„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Íbúar Laugarneshverfis standa með bágstöddum: „Hvaða ógeðslegu fordómar eru þetta?“

Íbúar Laugarneshverfis standa með bágstöddum: „Hvaða ógeðslegu fordómar eru þetta?“
Smáhýsi í Gufunesi og í Laug­ar­dalnum eru mjög svipuð – Mynd / Róbert Reyn­is­son

Íbúar í Laug­ar­nes­hverfi brugð­ust illa við Facebook-færslu um smá­hýsi í hverf­inu.

„Góðan dag.

Fæ mér göngutúr í dalnum dag­lega.

Nú hefur það skeð sem mörg okkar höfðum áhyggjur af , nú eru sumir ein­stak­ling­arnir sem búa í hús­unum sem þau fengu úthlutað til búsetu í dalnum farnir að safa drasli í kring um húsin, aðal­lega þó einn ein­stak­lingur. Ætli það sé virki­lega ekk­ert eft­ir­lit með þessu fólki? Getum við sætt okkur við þetta ?”

Þannig hljóm­aði færslan umdeilda sem íbúar Laug­ar­nes­hverfis tóku illa í. Forsaga máls­ins er sú að fyrr á árinu voru byggð fimm smá­hýsi fyrir heim­il­is­laust fólk og er verk­efnið á vegum vel­ferð­ar­sviðs Reykja­víkur. Í umræðum um smá­hýsin á und­an­förnum árum hafa verið nokkrar umræður um hvar væri best að koma smá­hýs­unum upp en mik­ill meiri­hluti íbúa hverfs­ins hefur þó tekið vel í þetta úrræði. Flestir íbúar eru á því að hingað til hafi verk­efnið heppn­ast vel. Þó eru ekki allir sam­mála um það eins og færslan hér fyrir ofan gefur til kynna en birt­ist hún í Facebook-hópi fyrir íbúa hverfs­ins. Óhætt er að segja að íbúar hverfs­ins séu ósam­mála upp­hafs­færsl­unni.

„Já er það ekki. Það voru ein­stak­lingar að safna dóti á lóðum í hverf­inu áður þessi byggð kom til sög­unnar. Siðan var líka mann­legt vesen eins og fyll­erí , ofneysla og ofbeldi einnig til staðar,“ sagði einn íbúi.

„Já, ég get sætt mig við þetta. Veit ekki hvort það sé yfir­leitt mitt að vera sáttur eða ósáttur með svona,“ sagði Birkir Fjalar um málið.

„Hvaða ógeðs­legu for­dómar eru þetta, rosa­lega get­uru verið blind mann­eskja að skrifa þennan status sem er svo for­dóma­fullur, og pósta honum á netið, held það se tíma­bært fyrir þig sem og marga aðra for­rétt­inda­blinda að drull­ast til að hugsa sinn gang,“ hljóm­aði ein athuga­semdin.

Tugir athuga­semd hafa nú verið rit­aðar í and­stöðu við færsl­una og virð­ist vera aðeins tveir ein­stak­lingar sem skrifa athuga­semd færsl­unni til stuð­ings. Þá vekur athygli að Björn Jón Bragason, hinn þekkti sagn­fræð­ingur, setti „like“ við upp­hafs­færsl­una en sam­kvæmt heim­ildum Mannlífs býr hann í Árbænum.

Ein­stak­ling­ur­inn sem skrif­aði upp­hafs­færsl­una baðst afsök­unar á henni og sagð­ist hafa meint hana sem gagn­rýni á Reykja­vík­ur­borg.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins