„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Ása fær yfir 200 milljónir: „Opna augu fólks fyrir heiminum sem við búum í“

Ása fær yfir 200 milljónir: „Opna augu fólks fyrir heiminum sem við búum í“
Ása Skúla­dóttir, stjarneðl­is­fræð­ingur

Ása Skúla­dóttir, stjarneðl­is­fræð­ingur, hefur hlotið styrk upp á rúmar 200 millj­ónir króna.

Greint er frá þessu í frétta­til­kynn­ingu sem Mannlífi barst fyrr í dag en Ása er einn virt­asti stjarneðl­is­fræð­ingur Evrópu. Styrk­ur­inn er frá Evrópska rann­sókn­ar­ráð­inu en með styrknum mun Ása reyna svara grund­vall­ar­spurn­ingum um vetr­ar­braut­ina okkar og hvernig frum­efnin urðu til. En auk þess að vera vís­inda­maður heldur Ása úti hlað­varp­inu Lömbin Þagna Ekki sem er eitt vin­sælasta hlað­varp lands­ins um þessar mundir. Mannlíf heyrði í Ásu og spurði hana út í styrk­inn.

„Fyrir mig skiptir þessi styrkur eig­in­lega öllu máli, bæði fyrir feril minn sem vís­inda­maður, en samt aðal­lega út af könn­un­inni minni 4DWARFS,“ sagði Ása við Mannlíf um hvað þessi styrkur þýddi fyrir hana. „Til að útskýra aðeins, þá eftir tveggja ára mjög strembið umsókn­ar­ferli (2019-2021) þá tókst mér að fá 4DWARFS könn­un­ina sam­þykkta, og hún mun tryggja gögn fyrir 130,000 stjörnur í dverg­vetr­ar­brautum og stjörnu­straumum þeirra, og eru gögnin metin á 2-3 millj­ónir evra, eins og áður segir. Þessi gögn verða tekin yfir 5 ára tíma­bil (2024-2029) og munu mögu­lega umbylta öllu sem við teljum okkur vita um dverg­vetr­ar­brautir, en þær eru einmitt svo mik­il­vægar m.a. því þær eru fyrstu vetr­ar­braut­irnar sem mynd­uð­ust í heim­inum, og eru grunn­ur­inn af öllum stærri vetr­ar­brautum.  

En 4DWARFS gefur svo rosa­lega mikið af gögnum að það er engin leið fyrir mig að vinna úr þessu ein. Með ERC styrknum fæ ég fjár­ráð til að ráða fólk, dokt­or­snema og nýdokt­ora, og þannig get ég bæði tryggt gæði gagn­anna og gagna­úr­vinnsl­unnar á 4DWARFS gögn­unum. En allra mik­il­væg­ast og skemmti­leg­ast er að þá hef ég tök á því að ekki bara sjá til þess að gögnin verði tekin – heldur einnig nýta þau til að fá sem mest út úr þeim fyrir vís­indin.“

Stjarneðl­is­fræði er kannski fag sem ekki margir Íslend­ingar hafa sér­þekk­ingu á en hvað finnst Ásu um vís­inda­læsi Íslend­inga?

„Ég hugsa að það sé svona meðal, miðað við það sem ég hef kynnst. En ég finn það að í sumum löndum eins og Hollandi, Ítalíu og Banda­ríkj­unum þá leggja stjarneðl­is­fræð­ingar mjög mik­ila áherslu á að kynna störf sín til almenn­ings, og reyna að gera á hátt sem er aðgengi­legur fyrir almenn­ing. Þetta er alls ekki auð­velt alltaf, en þegar vel til tekst hefur það rosa­lega mikil áhrif á að hvetja börn til að hafa áhuga á vís­indum, nátt­úr­unni og alheim­inum og opna augu fólks fyrir heim­inum sem við búum í. Þess vegna er fólk eins og okkar eigin Stjörnu-Sævar að vinna algjört þrek­virki í þessum málum, og ég ber mjög mikla virð­ingu fyrir slíku fólki.“  

„Núna með nýja styrknum get ég stofnað mína eigin grúbbu, og öðl­ast meiri reynslu og sjálf­stæði,” sagði Ása um hennar mark­mið. „Þetta gefur mér líka tæki­færi til að fara út fyrir þæg­ind­ara­mmann, sem að er alltaf rosa­lega þrosk­andi. Eftir 10 ár, þá vona ég að ég geti notað allar nið­ur­stöð­urnar úr þessu 4DWARFS/TREASURES verk­efni mínu, til að spyrja nýrra og erf­ið­ari spurn­inga um alheim­inn og þróun hans, og svo að sjálf­sögðu finna leiðir til að svara þeim spurn­ingum.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins