„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Tómas segir Sjálfstæðisflokkinn vera flokk ódýrra orða: „Íslandsmethafi í svikum“

Tómas segir Sjálfstæðisflokkinn vera flokk ódýrra orða: „Íslandsmethafi í svikum“
Tómas Ellert vill fá sína gömlu félaga í Mið­flokk­inn

Tómas Ellert Tómasson, bygg­ing­ar­verk­fræð­ingur og fyrr­ver­andi bæj­ar­full­trúi Mið­flokks­ins í Árborg, hvetur Sjálf­stæð­is­menn til að ganga til liðs við Mið­flokk­inn.

„Að und­an­förnu hafa tveir mætir menn innan raða Sjálf­stæð­is­flokks­ins látið í sér heyra á opin­berum vett­vangi um að þeim leið­ist þetta rík­is­stjórn­ar­sam­starf sem þeir eru og hafa verið þátt­tak­endur í. Annar þeirra er þing­flokks­for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, hinn er fyrr­ver­andi þing­maður og aðstoð­ar­maður dóms­mála­ráð­herra. Einnig hafa óbreyttir þing­menn, vara­þing­menn og íslands­met­hafi í svikum við kjós­endur innan flokks­raða Sjálf­stæð­is­flokks­ins látið í sér heyra, jafnt opin­ber­lega sem á fundum í Valhöll,“ segir Tómas í pistli sem birt­ist á Vísi í dag.

Sjálfur er Tómas fyrr­ver­andi með­limur Sjálf­stæð­is­flokks­ins en hann var stofn­fé­lagi í Mið­flokknum fyrir um sex árum síðan. Hann hvetur sína fyrrum félaga til að ganga til liðs við Mið­flokk­inn og segja skilið við heimska hús­bónda­holl­ustu.

„Hús­bónda­holl­usta er heimska, kjóstu með hags­munum þínum sagði amma eitt sinn við mig er ég var ungur drengur. Hún vissi sínu viti. Uppalin á Norð­firði. Litlu Moskvu. Hún lét aldrei uppi hvað hún kaus í alþing­is­kosn­ingum en ég er viss um að í hvert sinn kaus hún með hags­munum sínum. Og ég veit að hún hélt ekki með Arsenal í enska bolt­anum.

Það eru um sex ár síðan að ég sagði bless við Sjálf­stæð­is­flokk­inn og gerð­ist stofn­fé­lagi í Mið­flokknum. Af hverju gerði ég það? Ég gerði það vegna þess að ég var á sama stað og þessir tveir fyrst­nefndu mætu menn. Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn á þeim tíma var orð­inn og er enn flokkur ódýrra orða og án gjörða á borði. Þannig hafði flokk­ur­inn starfað í nokkur und­an­farin ár áður en ég yfir­gaf hann.“

Tómas segir að Mið­flokk­ur­inn fylli upp í gap sem mynd­að­ist hafði í íslenskum stjórn­málum sem aðrir flokkar höfðu ekki reynt að fylla nema rétt fyrir hverjar kosn­ingar.

„Mið­flokk­ur­inn var aftur á móti stofn­aður til að vinna að og veita íslenskri þjóð stöð­ug­leika og einnig að standa vörð um hefð­bundin grunn­gildi s.s. að verja full­veldið og inn­lenda fram­leiðslu fyrir ágangi erlendra þjóða og íslenskra gróða­punga, en um leið vera flokkur hug­mynda­auðgi og fram­fara. Stefnan var nefnd skyn­sem­is­hyggja, sem skyldi gilda fyrir Ísland allt. Áhersla yrði lögð á byggða- og land­bún­að­ar­mál í anda stefnu skand­in­av­ískra mið­flokka. Mið­flokk­ur­inn var sem sagt stofn­aður fyrir skyn­samt fólk með skýra sýn á grund­vall­ar­mál sam­fé­lags­ins sem styður góðar hug­myndir sama hvaðan þær koma.“

Hægt er að lesa allan pistil Tómasar á Vísi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins