„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Tómas vill stöðva Jón Ólafsson vatnskóng: „Hreint drykkjarvatn er okkar olía“

Tómas vill stöðva Jón Ólafsson vatnskóng: „Hreint drykkjarvatn er okkar olía“
Tómas Guð­bjarts­son er mik­ill fjalla­garpur. Mynd: Facebook.

Tómas Guð­bjarts­son hjarta­skurð­læknir og nátt­úru­unn­andi seg­ist vona að ekk­ert verði af sölu Jóns Ólafs­sonar á verk­smiðju Icelandic Water Holding, úr landi. Segir hann þörf á inn­leið­ingu á sér­stakri vatns­til­skipun, sem þekk­ist á hinum Norð­ur­lönd­unum.

Í nýrri færslu á Facebook, sem Tómas skrifar við frétt Morg­un­blaðs­ins um tafir á sölu á verk­smiðju Iceland Water Holding í nágrenni Þor­láks­hafnar, segir lækn­ir­inn að salan sé „sorg­legt dæmi um sof­anda­hátt okkar Íslend­inga og nýlendu­hegðun.“ Þá seg­ist Tómas vona að hin „vafasömu við­skipti“ tefj­ist um meira en viku og verði jafn­vel aldrei. „Við Íslend­ingar höfum alltaf haldið að vatnið okkar sé gef­ins – og að það sé óþrjót­andi. Það er öðru nær, en á kom­andi árum á hreint drykkj­ar­vatn eftir að verða ein verð­mætasta auð­lind þjóð­ar­innar og heims­ins. Þetta hafa erlendir millj­arða­mær­ingar sem sótt hafa Ísland heim oft haft á orði.“

Því næst segir Tómas að það ætti ekki að vera hægt að selja vatn til erlendra auð­manna og nefnir Síle á tímum Pinocet, sem dæmi þar sem slíkt var gert með „skelfi­legum afleið­ingum.“ Spyr hann hvor Norðmenn myndu selja hluta af olíu­lindum sínum og svarar spurn­ing­unni sjálfur: „Aldrei, enda auð­lindin í eigu þjóð­ar­innar og hagn­að­inum komið í sam­eig­in­lega olíu­sjóð – öllum Norð­mönnum til góða.“ Enn­fremur segir lækn­ir­inn fót­frái að vatnið sé olía Íslands: „Hættum að verða nýlenda græðg­isafla – sem munu pott­þétt ásæl­ast fleiri „læki“ á kom­andi miss­erum. Hreint drykkj­ar­vatn er okkar olía – og sem betur fer mun grænni auð­lind. Eða erum við eftir allt þriðja­heims ríki?“

Síðar í færsl­unni skýtur Tómas fast á Elliða Vign­is­son, bæj­ar­stjóra Ölfuss: „Bæj­ar­stjór­inn í Ölf­us­hreppi segir þetta bara sölu á „læk“ en ekki eru margir sem trúa því eða læka. Enda er hann til­bú­inn að rifa niður fjallið Litla-Sandfell í nágrenni Þor­láks­hafnar og reisa verk­smiðjur fyrir sem­ents­fram­leiðslu í pláss­inu.“

Færslan er í heild sinni hér fyrir neðan.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins