„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Svandís á góðri leið að sprengja ríkisstjórnina: Óvissa um hvalveiðibannið en skip farið á miðin

Svandís á góðri leið að sprengja ríkisstjórnina: Óvissa um hvalveiðibannið en skip farið á miðin
Svandís Svav­ars­dóttir, for­maður Vinstri grænna. .

Mikil spenna er í rík­is­stjórn­ar­sam­starf­inu vegna hval­veiði­banns Svan­dísar Svav­ars­dóttur mat­væla­ráð­herra sem á með réttu að renna út á föstu­dag, 1. sept­em­ber. Ráð­herr­ann hefur engu svarað um það hvort bannið, sem er á for­sendum dýra­verndar, verði fram­lengt með nýrri reglu­gerð eða renni ein­fald­lega út. Í gær­kvöld gat Svandís ekki svarað því hvort hún myndi fram­lengja eða láta það ein­fald­lega renna út.

Sjálf­stæð­is­menn eru sumir hverjir ævareiðir vegna banns­ins sem ráð­herr­ann kynnti í rík­is­stjórn örskömmu áður en veiðar áttu að hefj­ast snemma í sumar. Und­ir­liggj­andi eru hót­anir um stjórn­ar­slit og van­traust á Svandísi fyrir afglöp í stjórn­sýsl­unni.

Stjórn­endur Hvals hf. höfðu ráðið í stöður á sjó og í landi vegna veið­anna sem standa ein­ungis yfir sum­arið. Starfs­fólk Hvals hefur verið á launum í sumar en aðgerð­ar­lítið. Fyrir liggur gríð­ar­legt tjón vegna þessa. Kristján Loftsson, aðal­eig­andi Hvals hf. hefur boðað að sett verði fram há skaða­bótakrafa á hendur íslenska rík­inu vegna máls­ins. Þá hefur ráð­herra verið klag­aður til Umboðs­manns Alþingis vegna stjórn­sýslu sem sögð er vera fyrir neðan allar hellur, burt­séð frá sjón­ar­miðum um dýra­vernd. Eitt af skipum Krist­jáns lagði úr höfn í gær til að leita uppi hvali og kort­leggja stöðu þeirra. Veiðar munu svo hefj­ast á föstu­dag ef Svandís aðhefst ekk­ert.

Kristján Loftsson mun sækja skaða­bætur vegna hval­veiði­banns­ins.

Það skýrist á næstu tveimur dögum hvort bannið rennur út og hvaða afleið­ingar það hefur í stjórn­ar­sam­starf­inu. Vil­hjálmur Árnason, rit­ari Sjálf­stæð­is­flokks­ins, og fleiri þing­menn flokks­ins talað skýrt í þá veru að það velti á áliti Umbðs­manns Alþingis hvort van­traust verði borið fram á ráð­herr­ann. Það er í raun sama hver nið­ur­staða Svan­dísar verður. Trún­að­ar­brestur innan rík­is­stjórnar blasir við og ein­ungis spurn­ing um birt­ing­ar­myndir þeirrar stöðu. Líf rík­is­stjórnar hangir á blá­þræði og full­komin óvissa er um fram­haldið.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins