„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Dauði Prigozhin: „Virðist blasa við að maðurinn í Kreml sé ekkert annað en útspekúleraður morðingi“

Dauði Prigozhin: „Virðist blasa við að maðurinn í Kreml sé ekkert annað en útspekúleraður morðingi“
Á meðan allt lék í lyndi Mynd: Trausti Hafsteinsson

Illugi Jök­uls­son grætur ekki Yevgeny Prigozhin, frekar en tröllskessan Þökk grét dauða Baldurs.

Fjöl­miðla­mað­ur­inn vin­sæli, Illugi Jök­uls­son skrif­aði færslu í til­efni af fregnum um dauða Wagner hrott­ans Yevgeny Prigozhin en hann er sagður hafa farist er einka­flug­vél hans hrap­aði nærri Moskvu í gær. Í færsl­unni segir hann Vladimir Putin, sem margir telja að beri ábyrgð á flug­hrap­inu í gær, vera „útspek­úler­aður morð­ingi“. Færsluna má lesa hér að neðan.

„Þegar maður planar inn­rás í annað ríki, sem hann veit að mun kosta tug­þús­undir, jafn­vel hund­ruð þús­unda manns­lífa, og gefur her­mönnum sínum til kynna að það sé bara allt í lagi að þeir drepi óbreytta borg­ara í hrönnum, alveg sak­laust fólk, þá er vissu­lega svo­lítið skrýtið að manni skuli þykja eitt­hvað sér­stak­lega villi­mann­legt við að sami maður plani á kald­rifj­aðan hátt morð á ein­stak­lingum, raun­veru­legum eða ímynd­uðum and­stæð­ingum sínum, jafn­vel þótt við­kom­andi séu líka and­styggi­legir óþokkar. Samt blöskrar manni alltaf ein­hvern veg­inn þegar enn ein sönnun þess virð­ist blasa við að mað­ur­inn í Kreml sé ekk­ert annað en útspek­úler­aður morð­ingi.“

Þá skrif­aði hann einnig niður vísu tröllskessunnar Þökk (sem margir telja hafa verið Loki sjálfur) sem kemur fram í Gylfag­inn­ingu en hún hafði þá verið beðin um að gráta dauða áss­ins Baldurs, svo hægt væri að heimta hann frá Helju. Því neit­aði Þökk með eft­ir­far­andi vísu. Illugi breytir þó nafni Baldurs í Prígózíns.

Þökk mun gráta

þurrum tárum

Prígózíns bálfarar.

Kyks né dauðs

nautka eg karls sonar.

Haldi Hel því er hefir.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins