„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Edda Falak áfrýjaði aldrei til Landsréttar – Safnaði milljónum á Karolina Fund

Edda Falak áfrýjaði aldrei til Landsréttar – Safnaði milljónum á Karolina Fund

Edda Falak áfrýj­aði ekki dómi yfir sér til Lands­réttar, þrátt fyrir að hafa safnað fyrir því á Karolina Fund söfn­un­ar­síð­unni.

Söfnunin

Frosti Logason sak­aði Eddu Falak í sumar um fjár­svik í hlað­varps­þætti sínum Harma­geddon. Hélt hann því fram að Edda hefði safnað 2,5 millj­ónum króna í gegnum söfn­un­ar­síð­una Karolina Fund, í því skyni að greiða fyrir áfrýjun til Lands­réttar en hún hafði þá verið dæmd sek í máli sem móðir við­mæl­anda hennar í hlað­varps­þætt­inum Eigin konur, háði gegn henni. Konan stefndi Eddu eftir að hún birti hljóð­upp­töku í hlað­varps­þætti sínum, af kon­unni sem dóttir hennar lét Eddu í té. Í þætt­inum sak­aði dóttirin móður sína um and­legt ofbeldi. Edda tap­aði sem sagt mál­inu og hóf söfnun svo hún gæti áfrýjað mál­inu.

Sjá einnig: Frosti sakar Eddu um að hafa sett söfn­un­arfé í vas­ann: „Sið­blindir nars­issistar fá ekki kvíða­köst“

Frá söfn­un­ar­síð­unni

Svar Eddu

Í júlí sak­aði Frosti hana hins vegar um að hafa sleppt því að áfrýja mál­inu og þess í stað stungið pen­ingnum í vas­ann og meðal ann­ars skroppið í fjöl­skyldu­frí til Ítalíu. Þessu harð­neit­aði Edda í færslu á Instagram en DV sagði frá svar­inu hennar. „Ég kæri mig ekki um að fjöl­miðlar séu að lepja upp drull­una og kasta fram fals­fréttum um að ég hafi farið í fjöl­skyldu­frí til Ítalíu fyrir söfn­un­arfé. Eftir að lög­maður minn sendi inn áfrýj­un­ar­stefn­una borg­aði ég 1.379.768 til að gera upp dóm Hér­aðs­dóms og restin fór í lög­manns­kostnað eins og kom fram í lýs­ing­unni í söfn­un­inni. Ekkert af pen­ingnum fór til mín,“ er meðal þess sem Edda sagði í svar­inu.

Engin áfrýjun

Mannlíf hefur undir höndum skjá­skot af tölvu­póst­sam­skiptum kon­unnar sem fór í mál við Eddu, og starfs­manns Lands­réttar. Þar spyr konan hvort áfrýj­un­ar­stefna hafi verið gefin út gegn henni. „Þar sem mál nr. 320/2023 var ekki þing­fest 14. júní sl. var það fellt niður fyrir Lands­rétti,“ svar­aði Ingi­björg Gunn­ars­dóttir, skrif­stofu­maður hjá Lands­rétti.

Tölvu­póstana má sjá hér fyrir neðan:

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins