„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Ríkisstjórnin opnar „fangabúðir“ fyrir flóttamenn: „Þetta hús­næði er tak­mörk­un­um háð“

Ríkisstjórnin opnar „fangabúðir“ fyrir flóttamenn: „Þetta hús­næði er tak­mörk­un­um háð“
Guðrún Haf­steins­dóttir.

Guðrún Haf­steins­dóttir, dóms­mála­ráð­herra, stingur upp á loka­bú­setu­úr­ræði fyrir flótta­fólk.

Eins og Mannlíf hefur greint frá þá eru nýju útlend­inga­lögin sem rík­is­stjórnin hefur sett gríð­ar­lega umdeild og hafa margir sett sig upp á móti þeim. Þau fela í sér að hæl­is­lendendum verður vísað á dyr 30 dögum eftir synjun um alþjóð­lega vernd og ekki eru allir sáttir með það.

„Nú ligg­ur það al­veg ljóst fyr­ir að við erum með vernd­ar­kerfi á Íslandi þar sem fólk get­ur beðið um vernd ef að þeim staf­ar lífs­hætta. Við erum með kerfi þar sem sú um­sókn fer í gegn­um tvö stjórn­sýslu­stig og þegar að fólk er búið að fá höfn­un á báðum stig­um þá ligg­ur það al­veg ljóst fyr­ir að þau eru þá í ólög­mætri dvöl í land­inu,“ sagði Guðrún um málið í sam­tali við mbl.is.

„Ég hef í hyggju að leggja fram að hér verði tekið upp loka­bú­setu­úr­ræði (e. det­enti­on center) eins og ná­granna­lönd okk­ar eru með. Það er þá hús­næði fyr­ir fólk sem hef­ur ekki hlotið dvöl í land­inu. Þetta er hús­næði á meðan fólk bíður. Þetta hús­næði er tak­mörk­un­um háð,“ en vekur orða­lag Guðrúnar athygli því auð­velt er að lesa þetta á þann veg að hér standi til að opna fanga­búðir til að koma flótta­fólki í. Leiti fólk að orð­inu „loka­bú­setu­úr­ræði“ á Google virð­ist vera að Guðrún hafi búið til þetta orð. Guðrún sagði einnig að málið væri ekki flókið og að hæl­is­leit­endur ættu að yfir­gefa landið sé þeim sagt að gera það.

„Ég biðla til fólks að hlíta ís­lensk­um lög­um og ákvörð­unum ís­lenskra stjórn­valda. Hér er búið að fara yfir þessi mál gaum­gæfu­lega og hér er hóp­ur fólks sem hef­ur ekki rétt hér til dval­ar og búið að kom­ast að þeirri niður­stöðu að fólk eigi að yf­ir­gefa landið og þá ber fólki að gera það.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins