„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Hannes Hólmsteinn sakaði múslíma um þjófnað í Leifsstöð: „Þú öskraðir á tvær litlar stelpur“

Hannes Hólmsteinn sakaði múslíma um þjófnað í Leifsstöð: „Þú öskraðir á tvær litlar stelpur“
Hannes Hólm­steinn Giss­ur­ar­son. Mynd: Facebook.

Hannes Hólm­steinn Giss­ur­ar­son, pró­fessor á eft­ir­launum, sak­aði konu um tösku­þjófnað í Leifs­stöð þegar hann kom heim frá Portugal í nótt.

„Það skyggði dálitið á ánægju­lega heim­komu, að reynt var að ræna tösk­unni minni í Frí­höfn­inni. Kona klædd í múslima­bún­ing (með slæðu og í síðum kufli) tók hana, á meðan ég var að versla. Það var tals­vert stíma­brak að end­ur­heimta hana,“ skrifar Hannes Hólm­steinn á Facebook. Hann kvartar undan því að eng­inn hafi viljað aðstoða hann við kalla til lög­reglu í þeim til­gangi að fá eign sína aftur.

Frá Leifssöð. Myndin teng­ist ekki upp­nám­inu.

„Allir horfðu á mig eins og ég var eitt­hvað skrýt­inn. Þessi kona hefur síðan eflaust spíg­sporað inn í landið eins og ekk­ert væri. Óskap­lega hlýtur þetta fólk að hlæja í laumi yfir Íslend­ingum,“ skrifar Hannes Hólm­steinn í nótt og upp­skar vel­þóknun nokk­urra sem merktu við færslu hans.

„Þú ert Íslend­ingum til skammar“

En það voru ekki allir ánægðir með frá­sögn hans. Rúna Mjöll Helga­dóttir, starfs­maður Gerða­skóla, setti inn harð­orða athuga­semd við færslu Hannesar. Hún sagð­ist hafa verið vitni að atburðum sem hafi verið með allt öðrum hætti en pró­fess­or­inn lýsti.„Hæ ég var þarna þegar þetta gerð­ist og þú ert ekki að segja rétt frá sög­unni þú öskr­aðir á tvær litlar stelpur að þær væru að stela tösk­unni( þær rugl­uð­ust á tösku eins og ger­ist oft uppi frí­höfn) svo kom mamma þeirra og þú öskr­aðir á hana, þú end­aðir svo á því að öskra á greyið stelp­urnar að það ætti ekki að hleypa þeim inn í landið,“ skrifar Rúna.„Þær sögðu við þig að þær væru fæddar á Íslandi og með íslenskan rík­is­borg­ara­rétt, svo fórstu og öskr­aðir á alla starfs­menn og tuð­aðir í starfs­mönnum að það ætti ekki að hleypa svona fólki inn í landið. Þessar stelpur sem þú öskr­aðir á voru börn ein í kringum 14 ára og hin í kringum 6 ára svo kom konan sem þú ert að tala um. Það var ekki vesen að fá tösk­una til baka þær gáfu þér hana strax. Ástæðan af hverju allir horfðu svona á þig er útaf þú ert Íslend­ingum til skammar. Ömurlegt að fólk eins og þú skemmir fyrir öðrum,“ skrifar Rúna Mjöll í athuga­semd sinni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins