„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Ráðstefnugestur S78 með brotnar tennur eftir líkamsárás: „Einstaklingurinn fluttur á sjúkrahús“

Ráðstefnugestur S78 með brotnar tennur eftir líkamsárás: „Einstaklingurinn fluttur á sjúkrahús“
Frá Reykja­vík Pride 2023 – Mynd: Reykjavík

Ráðist á gest á vegum Sam­tak­anna 78.

Eins og Mannlíf og aðrir fjöl­miðlar hafa fjallað um und­an­farnar vikur hefur orðið bakslag í bar­áttu hinsegin fólks á Íslandi. Helsta ástæða þess er inn­fluttur hatur frá Banda­ríkj­unum og Bret­landi þar sem trans fólk hefur verið meðal ann­ars sakað um barna­girnd og að reyna inn­ræta börn á grunn­skóla­aldri með „transá­róðri“. Þá hefur þessu verið blandað í kyn­fræðslu grunn­skóla og logið til um að Samtökin 78 sjái um hana. Þá hafa fjöl­miðlar og vís­inda­menn ítrekað verið sak­aðir um gas­lýs­ingu þegar bent hefur verið þá for­dóma sem trans fólk verður fyrir. Samtökin 78 héldu í gær ráð­stefnu með öðrum sam­tökum hinsegin fólks á Norð­ur­löndum og varð einn fund­ar­gestur fyrir lík­ams­árás og þurfti að flytja við­kom­andi á sjúkra­hús.

„Þetta voru tveir aðilar sem réð­ust á hann. Hann var sem­sagt að labba frá kvöld­verð­inum upp á hótel þegar hann tekur eftir tveimur ein­stak­lingum hinum megin við göt­una sem fylgd­ust með honum. Svo koma þeir aftan að honum og ráð­ast á hann,“ sagði Daníel E. Arn­ars­son, fram­kvæmda­stjóri Sam­tak­anna ’78, í við­tali við Vísi um málið. Ekki er vitað hverjir voru að verki en sá varð fyrir árásinni var kýldur í and­litið og brotn­uðu tennur í árásinni.

Samtökin 78 sendu frá sér til­kynn­ingu fyrr í dag um málið.

„Und­an­farið hafa Samtökin ‘78 þurft að huga sér­stak­lega að örygg­is­málum á við­burðum. Örygg­is­verðir voru á ráð­stefn­unni allan tím­ann sem og á hlið­ar­við­burðum. Einnig voru Samtökin ‘78 í góðu sam­bandi við Rík­is­lög­reglu­stjóra.

Því miður kom ber­lega í ljós að þær ráð­staf­anir voru nauð­syn­legar. Veist var að ráð­stefnu­gestum á göngu í miðbæ Reykja­víkur á mánu­dag og í gær­kvöld varð ráð­stefnu­gestur fyrir lík­ams­árás. Kalla þurfti til lög­reglu og sjúkra­bíl og var ein­stak­ling­ur­inn fluttur á sjúkra­hús. Líðan hans er eftir atvikum og áfallið er mikið fyrir alla gesti. Við sendum honum hlýjar bata­kveðjur.

Þessir ömur­legu atburðir eru enn ein áminn­ingin um að bakslag í rétt­inda­bar­áttu hinsegin fólks, sem var eitt aðal­um­fjöll­un­ar­efni ráð­stefn­unnar, er raun­veru­legt, hættu­legt og vax­andi vanda­mál á Íslandi rétt eins og í nágranna­lönd­unum.

Það er óásætt­an­legt að hinsegin fólk geti ekki gert ráð fyrir því að vera öruggt í almanna­rým­inu á Íslandi. Atburðir sem þessir sýna skýrt þörf­ina á ráð­stefnu sem þess­ari og öfl­ugu starfi í þágu rétt­inda og öryggis hinsegin fólks.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins