„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Prentvél eyðilögð og einokun tryggð: Samkeppniseftirlit skoðar „viðbjóðsleg viðskipti“ Moggamanna

Sam­keppn­is­eft­ir­litið er með til skoð­unar viðskipti Árvakurs og þrota­bús Torgs með prent­vél Frétta­blaðs­ins. Útgef­andi Moggans keypti prent­vél­ina til nið­ur­rifs. Kjartan Kjart­ans­son, prent­smiðju­stjóri Ísa­fold­ar­prenstsmiðju, bauð í vél­ina og fylgi­hluti hennar en hlaut ekki náð fyrir augum skipta­stjór­ans, Óskars Sig­urðs­sonar, sem starfar hjá Lex-lög­mönnum. Í dag er staðan sú að verið er að rífa vél­ina sem stendur í hús­næði Regins, umbjóð­enda Óskars skipta­stjóra. Til­gangur eig­enda Moggans með kaup­unum var aug­ljós­lega sá að tryggja sér ein­okun á prentun dag­blaða á Íslandi. „Þetta eru við­bjóðs­leg við­skipti,“ segir heim­ild­ar­maður Mannlífs sem vill ekki að nafn sitt birt­ist af ótta við hefnd­ar­að­gerðir Mogga­manna.

Morg­un­blaðið nær enn frek­ari ein­ok­un­ar­stöðu.

„Sam­keppn­is­eft­ir­litið er með til skoð­unar kaup Lands­prents ehf. á prent­vél þrota­bús Torgs ehf. Það sem skoð­unin snýr m.a. að er hvort við­skiptin geti falið í sér til­kynn­ing­ar­skyldan sam­runa skv. sam­keppn­is­lögum,“ segir Magnús Þór Krist­jáns­son, verk­efna­stjóri Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins, í svari til Mannlífs. Hann segir málið ennþá vera á frum­stigi og ákvörðun um fram­haldið hafi ekki verið tekin.

Í dag er staðan sú að eig­endur Morg­un­blaðs­ins með Guð­björgu Matth­í­as­dóttur í Vest­manna­eyjum í aðal­hlut­verki ráða Póst­dreif­ingu og einu  prenstsmiðj­unni á land­inu sem prentar dag­blöð á borð við Morg­un­blaðið, Bænda­blaðið og Heim­ild­ina. Mogga­menn hafa því tögl og hagldir á þessum mark­aði eftir að eyði­legg­ing prent­vél­ar­innar hefur átt sér stað. Árvakur tap­aði 240 millj­ónum króna í fyrra og fékk rík­is­styrk upp á tæpar 70 millj­ónir króna. Kaupin á prent­vél­inni og fjár­fest­ing í ein­ok­un­inni kost­uðu félagið hluta af því sem nemur fjöl­miðla­styrknum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins