Hallgrímur Helgason birti magnað ljóð á Facebook í kvöld þar sem hann deilir á stjórnmálin á Íslandi.
Rithöfundurinn, málarinn og ljóðskáldið Hallgrímur Helgason birti í kvöld frumsamið ljóð sem hann kallar Frítt. Ljóðið snertir á flest öll þau spillingarmál sem sumir segja að hafi verið viðloðandi Íslandi um árabil.
Ljóðið má lesa hér fyrir neðan:
FRÍTT
Þeir fengu firðina fríttog fylltu af kvíum.Liðið var ljúft og þýttsem lax í stíum.Þeir fengu kvótann fríttog framseldu gullið.Með gróða var umræðan grýttsvo gleypt væri bullið.Þeir fengu bankann fríttfrá fjármálaverðiog útseldu ótt og títtá uppsprengdu verði.Þeir fengu hálendið fríttog framleiðslustundir.Og skattaskyldum var ýttskúffuna undir.Nú fá þeir fjallið frítttil að flytja úr landien stofnkerfin standa líttstöðug á sandi.Þeir fá alltaf landið fríttí forgjöf sem rokkarog skilja það eftir skíttí skjóli okkar.


























Athugasemdir