„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Áhrifavaldur á grænkerafæði lést úr hungri: „Hún leit út fyrir að vera örmagna“

Áhrifavaldur á grænkerafæði lést úr hungri: „Hún leit út fyrir að vera örmagna“

Hin 39 ára Zhanna Sam­sonova lést úr hungri eftir langvar­andi nær­ing­ar­skort. Zhanna lifði á hráu græn­ker­a­fæði í um ára­tug en með tím­anum varð matar­æði hennar ýkt­ara. Undir lokin var hún hætt að drekka vatn og neytti ein­ungis ávexta, spíra og sól­blóma­fræja. Í stað­inn fyrir vatnið drakk hún ávaxta­þeyt­inga og safa.
Zhanna naut vin­sælda á sam­fé­lags­miðlum þar sem hún sýndi frá óvenju­legum lífstíl sínum en vinir hennar og vanda­menn voru orðnir áhyggju­fullir af ýktu matar­æði sem hafði versnað til muna á síð­ustu mán­uðum ævi hennar. Zhanna er rúss­nesk en hafði búið í suður Asíu í 17 ár.
„Ég hitti hana fyrir nokkrum mán­uðum í Sri Lanka, hún leit út fyrir að vera örmagna. Hún var send í með­ferð en hún vildi ekki hjálp­ina. Við vorum nágrannar um tíma, á hverjum degi ég var hrædd um að finna hana látna. Þegar ég náði loks­ins að sann­færa hana um að leita sér aðstoðar var það of seint,“ sagði vin­kona áhrifa­valds­ins sem vildi ekki láta nafn síns getið.

Móðir Zhanna stað­festi að dóttir hennar hafi látið lífið þann 21 júlí síð­ast­lið­inn og voru dán­ar­or­sökin sögð vera sam­spil kól­era veiru og nær­ing­ar­skorts. Veiran berst í menn með meng­uðu vatni og mat­vælum. Einkenni smits er mik­ill nið­ur­gangur sem getur á stuttum tíma valdið alvar­legu vökva­tapi. Talið er að um 50% þeirra sem smit­ast af veirunni án þess að leita sér lækn­is­hjálpar láti lífið. Kólera veirusmit er með­höndlað með saltvökva í æð.
Zhanna tal­aði mikið um jákvæð áhrif matar­æð­is­ins á heilsu hennar og líðan. „Ég elska nýju mig og fer aldrei aftur til baka í þann lífstíl sem ég lifði einu sinni. Ég borða ein­faldan mat en er með mikla reynslu á því að elda hrá­fæði og elska að búa til mínar eigin upp­skriftir. Mér finnst svo gaman að gefa öðrum inn­blástur og hvetja fólk til þess að lifa heil­brigðum lífstíl,“ skrif­aði Zhanna á sam­fé­lags­miðlum.
Rann­sóknir sýna að hrá­fæði geti haft jákvæð áhrif á heils­una, auki hjarta­heilsu, minnkar lík­urnar á syk­ur­sýki og offitu. Þetta á þó ein­ungis við ef um fjöl­breytt matar­æði er að ræða. Það fylgja því margar áhættur að neyta ein­ungis hrá­fæðis, til dæmis vítamínskortur sem getur leytt til bein­þynn­ingar og ann­ara heilsu­kvilla. Öfga­fullt matar­æði eykur einnig lík­urnar á átrösk­un­ar­sjúk­dómum.

Hægt er að leita sér aðstoðar við óheil­brigðum mat­ar­venjum hjá heilsu­gæsl­unni en þaðan er vísað á við­eig­andi úrræði. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins