„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Una hugsar um jólagjafir allt árið: „Ég er ekki nógu dugleg“

Una hugsar um jólagjafir allt árið: „Ég er ekki nógu dugleg“
Una Sig­hvats­dóttir hugsar mikið um jólin

Neytandi vik­unnar er Una Sig­hvats­dóttir. Una er 34 ára og býr í Mos­fellsbæ með Jóni Kort ásamt tveimur börnum þeirra. Hún er deild­ar­stjóri frí­stundar í Helga­fells­skóla í Mos­fellsbæ og dýrkar starfið. Una elskar að úti­veru, ferð­lög og eyða tím­anum með fjöl­skyldu og vinum.

Gerir þú verðsamanburð á vörum og þjónustu?

Ég við­ur­kenni að ég er ekki nógu dug­leg að gera það. Það hefur alveg komið fyrir en ég þarf klár­lega að bæta mig í því. 

Hvernig sparar þú í mat­ar­inn­kaupum? 

Ég reyni mitt besta til að plana vik­una fyr­ir­fram og gera inn­kaupa­lista út frá því. Svo þarf ég að sjálf­sögðu að halda mig við list­ann þannig að það læð­ist ekk­ert í körf­una sem vant­aði ekki á heim­ilið. Mér finnst líka mjög þægi­legt að gera stóra rétti í einu svo ég geti fryst afgang­ana og nýtt þá seinna. 

Endurnýtir þú? Ertu með ráð til annarra?

Ég reyni mitt allra besta til að end­ur­nýta. Það eru þá helst föt sem eru end­ur­nýtt á mínu heim­ili. Við erum mjög heppin að hafa fengið mikið gef­ins af barna­fötum frá fjöl­skyldu og vinum. Svo höfum við að sjálf­sögðu keypt alls konar í Barna­lopp­unni. Ég hef svo sjálf verið með bás í bæði Barna­lopp­unni og Extra­lopp­unni til og fengið ágætis summu út úr því. Mitt besta ráð til ann­arra er að skella sér í hóp á facebook sem heitir „Áhuga­hópur um end­ur­vinnslu og end­ur­nýt­ingu“. Þar getur maður oft aug­lýst alls konar dót sem aðrir geta end­ur­nýtt. 

Hvað hefur þú í huga þegar þú kaupir mat, fatnað og gjafir?

Ég vil helst að mat­varan mín end­ist sem lengst svo ég þurfi að fara sem sjaldn­ast í búð­ina. Ég reyni líka að kaupa mér föt sem er hægt að nýta sem hvers dags en líka hægt að vera í þeim þegar maður fer eitt­hvað fínt. Ég er oft­ast búin að pæla mikið í gjöfum sem ég kaupi því ég vil að þær nýt­ist sem best á sama tíma og við­kom­andi verður glaður með gjöf­ina. Ég er til dæmis með „excel“ skjal sem ég hef nýtt í mörg ár þar sem ég skrifa inn jóla­gjafa­hug­myndir þegar ein­hver í kringum mig nefnir eitt­hvað sem hann langar í eða vantar. Þannig get ég keypt gjafir á til­boðs­dögum sem ég veit að verða not­aðar. 

Hverju átt þú erf­ið­ast með að draga úr kaupum á? 

Líklega alls konar barna­dóti sem mér finnst mjög snið­ugt þegar ég sé það á net­inu. 

Skiptir umhverfisvernd þig máli?

Að sjálf­sögðu skiptir það mig og okkur öll máli. 

Annað sem þú vilt taka fram? 

Ham­ingjan fellst ekki í því að eiga dýrasta og flottasta dótið. Verum dug­leg að nýta hlut­ina okkar vel.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

neytandi vikunnar

Borgarfulltrúinn sem vill kaupa falleg föt: „Ákveðnar verslanir ættu að taka sig á“
Innlentneytandi vikunnar

Borg­ar­full­trú­inn sem vill kaupa fal­leg föt: „Ákveðnar versl­anir ættu að taka sig á“

Kjartan Magn­ús­son er 55 ára borg­ar­full­trúi Sjálf­stæð­is­flokks­ins. Kjartan býr í Vest­ur­bænum og starf­aði árum saman sem blaða­maður Morg­un­blaðs­ins. Kjartan er Neytandi Mannlífs. Gerir þú verð­sam­an­burð á vöru og þjón­ustu? Já, ég ber gjarnan saman verð á vörum og þjón­ustu því ég veit að það getur verið mjög mis­mun­andi á milli versl­ana. Reyndar finnst mér tölu­vert vanta upp á verð­merk­ingar í...
Tómas er fótboltaverkfræðingur sem vill gott úrval: „Löngun samhliða þörf“
Innlentneytandi vikunnar

Tómas er fót­bolta­verk­fræð­ingur sem vill gott úrval: „Löngun sam­hliða þörf“

Tómas Joð Þor­steins­son er 34 ára gam­all bygg­ing­ar­verk­fræð­ingur. Hann starfar hjá Eykt ehf við upp­bygg­ingu Nýja Lands­spít­al­ans og spil­aði 141 leiki með Fylki í efstu deild í knatt­spyrnu. Tómas býr ásamt kær­ustu og tveimur börnum þeirra í Garðabæ. Hann er neyt­andi vik­unnar. Gerir þú verð­sam­an­burð á vörum og þjón­ustu? Já ég geri oft verð­sam­an­burð, sér­stak­lega við mat­ar­inn­kaup heim­il­is­ins og ýmsa...
Gerir unnustu sína brjálaða með tuði: „Endar í geymslunni“
Innlentneytandi vikunnar

Gerir unn­ustu sína brjál­aða með tuði: „Endar í geymsl­unni“

Arnar Freyr Gunn­steins­son er 34 ára, fæddur og upp­alin á Sel­tjarn­ar­nesi. Hann er þjón­ustu­full­trúi hjá BL og bassa­leik­ari Ultra Mega Technobandsins Stefáns. Arnar býr ásamt Jóhönnu, unn­ustu hans, í Árbænum. Arnar er Neytandi vik­unnar. Gerir þú verð­sam­an­burð á vörum og þjón­ustu? Já, ég skoða alltaf verð á sam­bæri­legum vörum þegar ég er að versla í keðj­unum. Get stundum gert Jóhönnu...
Hjálmar gaf vini sínum dósatunnu: „Tek alltaf plast með mér erlendis og hendi því þar“
Innlentneytandi vikunnar

Hjálmar gaf vini sínum dósa­tunnu: „Tek alltaf plast með mér erlendis og hendi því þar“

Hjálmar Örn Jóhanns­son er 49 ára verka­maður og skemmti­kraft­ur­bú­settur í Reykja­vík. Hann er fjög­urra barna barna faðir og einn fyndn­asti núlif­andi Íslend­ing­ur­inn. Hjálmar er Neytandi vik­unnar. Gerir þú verð­sam­an­burð á vörum og þjón­ustu? Hef ekki gert það. Hvernig sparar þú í mat­ar­inn­kaupum? Get ekki sagt að það sé minn sterkasti kostur að spara því miður. End­ur­nýtir þú? Ertu með ráð...
Emil kjúklingakarl er Pepsi Max fíkill: „Neysla er líklega stærsta vandamálið“
Innlentneytandi vikunnar

Emil kjúklinga­karl er Pepsi Max fík­ill: „Neysla er lík­lega stærsta vanda­málið“

Emil Ólafur Ragn­ars­son heiti ég, giftur með eitt barn. Búsettur í Hval­fjarð­ar­sveit, fæddur í Reykja­vík, upp­al­inn í Dýra­firði og Kjós. Starfa sem bústjóri á kjúklinga­búi. Hef einnig búið hér og þar á höf­uð­borg­ar­svæð­inu. Gerir þú verð­sam­an­burð á vörum og þjón­ustu? Já, ætli maður geri það ekki, þó er ég ekki með það nið­ur­skrifað í excel skjal. En maður reynir að...
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins