„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Árbæjarkirkja stækkuð: „Allt kapp lagt á að endurheimta huggulega nærsvæðið“

Árbæjarkirkja stækkuð: „Allt kapp lagt á að endurheimta huggulega nærsvæðið“
Þór Hauksson, sókn­ar­prestur í Árbæj­ar­kirkju, telur að tíma­bært sé að stækka kirkj­una

Nú stendur til að stækka Árbæj­ar­kirkju og er und­ir­bún­ingur haf­inn. Ein­hverjir íbúar hverfs­ins hafa lýst yfir áhyggjum að fal­legt nærum­hverfi muni eyði­leggj­ast.

„Kirkjan var teiknuð um 1970 þá með þeim for­sendum sem voru þá hvað varðar starf kirkj­unnar. Á þeim tíma voru prestar með skrif­stofu heima. Í dag eru allt aðrar for­sendur fyrir hendi eins og gefur að skilja 50 árum seinna,“ sagði Þór Hauksson, sókn­ar­prestur í Árbæj­ar­kirkju, við Mannlíf þegar hann spurður út í ástæður þess að stækka eigi kirkj­una.   

„Starfs­mönnum við kirkj­unar hefur fjölgað. Tveir prestar, djákni, starfs­menn í barna og ung­linga­starfi, org­anisti, starfs­menn í öldr­un­ar­starfi. Varlega má áætla að í fullu og hluta­starfi og sjál­boða­liðar, með­talin sókn­ar­nefnd, séu um 30 mánns starf­andi við kirkj­una. Starfs­að­staðan var boð­leg í árdaga kirkj­unnar en er sú sama 50 árum seinna.  Sókn­ar­prest­ur­inn er með starfs­að­stöðu í „eld­hús­inu“ sem fyr­ir­hugað var að yrði í á efri hæð kirkj­unnar. Prest­ur­inn er með skrif­stofu sem var notuð sem geymsla. Djákninn er með aðstöðu þar sem áður var fata­hengi. Org­anist­inn hefur enga aðstöðu fyrir nótur og annað sem til­heyrir starfi hans. Frá 1970 til dags­ins í dag hefur orðið mikil breyt­ing á starfi kirkj­unnar. Eitthvað er um að vera í kirkj­unni alla virka daga vik­unar og á tíðum um helgar með börnum, ung­mennum og öldruðum.“

Kirkjan er á tveimur hæðum og er neðri hæðin að mestu notuð sem safn­að­ar­salur. Einnig hafa prestur og djákni aðsetur þar og reyn­ast starfs­að­stæður þeirra erf­iðar þegar erf­is­drykkja er á virkum dögum. Þá er aðgengið milli hæða ein­göngu í hring­stiga sem gerir hreyfi­höml­uðum og öldruðum erfitt að kom­ast á milli. Aðstaðan þyki hrein­lega ekki boð­leg lengur og mun kirkjan vera stækkuð um 400fm.

„Stefnt er að því að ljúka sem fyrst fram­kvæmdum ytra og rask verði lág­markað eftir bestu getu. Um er að ræða for­steyptar veggein­ingar til að rask verði sem minnst á nærum­hverfi kirkj­unnar. Ein­ing­arnar verða settar upp og beinu fram­haldi af því verða „sárin“ lag­færð og trjám plantað fyrir þau sem felld hafa verið. Hvað innra rýmið varðar áætlum við að ljúka eftir því sem fjár­magn fæst en aðal­á­hersla er lögð á að nærum­hverfið kom­ist í lag sem fyrst eftir því sem aðstæður leyfa eins og veð­ur­far og annað. Skilj­an­lega hafa ein­hverjir áhyggjur af nær­svæði kirkj­unnar. Það verður allt kapp lagt á að end­ur­heimta huggu­lega nær­svæðið sem allra fyrst og bæta í frekar heldur,“ sagði Þór um hvenær stæði til að fram­kvæmdum yrði lokið og hvort að fólk þyrfti hafa áhyggjur af umhverfi kirkj­unnar.

Nýja rýmið muni þá bæta þjón­ustu kirkj­unar með stærri safn­að­ar­sal og aðgengi og starfs­að­stöðu kirkju­gesta og starfs­fólks. Þá verði sett upp lyfta og tröppur til að bæta aðgengi milli hæða.

„Varlega má áætla að yfir vet­ur­inn komi á virkum dögum og helgar vel á annað þús­und manns í kirkj­una. Þau sem sækja guðs­þjón­ustur, almennt safn­að­ar­starf, barna, ung­linga, for­eldramorgna, öldr­un­ar­starf, ýmis nám­skeið, frjáls félaga­sam­tök sem áður er nefnd, kórar og annað til­fallandi eins og útfarir, skírnir, hjóna­víglsur, mann­eskjur sem leita sálu­sorg­unar,“ sagði Þór um hvernig aðsókn í Árbæj­ar­kirkju væri. Árbærinn, sem er eitt fjöl­mennsta hverfi borg­ar­innar, er aðeins með eina kirkju en það þykir óvenju­legt miðað við þann fjölda sem býr í hverf­inu.

„Vissu­lega er aðsóknin árs­tíð­ar­bundin má nefna í des­em­ber­mán­uði einum sam­kvæmt tölum okkar eru hátt á fimmta þús­und manns sem sækja kirkj­una vegna ýmissa athafna hvort heldur kirkju­starf eða annað það sem boðið er uppá í kirkj­unni. Það er löngu ljóst að kirkjan hefur fyrir löngu síðan sprengt utan af sér alla þá starf­semi sem í boði er. Hug­myndin að stækkun hefur verið að gerj­ast í mörg mörg ár og löngu aðkallandi. Aðhald í rekstri kirkj­unnar er til fyr­ir­myndar eða eins og lagt var af stað í upp­hafi í byrjun átt­unda ára­tug­ar­ins að ekki var rekin nagli í spýtu  nema eiga fyrir nagl­anum og spýt­unni að ekki sé talað um þá fjöl­mörgu sem lögðu til hendur og fætur við upp­bygg­ingu kirkju­húss­ins.  Það var þá og enn í dag eru fjöl­margir sem hafa lagt við dag og nótt við und­ir­bún­ing stækk­unar fjöl­rýmis við kirkj­una.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Trú

Segja frá ofbeldi innan sértrúarsafnaða: „Þjónaðu leiðtogunum eins og þeir séu Guð’’
Innlent

Segja frá ofbeldi innan sér­trú­ar­safn­aða: „Þjónaðu leið­tog­unum eins og þeir séu Guð’’

„Ung­linga­leið­tog­inn í kirkj­unni tók mig í gólfið, kné­setti mig og stóð ofan á mag­anum á mér til að reka út djöfl­ana sem áttu að gera mig sam­kyn­hneigða,’’ segir Steinunn Anna Radha í við­tali við Kompás en fjallað var um málið á Vísi. Kompás hefur kafað ofan í hug­takið trú­arof­beldi og skyggnst inn í líf þeirra sem hafa verið í sér­trú­ar­söfn­uðum....
Gunnar í Krossinum sendir dóttur sinni pillu: „Sonur minn er trúarleiðtogi sem stendur undir nafni“
InnlentTrú

Gunnar í Kross­inum sendir dóttur sinni pillu: „Sonur minn er trú­ar­leið­togi sem stendur undir nafni“

Svo virð­ist sem Gunnar Þor­steins­son – Gunnar í Kross­inum – sé ekki sáttur með orð dóttur sinnar, Sig­ur­bjargar, sem féllu í nýjasta Helg­ar­við­tali Mannlífs. „Árið 2010 var erfitt. Pabbi og mamma skilja árið 2009 og árið 2010 kemur Jónína Ben inn í líf okkar og hún og pabbi gifta sig. Sama ár fara ásak­an­irnar á hendur pabba af stað og...
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins