„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Þjóðarleiðtogar gagnrýna ofsóknir á hendur Assange á allsherjaþinginu

Þjóðarleiðtogar gagnrýna ofsóknir á hendur Assange á allsherjaþinginu
Lulu da Silva á þing­inu Mynd: Trausti Hafsteinsson

Tveir þjóð­ar­leið­togar hafa gagn­rýnt ofsókn­irnar á hendur blaða­mann­inum Julian Assange á yfir­stand­andi alls­herj­ar­þingi Sam­ein­uðu þjóð­anna í New York. Sá þriðji benti á hræsni Banda­ríkj­anna í tengslum við málið í við­tali vegna komu hans á þingið. Katrín Jak­obs­dóttir er ekki einn þeirra þjóð­ar­leið­toga.

Það sem liðið er af alls­herj­ar­fundi Sam­ein­uðu þjóð­anna í New York, hafa þrír þjóð­ar­leið­togar tjáð sig um þær ofsóknir sem Julian Assange, fyrr­ver­andi rit­stjóri Wikileaks, hefur mátt sæta síð­ustu árin en honum er nú haldið í alræmdu örygg­is­fang­elsi í Bret­landi og bíður þess að vera fram­seldur til Banda­ríkj­anna þar sem hans bíður allt að 175 ára fang­els­is­dómur, fyrir að birta leyni­legar upp­lýs­ingar um stríðs­glæpi Banda­ríkja­hers.

Þjóð­ar­leið­tog­arnir eru allir frá Suður-Ameríku en það eru þeir Lulu da Silva, for­seti Braselíu, Gustavo Pedro Kól­umbíu­for­seti og Xiomara Castro for­seti Honduras. Lulu da Silva sagði meðal ann­ars eft­ir­far­andi í ræðu á þing­inu: „Það er grund­vall­ar­at­riði að tryggja frjálsa fjöl­miðla. Það er ótækt að refsa blaða­manni eins og Julian Assange fyrir að upp­lýsa sam­fé­lagið með gagn­sæum og lög­mætum hætti,“ en þýð­ingin er fengin frá Kristni Hrafns­syni, sem vakti athygli á þessu á Facebook.

Gustavo Pedro gagn­rýndi ofsókn­irnar á hendur Assange í við­tali sem hann fór í hjá Democracy Now! í til­efni komu hans á alls­herj­ar­þingið í New York.

Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra Íslands er á þing­inu en hefur ekki enn vakið máls á máli Julian Assange. Mannlíf spurði Katrínu í sumar hvort íslensk stjórn­völd hefðu beitt sér á ein­hvern hátt í máli Assange en svarið sem barst var ein­falt: „Íslensk stjórn­völd hafa ekki beitt sér í mála­ferlum erlendis gagn­vart Julian Assange.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Heimur

Heimur

Dánarorsök þríburasystranna í Aberdeen opinberuð: „Við botnum ekkert í þessu“

Heimur

Amazon-bílstjóri keyrði yfir konu og yfirgaf vettvang – MYNDBAND

Heimur

Par neyddist til að sitja við hlið látinnar konu í 13 tíma flugi: „Þokkalega átakanlegt að horfa á“

Heimur

Karlmaður reyndi að smygla kókaíni í hárkollu – MYNDBAND

Heimur

Barn skotið til bana af lögreglumanni í San Diego – MYNDBAND

Heimur

Segir Netanyahu staðráðinn í að ráðast aftur á Gaza: „Mun skapa gríðarleg vandamál“