„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Anna Hansen er komin með fasta stöðu í Aqua: „Það hefur verið nóg að gera“

Anna Hansen er komin með fasta stöðu í Aqua: „Það hefur verið nóg að gera“
Anna, vinstra megin og hin bak­radda­söng­kona Aqua. Mynd: Instagram-skjáskot

Dansk-Norska Europop-hljóm­sveitin hefur fengið íslenskan liðs­styrk.

Sunn­lenska.is segir frá því að söng­konan Anna Hansen frá Leiru­bakka í Land­sveit, sé nýjasti með­limur hljóm­sveit­ar­innar Aqua. Hljóm­sveitin sló í gegn á tíunda ára­tug síð­ustu aldar með lagið Barbie Girl en hefur nú aftur vakið athygli vegna vin­sælda Barbie-kvik­mynd­ar­innar en þar má heyra ábreiðu Nicki Minaj og Ice Spice á Barbie Girl.

Hin lit­ríka Aqua.

Anna Hansen flutti til Dan­merkur fyrir fimmtán árum en það gerði hún til að nema söng við Complete Vocal Institute-skól­ann. Fljót­lega vakti Anna athygli en hún komst meðal ann­ars í 32 manna úrslit í dönsku Voice-sjón­varps­þátt­unum árið 2012. Síðar fór Anna sjálf að kenna við skól­ann en hæfi­leikar hennar spurð­ust út og var hún fengin til að sjá um radd­þjálfun í dönsku X-factor þátt­unum.

Nóg hefur verið að gera hjá band­inu und­an­farið.

Fyrir tveimur árum hóf hún að koma fram sem bak­radda­söng­kona hjá Aqua en nýlega fékk hún fasta stöðu í hljóm­sveit­inni.

„Það hefur verið nóg að gera síðan síð­ast. Í byrjun októ­ber fékk ég fasta stöðu sem bak­rödd í Aqua. Ég hafði verið að leysa af aðeins áður en nú er ég með á öllum tón­leikum. Frá ára­mótum höfum við spilað fullt af tón­leikum á alls­konar stöðum, bæði hér í Danmörku en svo líka til dæmis í Tel Aviv, Mílanó, Þýska­landi, Prag, á Spáni, í London, New York, Los Angeles, Kanada og fleiri stöðum,“ segir Anna í sam­tali við sunn­lenska.is.

Hægt er að lesa allt við­talið við Önnu hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Menning

Menning

Hundurinn hans Dwayne Johnson dó í nótt: „Ég hef verið dofinn yfir þessum missi“

Menning

The Highwaymen heiðraðir í Hörpu: „Fullt af tímalausum smellum og anda kántrítónlistar“

Menning

DJ Khaled og 6ix9ine fengu báðir óhugnanlegar líkkistur sendar heim til sín: „RIP Drake“

Menning

Friðrik Dór hugsar um lygar

Menning

Myrkvi gefur út þriðju breiðskífu sína – Vonast til þess að slá vopnin úr höndum tímans

Menning

Bubbi og Frikki Dór styðja fórnarlömb þjóðarmorðsins á Gaza