„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Golfstraumurinn gæti hrunið árið 2025: Skelfilegar afleiðingar fyrir Ísland

Golfstraumurinn gæti hrunið árið 2025: Skelfilegar afleiðingar fyrir Ísland

Ný rann­sókn var birt í dag á nat­ure.com þar sem því er lýst að haf­strauma­kerfi Atl­ants­hafs­ins (AMOC), og þar með tal­inn Golfstraum­ur­inn, gæti hrunið um miðja öld­ina eða eins snemma og árið 2025.

Vís­bend­ingar hafa legið fyrir í nokkurn tíma að haf­straum­arnir myndu hnigna á næstu ára­tugum en fram til þessa hefur ekki verið hægt að festa tímara­mma.

Vís­inda­menn­irnir sem stóðu að rann­sókn­inni könn­uðu hita­stig sjávar yfir tíma­bilið 1870-2020, reikn­uðu með hlýnun Jarðar af manna­völdum og komust þannig með mik­illi vissu að því að með óbreyttum hætti myndi straumkerfið hrynja eins snemma og 2025 eða eins seint og 2095.

Golfstraum­ur­inn hrundi síð­ast fyrir meira en 12.000 árum sem olli hita­sveiflum upp á 10-15°C á norð­ur­hveli Jarðar á inn við ára­tug. Fyrir vikið má gera ráð fyrir að lofts­lagið hér­lendis yrði mun kald­ara, vetur yrðu mun harð­ari, snjó­þekja myndi vara lengur og sumur yrðu kald­ari.

Lífríki bæði lands og sjávar myndu verða fyrir tölu­verðum áhrifum sem jafn­framt myndi hafa áhrif á helstu tekju­lindir Íslend­inga eins og fisk­veiðar, land­búnað og ferða­manna­iðnað.

Ef haf­strauma­kerfi Atl­ants­hafs­ins myndu raskast með þessum hætti er Ísland fjarri því að vera eina svæðið sem yrði fyrir áhrifum þar sem straum­arnir hafa áhrif á allt veðra­kerfi heims­ins. Allt lofts­lag gæti breyst, ham­farir af völdum veð­urs gætu auk­ist og gæti hraðað enn frekar hlýnun jarðar t.d. með þiðnun sífrera í Síberíu.

Góðu frétt­irnar eru að enn sem komið er eru engar bein­línis sjá­an­legar vís­bend­ingar þess efnis að straumkerfi Atl­ants­hafs­ins séu að hrynja en rann­sóknin kallar þó á að heims­byggðin sam­ein­ist í að skera niður meng­un­ar­valda sem valda hnatt­rænni hlýnun niður í svo gott sem núll á sem stystum tíma.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins