„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Átakanleg saga Sinead O’Connor: „Börnin mín vilja ekki þekkja mig“

Átakanleg saga Sinead O’Connor: „Börnin mín vilja ekki þekkja mig“

Eins og áður hefur verið greint frá fannst söng­konan Sinead O’Connor látin í gær, aðeins 56 ára að aldri. Margir syrgja söng­kon­una enda var hún talin ein sú besta í sínun fagi. Breska lög­reglan hefur nú gefið út yfir­lýs­ingu í sam­bandi við and­lát Sinead en þar segir meðal ann­ars að eng­inn grunur sé um sak­næmt athæfi.
„Lög­reglan var kölluð út klukkan 11:18, mið­viku­dag­inn 26 júlí eftir til­kynn­ingu um með­vit­und­ar­lausa konu. Konan var úrskurðuð látin stuttu eftir komu lög­reglu. Ekki er grunur um að sak­næmt athæfi hafi átt sér stað,“ segir í yfir­lýs­ingu bresku lög­regl­unnar.

Sinead missti 17 ára son sinn sem féll fyrir eigin hendi eftir útskrift af geð­deild. Hann lést í jan­úar í fyrra. Síðasta færsla Sinead á sam­fé­lags­miðl­inum Twitter var til­einkuð látnum syni hennar. „Hef lifað sem ódauð myrkra­vera síðan. Hann var ástin í lífi mínu, ljós sálar minnar. Við vorum tveir helm­ingar af einni sál. Hann var sá eini sem elskaði mig skil­yrð­is­laust. Ég er týnd án hans, “ skrif­aði söng­konan við mynd af syni sínum, Sean.
Sinead skilur eftir sig þrjú börn, Jake, 36 ára, Roisin, 28 ára og Yeshua, 17 ára. Hún átti eitt barna­barn sem var fæddur árið 2015.

Sinead átti erf­iða æsku og var beitt ofbeldi af móður sinni. Hún var opin með sögu sína en sön­k­onan var greind með áfallastreituröskun, jað­ar­per­sónu­leika­röskun og geð­hvörf. Nokkrum sinnum reyndi hún að taka eigið líf. „Hún beitti mig lík­am­legu og kyn­ferð­is­legu ofbeldi. Hún reyndi ekki að mis­nota mig heldur voru mörg skipti þar sem hún reyndi að koma í veg fyrir að ég gæti átt börn. Þetta var líka mikið and­legt ofbeldi. Í raun­inni voru þetta pynt­ingar. Ég hef fyr­ir­gefið mömmu, hún var veik,“ sagði Sinead í við­tali við People árið 2012.
13 ára flutti hún til föður síns en fór þá að sína mikla áhættu­hegðun. Sinead var þá flutt á geð­spít­ala þar sem hún dvaldi í 18 mán­uði. Hún sagði að þar hafi hún upp­lifað þján­ingar og mik­inn ótta.
Árið 1999 reyndi Sinead að taka eigið líf eftir ásak­anir um að hún væri óhæf móðir og langa for­ræð­is­deilu við föður dóttur sinnar sem var þá þriggja ára. Ári síðar gerði hún aðra sjálfs­vígstil­raun eftir að hún var greind með geð­hvörf.

Eftir sjálfs­víg sonar síns var Sinead lögð inn á geð­deild. Viku eftir and­látið setti hún færslu á sam­fé­lags­miðla þar sem hún sagð­ist verða að fylgja syni sínum. „Það er eng­inn til­gangur í því að lifa án hans. Allt sem ég snerti skemmi ég. Ég lifði fyrir hann og nú er hann far­inn. Ég hef rústað fjöl­skyld­unni minni. Börnin mín vilja ekki þekkja mig,“ skrif­aði Sinead á Twitter. Seinna setti hún aðra færslu þar sem hún baðst afsök­unar. „Fyr­ir­gefið mér, ég hefði ekki átt að skrifa þetta. Ég er með lög­regl­unni núna og á leið á spít­al­ann. Fyr­ir­gefið að ég hræddi alla. Ég er týnd án sonar míns og ég hata sjálfa mig. Spít­al­inn mun hjálpa í ein­hvern tíma en ég ætla að fara og finna Shane. Þessu er bara frestað.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins