gera það að verkum að úti­vera er síður eft­ir­sókn­ar­verð og allt verður tor­veld­ara. Dagurinn er svo stuttur að varla tekur því að fara á fætur. Mér dytti því seint í hug að ferð­ast til útlanda á besta tíma árs­ins. Satt best að segja finnst mér hug­myndin glapræði, þrátt fyrir rign­ing­una og rokið á suð­vest­ur­horn­inu. Að fara til útlanda „bara af því bara“ finnst mér ruglað bruðl. Sér­stak­lega í ljósi þess að landið okkar er á heims­mæli­kvarða og nátt­úruperlurnar margar. Ef sól­ar­þyrstir eru við að skrælna má alltaf sækja sól­ina á Norður- eða Aust­ur­landið og hit­ann sömu­leiðis.

Á meðan sam­fé­lags­miðla­færslur frá vinum sýna mér strand­lengjur og fjar­læg höf þá er öfund mín lítil sem engin. Mér finnst fátt betra en að setj­ast út í garð og horfa á sum­ar­blómin og ógróð­ur­inn vaxa. Ég kýs að nota árs­tím­ann til að hanga lengur úti með hund­inum á kvöldin, njóta bjartra nátta og mið­næt­ur­sól­ar­innar. Hafið þið ein­hvern tíma tekið eftir því að alltaf í kringum mið­nætti kemur blanka­logn – eins og vind­ur­inn sé lagstur til hvílu eftir langan dag?

Á meðan sund­lauga­garð­ur­inn á Tenerife lokar um klukkan átta eru flestar laugar lands­ins opnar til klukkan tíu. Ég elska að eiga auð­veld­ara með að vakna til vinnu og þurfa ekki að skafa eða hanga í umferða­teppu. Ég elska að stökkva niður í bæ og hitta kæran vin upp úr þurru eða rífa fram grillið og sötra á svöl­unum. Ég dýrka að þurfa ekki að klæð­ast sokkum og á sama tíma finna fyrir fresku og köldu loft­inu. Þess vegna vel ég að vinna í „sum­ar­frí­inu“ og tek mér svo almenni­legt frí frá amstr­inu á vet­urna.

Sumarið fyrir mér er frí frá rest af ári.
Og til að svara spurn­ing­unni þá ætla ég að blómstra; af því að lífið er loks­ins, eftir langan vetur, orðið bæri­legt.

Þennan pistil og fleiri má lesa í nýjasta tölu­blaði Mannlífs:

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Helgarpistill Mannlífs

Mig langar … Mig vantar … En þarf ég?
Lára Garðarsdóttir
Skoðun

Lára Garðarsdóttir

Mig langar … Mig vantar … En þarf ég?

Ég gekk á vini og sam­starfs­fólk og spurði hvað það lang­aði í. Svörin stóðu ekki á sér: Stærra hús­næði, raf­magns­bíl, nýtt gól­f­efni, sjón­varp, fal­legan lampa, tölvu og nýjan síma. Ég svar­aði sjálf spurn­ing­unni og sagði þeim að mig lang­aði í bíl­skúr­hurð­ar­opn­ara. „Lára, þú ert með plebba­leg­asta svarið,“ hróp­aði einn kolleg­anna og hló. Sann­ar­lega satt; til að langa í bíl­skúr­hurð­ar­opn­ara þarf...
Sum sumur eru sumarlegri en sum
Lára Garðarsdóttir
Skoðun

Lára Garðarsdóttir

Sum sumur eru sum­ar­legri en sum

Sumarið á suð­vest­ur­horn­inu hefur verið með ein­dæmum gott. Eig­in­lega sögu­lega gott. Stutt­bola­veður nán­ast dag hvern. Engin þörf fyrir vett­linga. Hver þarf sokka í svona blíð­viðri? Fyrir stærð­fræð­inga og aðra talna­spek­úlanta væri fróð­legt að vita hver fylgnin á milli sól­ar­daga sum­ars­ins og stýri­vaxta­hækk­ana seðla­banka­stjóra sé. Hún hlýtur að vera áþreif­an­leg. Fyrir þá sem lifa í trú á sam­sær­is­kenn­ingar er auð­velt að...
Að vera með ADHD er ekki góð skemmtun
Skoðun

Svanur Már Snorrason

Að vera með ADHD er ekki góð skemmtun

Sem barn var ég ofvirkur, rauð­hærður með krullur, ógeðs­lega frekur og auð­vitað með frekju­skarð. Ofan í kaupið er ég Hafn­firð­ingur. Ég var alltaf að rífa kjaft og alltaf til­bú­inn í ein­hver læti; mögu­lega leið­indi. Eftir að ég byrj­aði að æfa fót­bolta og hand­bolta hjá FH (auk þess að spila körfu­bolta alltaf þegar gafst tæki­færi til, það var ekki mögu­legt að...
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins