„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

18 manns veiktust eftir heimsókn á Hamborgarafabrikkuna: „Grunur um mögulega matareitrun“

18 manns veiktust eftir heimsókn á Hamborgarafabrikkuna: „Grunur um mögulega matareitrun“
María Rún Haf­liða­dóttir, fram­kvæmda­stjóri Fabrikkunnar. Myndin er sam­sett.

Margir gestir Íslensku Ham­borg­arafa­brikkunnar hafa kvartað undan veik­indum eftir að hafa borðað þar um helg­ina.

Mikil umræða hófst í gær í Facebook-grúbb­unni Mat­ar­tips um Íslensku Ham­borg­arafa­brikk­una, sem er yfir­leitt kölluð Fabrikkan, þar sem Sara Aurora sagði frá því að hún hefði farið í útibú Fabrikkunnar í Kringl­unni ásamt öðru fólki sein­ustu helgi. Fólkið sem fékk sér Morthens-borg­ar­ann hafi orðið mjög veikt í fram­haldi þess. Sara hringdi í veit­inga­stað­inn dag­inn eftir og þá var henni tjáð að starfs­fólk hefði farið heim með ælu­pest og hún ætti að senda tölvu­póst. Eftir að hafa beðið eftir svari og ekki fengið hafi hún í fram­hald­inu ákveðið að setja póst inn á Mat­ar­tips til athuga hvort að fleiri hefðu lent í því sama.

Við­brögðin létu ekki standa á sér. Miðað við þau svör sem Sara fékk virð­ast að minnsta kosti 18 ein­stak­lingar hafa orðið veikir eftir að hafa borðað á Fabrikkunni und­an­farna daga. Fólk nefnir upp­köst, nið­ur­gang, bein­verki og hita. Ótengt þess­ari færslu, sem Sara setti inn á Mat­ar­tips, var sett inn færsla á Twitter af Inga Bekk þar sem hann sagð­ist hafa farið á Fabrikk­una á mánu­dag­inn og heyrt þjón segja kokki að lirfa hafi fund­ist í ham­borg­ara. Færslu Inga má sjá hér fyrir neðan

María Rún Haf­liða­dóttir, fram­kvæmda­stjóri Fabrikkunnar, svar­aði Söru á Mat­ar­tips og sagði „kæra Sara takk kær­lega fyrir að vekja athygli á þessu. Við tökum það alltaf mjög alvar­lega þegar að upp kemur grunur um mögu­lega mat­ar­eitrun, þá fer ákveðið ferli í gang hjá okkur. Við rekjum okkur til baka hrá­efna­leið­ina og förum yfir alla mögu­lega orsaka­valda. Sú vinna er í gangi. Ég mun upp­lýsa þig um málið ef við verðum ein­hvers vís­ari og fæ að hafa sam­band við þig.“

Fabrikkan hefur ekki svarað spurn­ingum Mannlífs um málið.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins