„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Dagný segir Kópavog vera að klúðra leikskólamálum: „Stór ástæða kynbundins launamunar“

Dagný segir Kópavog vera að klúðra leikskólamálum: „Stór ástæða kynbundins launamunar“
Ásdís Krist­jáns­dóttir bæj­ar­stjóri Kópavogs, vill verða for­maður

Dagný Pind, lög­fræð­ingur BSRB, segir Kópavog vera að refsa lág­tekju­fólki með nýjum breyt­ingum á leik­skóla­málum í bæj­ar­fé­lag­inu.

Eins og Mannlíf hefur fjallað um hefur Kópa­vogs­bær sam­þykkt mjög umdeildar breyt­ingar á reglum um leik­skóla í bænum og eru margir íbúar bæj­ar­ins ósáttir. Ásdís Krist­jáns­dóttir, bæj­ar­stjóri Kópavogs, hefur verið harð­lega gagn­rýnd fyrir umdeilda stefnu bæj­ar­stjórnar í mál­inu. Dagný Pind, lög­fræð­ingur BSRB, tekur undir með ósáttum íbúum.

„Kópa­vogs­bær hefur nú sam­þykkt afar umdeildar breyt­ingar á umgjörð leik­skóla­mála. Breyt­ing­arnar snú­ast í stuttu máli um að leik­skóla­vist barna upp að 6 tímum á dag verður gjald­frjáls en öll vistun umfram þann tíma mun hækka í verði og getur munað tugum þús­unda á mán­uði fyrir for­eldra. Einnig verður flestum leik­skólum lokað í kringum páska, jól og vetr­ar­frí grunn­skóla. Þetta á að skapa hvata fyrir for­eldra til að stytta dval­ar­tíma barna sinna,“ segir Dagný í pistili sem birt­ist á heima­síðu BSRB fyrr í dag.

Þá vill Dagný meina að Kópa­vogs­bær sé með ranga for­gangs­röðun í mál­inu.

„Mönn­un­ar­vandi, álag og veik­inda­tíðni starfs­fólks á leik­skólum er ekki eins­dæmi í Kópavogi. Þessi vanda­mál eru land­læg í leik­skólum og í annarri almanna­þjón­ustu, sér­stak­lega hjá hefð­bundnum kvenna­stéttum. Það er löngu tíma­bært að bæta starfs­að­stæður og kjör leik­skóla­starfs­fólks. Störfin eru lík­am­lega og and­lega krefj­andi og vinnu­að­stæður erf­iðar og launin í engu sam­ræmi við það. Kvenna­störf hafa verið og eru enn van­metin og ljóst er að leið­rétta þarf það sögu­lega órétt­læti. Það er spurn­ing um for­gangs­röðun hjá sveit­ar­fé­lögum að leggja leik­skól­unum til nægi­legt fjár­magn til þess að greiða almenni­leg laun, tryggja að vinnu­á­lag sé hæfi­legt og vinnu­að­stæður góðar. Leik­skólar eru gríð­ar­lega mik­il­væg grunn­þjón­usta sem flest okkar nýta sér á ein­hverjum tíma. Leik­skólar efla þroska og vel­ferð barna og án leik­skóla myndu hjól atvinnu­lífs­ins staðna.“

„For­eldrar í Kópavogi hafa eðli­lega lýst áhyggjum yfir breyt­ing­unum en veru­leiki for­eldra er afar mis­jafn og ljóst að ein­stæðir for­eldrar með lítið bak­land og lág­tekju­fólk með fasta 8 tíma við­veru neyð­ist til að greiða tug­þús­undum hærri leik­skóla­gjöld með til­heyr­andi kaup­mátt­ar­skerð­ingu í mik­illi dýr­tíð. Sumir for­eldrar hafa vissu­lega sveigj­an­leika til að vinna heima og treysta sér til þess að gera það með leik­skóla­barn eða -börn á heim­il­inu. Það á þó aðal­lega við störf þar sem hærri laun eru greidd, til dæmis ýmis sér­fræði­störf. Fólk með fasta við­veru á lægri launum hefur ekki sama sveigj­an­leika – nema það minnki við sig vinnu til að mæta auk­inni umönn­un­ar­þörf heima fyrir. Þetta er raun­veru­leiki allt of margra kvenna nú þegar sem leiðir af sér lægri laun og lægri ævi­tekjur – og er stór ástæða kyn­bund­ins launa­munar í íslensku sam­fé­lagi,“ segir Dagný og tekur fram að Kópa­vogs­bær sé að skapa pressu á konur í hluta­störfum og velti því mönn­un­ar­vanda bæj­ar­ins yfir á þær. Þá refsi bær­inn for­eldrum ekki ein­ungis fjár­hags­lega heldur að bær­inn ýti undir for­eldra­sam­visku­bit með því að ýja að því að börn sem eru lengi á leik­skóla hafi ekki gott af því.

Hægt er að lesa allan pistil Dagnýjar hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

pólitík

Bjarni Ben tætir í sig hælisleitendur: „Það er ekki hægt að réttlæta þetta lengur“
Innlentpólitík

Bjarni Ben tætir í sig hæl­is­leit­endur: „Það er ekki hægt að rétt­læta þetta lengur“

Í við­tali í hlað­varpi hjá fjöl­miðla­mann­inum Sölva Tryggva­syni fer Bjarni Bene­dikts­son, for­sæt­is­ráð­herra Íslands, hörðum orðum um hæl­is­leit­endur á Íslandi og er ósáttur með þá gagn­rýni sem rík­is­stjórn hans hefur fengið en telja sumir að hún hafi sýnt mann­vonsku og jafn­vel alið á útlend­inga­hatri. „Varðandi hæl­is­leit­enda­málin, þá hefur heim­ur­inn breyst mikið á skömmum tíma og straumur flótta­manna hefur auk­ist gríð­ar­lega. Það...
Hildur vandar Degi ekki orlofskveðjurnar: „Eðlilegt að fólk rísi upp á afturlappirnar“
Innlentpólitík

Hildur vandar Degi ekki orlofs­kveðj­urnar: „Eðlilegt að fólk rísi upp á aft­ur­lapp­irnar“

Hildur Björns­dóttir, odd­viti Sjálf­stæð­is­flokks­ins í borg­ar­stjórn, seg­ist líta á orlofs­mál Dags B. Egg­erts­sonar, fyrr­ver­andi borg­ar­stjóra Reykja­víkur, mjög alvar­legum augum en Dagur fékk 9,7 millj­ónir króna greiddar vegna orlofs við starfs­lok sem borg­ar­stjóri. Þar er um að ræða sam­kvæmt upp­lýs­ingum borg­ar­rit­ara, upp­safnað sum­ar­frí að hluta í 10 ára borg­ar­stjóra­tíð hans. Hún taldi eðli­legt að kalla eftir upp­lýs­ingum með hvaða hætti upp­gjörum...
Ragnar gagnrýnir ummæli Bjarna Ben: „Mjög ógeðfellt og ósanngjarnt“
Innlentpólitík

Ragnar gagn­rýnir ummæli Bjarna Ben: „Mjög ógeð­fellt og ósann­gjarnt“

Ragnar Þór Ing­ólfs­son, for­maður VR, er ekki sáttur við Bjarna Bene­dikts­sonar. Í gær­kvöldi var Bjarni Bene­dikts­son, utan­rík­is­ráð­herra og for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, gestur í Silfrinu á RÚV til að ræða helstu mál­efni líð­andi stundar á Íslandi. Meðal þeirra hluta sem ræddir voru má nefna Grinda­vík og kjara­samn­inga og taldi Bjarni að verka­lýðs­fé­lög lands­ins gætu þurft að taka til­lit til ástands­ins í Grinda­vík...
Mótmælir mótmælunum – Vill herða reglur og auka landamæraeftirlit: „Þessar dapurlegu tjaldbúðir“
Innlentpólitík

Mótmælir mót­mæl­unum – Vill herða reglur og auka landamæra­eft­ir­lit: „Þessar dap­ur­legu tjald­búðir“

„Það er hörm­ung að sjá tjald­búðir við Aust­ur­völl sem nú hafa staðið þar síðan 27. des­em­ber síð­stlið­inn. Það er óboð­legt með öllu að Reykja­vík­ur­borg hafi gefið leyfi fyrir tjald­búð­unum á þessum helga stað milli stytt­unnar af Jóni Sig­urðs­syni og Alþingis,“ svo ritar Bjarni Bene­dikts­son utan­rík­is­ráð­herra Íslands í nýrri færslu sem hann birti á sam­fé­lags­miðl­inum Facebook í kvöld. Bjarni virð­ist vera...
Gísli grét þegar hann viðurkenndi brot sitt fyrir Hönnu Birnu: „Það er ég sem gerði þetta“
Innlent

Gísli grét þegar hann við­ur­kenndi brot sitt fyrir Hönnu Birnu: „Það er ég sem gerði þetta“

Hanna Birna Krist­jáns­dóttir er komin aftur á sjón­ar­sviðið eftir að hafa haldið sig úr sviðs­ljós­inu árum saman. Í við­tali í hlað­varps­þætt­inum Eftirmál ræðir Hanna Birna um leka­málið alræmda en það varð á end­anum til þess að hún þurfti að segja af sér ráð­herra­emb­ætti og Gísli Freyr Val­dórs­son, þáver­andi aðstoð­ar­maður hennar, var dæmdur í skil­orðs­bundið átta mán­aða fang­elsi. Í hlað­varp­inu ræðir...
Nýr fjármálaráðherra kynntur á morgun – Svandís mögulega færð til
Innlentpólitík

Nýr fjár­mála­ráð­herra kynntur á morgun – Svandís mögu­lega færð til

Boðað hefur verið til blaða­manna­fundar. Rík­is­stjórn­ar­flokk­arnir þrír hafa boðað til blaða­manna­fundar kl. 11:00 í fyrra­málið. Má gera ráð fyrir að þar verði til­kynntar breyt­ingar á rík­is­stjórn­inni í kjöl­far þess að Bjarni Bene­dikts­son sagði af sér sem fjár­mála­ráð­herra í eftir að Umboðs­maður Alþingis skil­aði áliti um að Bjarni hafi verið óhæfur til að sjá um sölu Íslands­banka. Fund­ur­inn fer fram í...
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins