„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Katrín Odds: „Þetta er því miður íslensk stjórnsýsla í hvalveiðum í hnotskurn: Bitlaus og rotin“

Katrín Odds: „Þetta er því miður íslensk stjórnsýsla í hvalveiðum í hnotskurn: Bitlaus og rotin“
Katrín Odds­dóttir lög­fræð­ingur

Katrín Odds­dóttir segir stjórn­sýslu Íslands vera „bit­lausa og rotna.“ Þá kallar hún hval­veiðar „villi­manns­lega tíma­skekkju.“

Lög­fræð­ing­ur­inn og bar­áttu­konan Katrín Odds­dóttir skrif­aði færslu á Facebook í gær þar sem hún seg­ist vera búin að velta sér upp úr „þessu bless­aða hval­veiða­máli í hálft ár.“ Segir hún að nið­ur­staðan sé sú að vegna þess hve eft­ir­lits­valdið er of dreift „svo eng­inn aðili hefur almenni­lega yfir­sýn yfir allt ruglið sem er í gangi.“ Þá segir Katrín að það sem sé enn verra sé sú stað­reynd að Hvalur ehf. hafi aldrei eða sjaldan verið beitt við­ur­lögum, þrátt fyrir „ítrekuð brot á lögum og reglum.“ Bætti hún við: „Fyrir vikið getur fyr­ir­tækið gert það sem því sýn­ist – og kom­ist upp með það.“

Katrín segir það „algjör­lega sturlað“ að nátt­úru­vernd­ar­sam­tök líkt og hún hefur starfað fyrir eigi ekki rétt á að láta reyna á mál fyrir stjórn­völdum eða dóm­stólum. „Stjórn­sýslu­leg með­virkni, með þeirri villi­manns­legu tíma­skekkju sem veið­arnar eru, er gríð­ar­leg. Það má líkja þess­ari bit­lausu stöðu íslenskra eft­ir­lits­stofn­anna við munn án tanna.“ Katrín segir svo að regl­urnar séu síðan sniðnar eftir „hags­munum og vilja Hvals ehf.“ vegna teng­inga Krist­jáns Lofts­sonar inn í stjórn­mála­flokka á Íslandi. „Frægasta dæmið er auð­vitað tölvu­póst­ur­inn til sjáv­aru­tvegs­ráð­herr­ans sem lak til fjöl­miðla þar sem Kristján sendi ein­fald­lega “track changes” á reglu­gerð um verkun hval­kjöts og strik­aði þannig út eðli­lega kröfu um að vinnsla mat­væl­anna færi fram á yfir­byggðum skurð­ar­fleti.“

Nefnir hún annað dæmi og segir svo að lokum: „Þetta er því miður íslensk stjórn­sýsla í hval­veiðum í hnot­skurn: Bitlaus og rotin.“

Hér er færslan í heild sinni:

„BITLAUS OG ROTIN STJÓRNSÝSLA

Ég er búin að velta mér upp úr þessu bless­aða hval­veiða­máli í hálft ár. Nið­ur­staðan er sú að eft­ir­lits­valdið er allt of dreift svo eng­inn aðili hefur almenni­lega yfir­sýn yfir allt ruglið sem er í gangi. Það sem verra er að þrátt fyrir ítrekuð brot á lögum og reglum sem gilda er við­ur­lögum sjaldn­ast/aldrei beitt gegn Hvali hf.Fyrir vikið getur fyr­ir­tækið gert það sem því sýn­ist – og kom­ist upp með það.Nátt­úru­vernd­ar­sam­tök eins og þau sem ég hef starfað fyrir eiga ekki rétt á að láta reyna á mál fyrir stjórn­völdum eða dóm­stólum, sem er algjör­lega sturlað út af fyrir sig.Stjórn­sýslu­leg með­virkni, með þeirri villi­manns­legu tíma­skekkju sem veið­arnar eru, er gríð­ar­leg. Það má líkja þess­ari bit­lausu stöðu íslenskra eft­ir­lits­stofn­anna við munn án tanna.Regl­urnar sjálfar eru síðan sniðnar eftir hags­munum og vilja Hvals hf á grund­velli teng­inga Krist­jáns inn í stjórn­mála­flokka þessa lands. Frægasta dæmið er auð­vitað tölvu­póst­ur­inn til sjáv­aru­tvegs­ráð­herr­ans sem lak til fjöl­miðla þar sem Kristján sendi ein­fald­lega “track changes” á reglu­gerð um verkun hval­kjöts og strik­aði þannig út eðli­lega kröfu um að vinnsla mat­væl­anna færi fram á yfir­byggðum skurð­ar­fleti.Annað dæmi er í reglu­gerð um vinnslu hval­kjöts, þar sem segir um þessa glóru­lausu með­höndlun á mat­vælum undir berum himni:“Hval­skurður skal haf­inn eins fljótt og auðið er eftir að hvalur er kom­inn á land á skurð­ar­fleti með við­eig­andi vörnum sem koma í veg fyrir mengun afurða sam­kvæmt áhættu­mati sem rekstr­ar­að­ili gerir.”Hvalur hf. fær sem sagt sjálfur að gera áhættu­matið um hvernig þeir halda fuglum og mein­dýrum frá opnum hval­hræj­unum. Rosalega fín hug­mynd krakkar!Þetta er því miður íslensk stjórn­sýsla í hval­veiðum í hnot­skurn: Bitlaus og rotin.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Hvalveiðar

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins