„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Segir Ísland hafa verið blóðmjólkað: „Þetta samráð hækkaði vöruverð“

Segir Ísland hafa verið blóðmjólkað: „Þetta samráð hækkaði vöruverð“
Einn af flutn­ings­bílum Samskipa. Mynd: samskip.is

Ísland var blóð­mjólkað að mati Atla Þórs Fanndals.

Atli Þór Fanndal, fram­kvæmda­stjóri Íslands­deildar Transparency International, segir í nýjum pistli að Samskip og Eimskip hafi blóð­mjólkað landið með sam­ráði þeirra á milli. Þá hafi sam­ráðið valdið því að vöru­verð hafi hækkað, lán hafi hækkað og hafi kæft alla sam­keppni og mögu­leika á meiri sam­keppni.

„Hef verið að lesa nið­ur­stöðu Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins á brotum Samskips vegna sam­ráðs Eimskips og Samskipa. Eimskip ját­aði og fékk sátt. Þetta eru auð­vitað fimmtán bindi og við­auki og ég við­ur­kenni fús­lega að ég er ekki búinn að lesa allt. Það sem verður þó ljóst er að þetta sam­ráð hækk­aði vöru­verð, lánin okkar, allan kostnað við að lifa, kæfði sam­keppni og lok­aði fyrir nýja aðila á markað. Það sem verður þó aug­ljóst er að enn einu sinni afhjúp­ast hvers vegna nafn­lausir pistlar við­skipta­pressunnar eru end­ur­tekið not­aðir til að gera lítið úr þeim sem gagn­rýnar skort á sið­ferði og sam­keppni hér á landi. Í talsmáta Samskipa er talað um græn­lensk verð sem ódýr og sam­keppn­is­hæf. Græn­lenskt verð­lag… Ísland er mjólk­urkú sem er svo blóð­mjólkuð að talað er um hvað mark­að­ur­inn hér sé kósí. Í land­flutn­ingum er talað um litla flutn­ings­að­ila og ein­yrkja sem sjó­ræn­ingja enda geti þeir boðið verð sem séu minna en 1/3 af verði stóru aðil­anna í land­flutn­ingum,“ sagði Atli í pistl­inum sem birt­ist í gær. Atli sagði einnig að honum þætti við­bragðs­leysi stjórn­mála­manna athygl­is­verð, sér í lagi þeirra sem eru af lands­byggð­inni

„Við lest­ur­inn verður enn einu sinni aug­ljóst hvers vegna núver­andi rík­is­stjórn hefur grafið undan og veikt eft­ir­lits­stofn­anir. Það er einmitt til að koma í veg fyrir að svona rann­sóknir séu birtar. Það að ekki heyr­ist múkk í stjórn­mála­fólki lands­byggð­anna er svo kap­ít­uli útaf fyrir sig. Þessi félög skáru landið upp eins og nýlendu og skiptu sín á milli. Þetta er rosa­legur lestur og óskilj­an­legt að ekki hafi þegar verið til­kynnt um nokkra þátta heim­ilda­seríu um málið. Við vorum blóð­mjólkuð og rænd svo Óli Óla og aðrir gætu end­ur­reist eigin auð eftir að hafa keyrt landið í kaf. Samt heyr­ist lítið sem ekk­ert í stjórn­mál­unum.“

Hægt er lesa allan pistil Atla hér fyrir neðan

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins