„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Arna segir hatur á transfólki heimskulegt: „Það velur engin að vera trans“

Arna segir hatur á transfólki heimskulegt: „Það velur engin að vera trans“
Arna Danks – Mynd: skjáskot RÚV

Arna Danks, bar­áttu­kona, birti í dag ein­lægan og kröft­ugan pistil um stöðu trans fólks á Íslandi.

Í pistli sem bar­áttu­konan birti fyrr í dag snertir hún á ýmsum mál­efnum sem snúa að hinsegin mál­efnum og því bakslagi sem hefur orðið í þeim mála­flokki. Þá tekur hún fyrir upp­lýs­inga­óreiðu sem hefur grass­erað und­an­farnar vikur varð­andi kyn­fræðslu og hinsegin fræðslu í skólum, að ofbeldi birt­ist á marga vegu og mýtur um trans­fólk.

„Ofbeldi birt­ist á marga vegu og aðeins ein birt­ing­ar­mynd þess er sú sem við urðum vitni að þegar ráð­ist var á hinsegin ein­stak­ling sem var að koma af sam-nor­rænni ráð­stefnu um hvernig skuli bregð­ast við því bakslagi sem átt hefur sér stað í mann­rétt­inda­bar­áttu hinsegin fólks.

Önnur birt­ing­ar­mynd ofbeldis er sú þegar ein­stak­lingum og/eða hópum er hótað ofbeldi óbeint í pistla skrifum og á sam­fé­lags­miðlum, bæði í ræðu og riti, á þann hátt að þeim er kennt um það lík­am­lega ofbeldi sem hefur átt sér stað vegna þess að þau voru of hávær, of sýni­leg, kröfð­ust of mik­ils og voru ekki til­búin að sætta sig við það að vera þriðja flokks borg­arar, með þriðja flokks rétt­indi og ekki á neinn hátt fullir þátt­tak­endur í hefð­bundnu leik og starfi. T.d. með því að banna þátt­töku trans fólks í keppn­is­í­þróttum og gera trans fólki erf­ið­ara fyrir að stunda lík­ams­rækt, dans og sund, vegna gegnd­ar­lausa og virki­lega ljóta ummæla um að trans fólk sé ógn við aðra,“ sagði leik­konan í pistl­inum sem birt­ist á Vísi fyrr í dag.

„Stað­reyndin er sú að það velur engin að vera trans, við erum fædd svona og allar full­yrð­ingar um að við veljum að vera trans eru væg­ast sagt heimsku­legar. Af hverju ættum við að velja að vera hluti af einum jað­ar­settasta minni­hluta­hóp jarð­ar­innar? Af hverju ættum við að velja líf þar sem við búum við ógn og áreiti alla daga? Svarið er ein­fald­lega, svo ég end­ur­teki mig svo allt álhatta sam­fé­lagið skilji hvað ég er að segja, við völdum aldrei neitt, við erum gerð svona af nátt­úr­unnar hendi og öll orð­ræða sem snýst að því að gera til­vist okkar tor­tryggi­lega og að reyna að koma í veg fyrir lífs­nauð­syn­lega heil­brigð­is­þjón­ustu trans fólks, er ekk­ert annað en hatur!

Við höfum alltaf verið til og munum halda áfram að fæð­ast og vera til, alveg eins og þegar reynt var að útrýma rauð­hærðum eða örv­hentum, það er ekki hægt að útrýma því sem er með­fædd,“ hélt hún áfram og sagði að það væri rök­leysa að það muni fjölga í hópi þeirra sem sjá eftir að hafa farið í kyn­stað­festandi ferli.

„Ég óska þó þessu hat­urs blinda fólki einskis nema styrk og visku í bar­áttu þess við því tráma sem það hefur svo greini­lega á sál­inni og mæli með að þau gang­ist við líf­inu eins og það raun­veru­lega er, sætt­ist við sjálft sig og aðra og við­ur­kenni að það að lifa líf­inu í bar­áttu gegn mann­rétt­indum, er ekki væn­leg leið til að líða betur eða að ná raun­veru­legum bata.“

Hægt er að lesa allan pistil­inn á Vísi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins