„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Sara lætur hvatvísina leiða sig áfram: „Eins og að mála með garni“

Sara lætur hvatvísina leiða sig áfram: „Eins og að mála með garni“
Sara Matth­í­as­dóttir er einn efni­leg­asti lista­maður lands­ins

Sara Matth­í­as­dóttir er ekki þekkt nafn í lista­heim­inum en hún er án nokk­urs vafa ein sú mest spenn­andi í dag. Sara er á góðri leið með að skapa sér stöðu og stall í nútíma­list lands­ins með óhefð­bundnum lista­verkum úr akríl, garni og ull. Í dag starfar Sara sem félags­fræði­kenn­ari við Fjöl­brauta­skól­anum við Ármúla en hún ólst upp í Laug­ar­dalnum og býr þar ennþá með Pálmari, eig­in­manni sínum, og drengjum þeirra tveimur. Mannlíf ræddi við Söru um lífið og list­ina.

„Ég byrj­aði að vinna í list­inni fyrir rúm­lega tveimur árum, en þá var auð­vitað Covid og ég var mikið heima hjá mér,“ sagði Sara um hvenær hún byrj­aði að gera lista­verk í þeim stíl sem hún er að gera þess stund­ina. „Ég er mik­ill brasari og elska að prufa mig áfram í alls konar handa­vinnum. Ég byrj­aði að prjóna fyrir 5 árum þegar vin­kona mín sagði mér að það væri „cool“ að prjóna. Hún fékk okkur vin­kon­urnar til að hitt­ast og kenndi okkur að prjóna eftir upp­skrift. Ég gjör­sam­lega fékk þetta á heil­ann og prjón­aði þó nokkrar peysur. En gall­inn við prjónið er að ég þurfti að vera með alla ein­beit­ing­una í þessu og auk þess þá er ekki gott að gera mis­tök í pjón­inu. Svo ég fór að skoða hvað annað væri í boði sem teng­ist prjóni og fann þar aðferð sem kall­ast á ensku Punch needle, þetta hefur verið kallað þrykkja­nál og er það eflaust fín þýð­ing. Ég pru­faði mig aðeins í því og fannst það æðis­lega skemmti­legt og í fram­hald­inu fékk ég Tufting vél­byssu frá mann­inum mínum í afmæl­is­gjöf. En ég var búin að dreyma um að kom­ast í þannig vél í ein­hvern tíma.“

Stílinn hennar Söru er nokkuð óhefð­bundin en hvað fer í svona verk?

„Þetta er ákveðið ferli sem fer í að búa til verk, ég varð sem dæmi að smíða minn eigin
ramma sem ég vinn verkin mín á. Ég vinn með akríl, garn og ull. Þetta er smá eins og að
mála með garni.“

„Þetta er fyrsta sinn sem ég tel mig vera búa til eitt­hvað sem hægt er að kalla list,“ sagði Sara um hvort hún hafi verið mikil lista­maður í gegnum árin. „Ég er mik­ill brasari eins og ég nefndi áðan. Hef sem dæmi fönd­rað sjón­varps­skáp­inn heima, bólstrað gamla bar­stóla sem ég fékk í Góða Hirðinum, gert upp tekk kommóðu og margt fleira. En þetta byrj­aði allt saman sem áhuga­mál og hef ég aldrei litið á mig sem lista­mann. Sú hugsun þurfti að breyt­ast þegar hún Guðfinna, sem er í Endó sam­tök­unum, hafði sam­band við mig og bauð mér að taka þátt í lista­ver­ka­upp­boði til styrktar sam­tak­anna. Þá fengu mín verk að hanga með öllum hæfi­leik­a­ríku lista­fólk­inu sem tók þátt. Það var rosa­lega stórt og er ég mjög þakk­lát fyrir að hafa fengið að taka þátt í því.“

Lista­menn eru oft feimnir við að tala um inn­blástur en Sara er mjög opin með það.

„Það var í byrjun þessa árs sem mig datt í hug að hanna for­stofu­skáp­inn minn. Það var
ótrú­lega skemmti­legt, ég er ekki viss hvaðan sú hug­mynd kom, en ég fer oft af stað án þess að hugsa, vinn sem sagt mjög mikið með hvat­vís­inni minni. Elska að sjá hvert hún leiðir mig. Annars er minn helsti inn­blástur bara mitt nán­asta umhverfi. Fjöl­skyldan, vinnu­stað­ur­inn og vinir.“

„Ég er með ótal hug­myndir en var þó lítið að hugsa út í sýn­ingar, þá er kannski helsta ástæðan þekk­ing­ar­leysið. Lista­upp­boð Endó vakti upp áhug­ann og er ég með ákveðna sýn hvernig ég myndi vilja hafa sýn­ing­una mína, en það er á lang­tímaplan­inu,“ sagði Sara um mark­mið og fram­tíð­ar­á­ætl­anir hennar í lista­heim­inum. „Ég er í fullri vinnu sem
kenn­ari og ég dýrka það starf. Svo er ég með fjöl­skyldu og heim­ili svo það er helst kvöldin sem ég get unnið í minni list og þá finnst mér ég ná að nýta dag­inn mjög vel ef ég kemst í það. Annars er mark­mið mitt að setja upp vef­síðu sem ger­ist von­andi á þessu ári. Á meðan vef­síðan er ekki komin í loftið þá er hægt að sjá hvað ég er að gera á Instagram.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Kúltúrinn

Hundurinn hans Dwayne Johnson dó í nótt: „Ég hef verið dofinn yfir þessum missi“
Menning

Hund­ur­inn hans Dwayne Johnson dó í nótt: „Ég hef verið dof­inn yfir þessum missi“

Hollywood-stjarnan Dwayne „The Rock“ Johnson minn­ist hunds­ins síns, sem lést í gær. Ein stærsta Hollywood-stjarnan, á tvenna vegu, Dwayne „The Rock“ Johnson birti í morgun ljúfsárar ljós­myndir af hund­inum hans, Hobbs, sem lést í gær, á Instagram-reikn­ingi sínum. „Hvíl í friði, Hobbs. Ég hef verið dof­inn yfir þessum missi, en við erum svo þakk­lát fyrir hvern ein­asta eyri af hreinni...
DJ Khaled og 6ix9ine fengu báðir óhugnanlegar líkkistur sendar heim til sín: „RIP Drake“
Menning

DJ Khaled og 6ix9ine fengu báðir óhugn­an­legar lík­kistur sendar heim til sín: „RIP Drake“

DJ Khaled er orð­inn nýj­ast stjarnan til að fá afhenta óhugn­an­lega lík­kistu heim til sín í Flórída. Áður hafði Tekashi 6ix9ine fengið slíka send­ingu á höfð­ingja­setur sitt nokkrum dögum fyrr. Hin óhuggu­lega lík­kista var send að heim­ili Khaleds í Miami síð­ast­lið­inn laug­ar­dag, af tveimur mann­eskjum sem keyrðu trukki til örygg­is­varðar, og sögð­ust vera frá send­ing­ar­fyr­ir­tæki, sam­kvæmt lög­reglu­skýrslu. Eftir að þeim...
Myrkvi gefur út þriðju breiðskífu sína – Vonast til þess að slá vopnin úr höndum tímans
Menning

Myrkvi gefur út þriðju breið­skífu sína – Vonast til þess að slá vopnin úr höndum tím­ans

Tón­list­ar­mað­ur­inn Myrkvi gefur út þriðju breið­skífu sína á morgun en nafn hennar er Rykfall. Rykfall, þriðja breið­skífa Myrkva, er afrakstur margra ára vinnu. Hún er sjálf­stæð­asta verk lista­manns­ins til þessa en nán­ast hvert smá­at­riði plöt­unnar er spilað eða útsett af honum. Samkvæmt frétta­til­kynn­ingu var mark­miðið að skapa eitt­hvað sem gæti stað­ist tím­ans tönn. Platan fjallar um að leggja allt undir...
Bubbi og Frikki Dór styðja fórnarlömb þjóðarmorðsins á Gaza
Menning

Bubbi og Frikki Dór styðja fórn­ar­lömb þjóð­ar­morðs­ins á Gaza

Stór­tón­leikar verða haldnir í Háskóla­bíói laug­ar­dag­inn 1. mars kl. 14:00. Ágóði af miða­söl­unni rennur í verk­efnið Gervi­fætur til Gaza. Laug­ar­dag­inn 1. mars efni Félagið Ísland-Palest­ína til stór­tón­leika í Háskóla­bíó þar sem fram koma Bubbi, GDRN, Friðrik Dór, Jón Jónsson, KK og Ellen og hljóm­sveitin FLOTT! Samkvæmt frétta­til­kynn­ing mun ágóði af miða­sölu renna í verk­efnið Gervi­fætur til Gaza sem stofnað var...
The Highwaymen heiðraðir í Hörpu: „Fullt af tímalausum smellum og anda kántrítónlistar“
Menning

The Highwaymen heiðraðir í Hörpu: „Fullt af tíma­lausum smellum og anda kán­trítón­listar“

Fyrir fjöru­tíu árum, árið 1985, varð kán­trítón­listar saga sköpuð þegar fjórir af bestu tón­lista­mönnum allra tíma, Johnny Cash, Waylon Jennings, Willie Nelson og Kris Kristoffer­son, komu saman til að stofna The Highwaymen. Samstarf þeirra var sam­stundis far­sælt, leiddi til upp­seldra tón­leika, toppplatna og var­an­legrar arf­leifðar sem mót­aði fram­tíð kán­trítón­listar. Kraft­mik­ill og hjart­næmur hljómur þeirra ómaði um allan heim og nú,...
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Menning

Menning

Hundurinn hans Dwayne Johnson dó í nótt: „Ég hef verið dofinn yfir þessum missi“

Menning

The Highwaymen heiðraðir í Hörpu: „Fullt af tímalausum smellum og anda kántrítónlistar“

Menning

DJ Khaled og 6ix9ine fengu báðir óhugnanlegar líkkistur sendar heim til sín: „RIP Drake“

Menning

Friðrik Dór hugsar um lygar

Menning

Myrkvi gefur út þriðju breiðskífu sína – Vonast til þess að slá vopnin úr höndum tímans

Menning

Bubbi og Frikki Dór styðja fórnarlömb þjóðarmorðsins á Gaza