„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Þetta er maðurinn sem grunaður er um morðið á Tupac – Segir frænda sinn hafa tekið í gikkinn

Þetta er maðurinn sem grunaður er um morðið á Tupac – Segir frænda sinn hafa tekið í gikkinn
Tupac Shakur

Duane Keith Davis eða Keefe D eins og hann er kall­aður, hefur verið ákærður fyrir morðið á rapp­goð­sögn­inni Tupac Shakur árið 1996. Þá var hann einnig yfir­heyrður fyrir morðið á Biggie Smalls, sem skot­inn var til bana ári síðar.

Duane Keith „Keefe D“ Davis

Á föstu­dag­inn var hinn sex­tugi Keefe D hand­tek­inn og ákærður fyrir morðið á Tupac Shakur, sem skot­inn var til bana í bíl þar sem hann stopp­aði á rauðu ljósi í Las Vegas, árið 1996. Tupac var aðeins 25 ára gam­all. Keefe D var einnig yfir­heyrður árið 2009, vegna morðs­ins á rapp­ar­anum Christopher Wallace eða Notorius B.I.G. eða Biggie Smalls, sem skot­inn var til bana í Los Angeles árið 1997, ein­ungis 24 ára að aldri. Tupac skaust hratt upp á stjörnu­him­in­inn á tíunda ára­tug síð­ustu aldar, bæði í rapp­heim­inum og í Hollywood en hann lék í nokkrum kvik­myndum. Er hann einn áhrifa­mesti rapp­ari sem stigið hefur fram á sjón­ar­sviðið.

Tupak Shakur og Suge Knight aðeins mín­útum fyrir árás­ina

Í þrjá ára­tugi hafa aðdá­endur rapp­sen­unnar heyrt sögu­sagnir af tengslum milli þess­ara tveggja morða og því verið haldið fram að morðin hafi verið framin vegna erja milli Tupac Shakur og Notorius B.I.G. Bæði morðin eiga það sam­eig­in­legt að hafa verið framin úr bíl í svoköll­uðu „drive by shooting“ en þá er skotið úr bíl og keyrt í burtu en í báðum til­fellum voru rapp­ar­arnir stopp á rauðu ljósi. Ástæðan fyrir því að Keefe D var rann­sak­aður sem mögu­legur morð­ingi er sú að hann sagð­ist hafa verið á vett­vangi þegar Tupac var myrtur. Þá var hann einnig í veisl­unni sem Notorius B.I.G. var að koma úr þegar hann var skot­inn til bana.

The Notorious_B.I.G

En hver er Duane Keith „Keefe D“ Davis?

Davis fædd­ist í Compton í Los Angeles-sýslu, þann 14 júní árið 1963. Í æsku spil­aði hann amer­ískan fót­bolta með hinum alræmda útgef­anda, Suge Knight, sem var bílnum með Tupac Shakur er hann var myrtur. Suge lifði árasina af. Seinna gekk hann í South Side Compton Crips glæpa­gengið. Eig­in­kona hans heitir Paula Clemons.

Þann 2. júlí árið 2018, við­ur­kenndi Davis að hafa átt þátt í að drepa Tupac Shakur, eftir að hafa fengið fréttir af því að hann væri að deyja úr krabba­meini. Sagðist hann hafa verið far­þegi í hinum hvíta Cadillac sem skotið var úr það kvöld. Hann neit­aði að segja frá öðrum far­þegum bíls­ins en sagði þó að frændi hans, Orlando Anderson, hefði verið sá sem skaut. Anderson, sem var með­limur í sama gengi og Davis, lést árið 1998 í skot­bar­daga sem tengd­ust gengja­stríði, aðeins 23 ára að aldri.

Orlando Anderson

Árið 2011 gaf fyrrum rann­sókn­ar­lög­reglu­maður lög­regl­unnar í Los Angeles, Greg Kading að nafni, út bók þar sem hann hélt því fram að Duane Keith „Keefe D“ Davis hefði verið boðið ein milljón doll­ara fyrir að drepa Tupac Shakur og Suge Knight. Sagði hann að rapp­ar­inn Sean „Diddy“ Combs hefði boðið Crips-geng­inu þessa upp­hæð en í bók Chuck Philips um málið sem kom út árið 2002, var því haldið fram að Notorius B.I.G. hafi boðið upp­hæð­ina fyrir morðið en þeir B.I.G og Diddy voru bestu vinir.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Morðmál

Tæplega þrjátíu ára gamalt morðmál frá Skotlandi leyst: „Nei, mamma, Robbie var blautur“
HeimurMorðmál

Tæplega þrjá­tíu ára gam­alt morð­mál frá Skotlandi leyst: „Nei, mamma, Robbie var blautur“

Tæplega þrjá­tíu ára gam­alt morð­mál í Skotlandi hefur nú verið leyst. BBC sýnir brátt heim­ild­ar­mynd um málið. Þann 25 ágúst árið 1996, fannst lík hinnar fjórtán ára gömlu Caroline Clachan í ánni Leven í Vestur Dun­barton­skíri í Skotlandi. Það var ekki fyrr en árið 2023 að morð­ingjar hennar fund­ust. Mynd: Trausti Haf­steins­son Little Archie Wilson var dæmi­gerður fjög­urra ára gam­all...
Axel Rubakubana játaði óvænt í réttasal í dag – Stakk þrjár stúlkur á dansnámskeiði til bana
Heimur

Axel Rubaku­bana ját­aði óvænt í rétta­sal í dag – Stakk þrjár stúlkur á dans­nám­skeiði til bana

Hinn 18 ára Axel Rubaku­bana hefur játað að hafa yrt þrjár stúlkur í hnífa­árás á Taylor Swift-dans­nám­skeiði í Southport á síð­asta ári. Axel Rudaku­bana, frá Banks, Lancaskíri, breytti fram­burði sínum á fyrsta degi rétt­ar­halda í Liverpool Crown Court-dóms­stólnum, þar sem hann var ákærður fyrir morð á Alice da Silva Aguiar, níu ára, Bebe King, sex ára, og Elsie Dot Stancombe,...
Ung kona fannst látin í skotti bíls í Lundúnum – Telja morðingjann hafa þekkt hana
HeimurMorðmál

Ung kona fannst látin í skotti bíls í Lundúnum – Telja morð­ingj­ann hafa þekkt hana

Lög­reglan í Nort­hampton-skíri hefur hafið morð­rann­sókn eftir að lík hinnar 24 ára Harshita Brella fannst í far­ang­urs­rými bíls í aust­ur­hluta Lundúna fyrr í vik­unni. Hafin er rann­sókn eftir að lík Harshita fannst í bíl í aust­ur­hluta Lundúna. Lög­reglan fann lík hennar í Brisbane Road í Ilford eftir að lög­reglu­menn voru látnir vita af áhyggjum um vel­ferð hennar dag­inn áður. Lög­reglu­menn...
Móðirin sem banaði syni sínum var alvarlega þunglynd – Taldi sig vera með krabbamein
InnlentMorðmál

Móðirin sem ban­aði syni sínum var alvar­lega þung­lynd – Taldi sig vera með krabba­mein

Móðirin sem dæmd var í fang­elsi á dög­unum fyrir að verða ungum syni sínum að bana við Nýbýla­veg í Kópavogi, þjáð­ist af alvar­legu þung­lyndi. Kemur þetta fram í dóm­inum sem birtur var á heima­síðu Hér­aðs­dóms Reykja­ness í dag. Samkvæmt frétt RÚV komust þrír dóm­kvaddir mats­menn að þeirri nið­ur­stöðu að konan hefði verið alvar­lega veik af þung­lyndi en ekki haldin geð­veiki...
Faðir Kolfinnu úrskurðaður í áframhaldandi gæsluvarðhald
InnlentMorðmál

Faðir Kolfinnu úrskurð­aður í áfram­hald­andi gæslu­varð­hald

Sigurður Fannar Þórsson, sem grun­aður er um að hafa orðið tíu ára dóttur sinni, Kolfinnu Eldeyju að bana um miðjan sept­em­ber, var í dag úrskurð­aður í áfram­hald­andi gæslu­varð­hald til 14. nóv­em­ber. Elín Agnes Krist­ín­ar­dóttir, aðstoð­ar­yf­ir­lög­reglu­þjónn hjá mið­lægri rann­sókn­ar­deild stað­festi gæslu­varð­halds­úr­skurð­inn við Vísi. Kolfinna Eldey fannst látin við Krýsu­vík­ur­veg 15. sept­em­ber síð­ast­lið­inn eftir að faðir hennar hafði sjálfur til­kynnt lög­reglu um...
Hinn grunaði í hvarfi Maddie játaði: „Spurði hvort hægt væri að taka DNA úr barnabeinum úr jörðu“
HeimurMorðmál

Hinn grun­aði í hvarfi Maddie ját­aði: „Spurði hvort hægt væri að taka DNA úr barna­beinum úr jörðu“

Dæmdi barn­a­níð­ing­ur­inn Christian Brueckner, er nú fyrir rétti í Þýska­landi en hann er grun­aður um að hafa rænt og drepið hina þriggja ára gömlu Madel­eine McCann í Praia da Luiz í Portúgal í maí 2007. Fyrrum klefa­fé­lagi hans, Laurentiu Codin sagði fyrir rétti í dag að hinn þýski Brueckner hafi við­ur­kennt fyrir honum að hafa rænt barni í Portúgal. Christian...
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Heimur

Heimur

Dánarorsök þríburasystranna í Aberdeen opinberuð: „Við botnum ekkert í þessu“

Heimur

Amazon-bílstjóri keyrði yfir konu og yfirgaf vettvang – MYNDBAND

Heimur

Par neyddist til að sitja við hlið látinnar konu í 13 tíma flugi: „Þokkalega átakanlegt að horfa á“

Heimur

Karlmaður reyndi að smygla kókaíni í hárkollu – MYNDBAND

Heimur

Barn skotið til bana af lögreglumanni í San Diego – MYNDBAND

Heimur

Segir Netanyahu staðráðinn í að ráðast aftur á Gaza: „Mun skapa gríðarleg vandamál“