„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Sigfús var vakandi þegar kviknaði í næstu íbúð: „Hún vildi stökkva fram af svölunum“

Sigfús var vakandi þegar kviknaði í næstu íbúð: „Hún vildi stökkva fram af svölunum“
Íbúðin brann illa. Mynd: Lára Garðarsdóttir

Nágranni segir eld­inn hafa breiðst út ansi hratt þegar kvikn­aði í íbúð við hlið­inni á honum í Hafn­ar­firði í nótt.

Mannlíf ræddi við Sigfús Sig­ur­jóns­son en hann var vak­andi þegar eldur kom upp í íbúð hjá ungu fólki í fjöl­býl­is­húsi sem hann býr í í Hafn­ar­firði í nótt en hann er sá sem hringdi í slökkvi­liðið. „Ég var vak­andi og heyrði ein­hver læti og fannst þau koma utan frá og kíkti út og sá þá gríð­ar­lega mik­inn reyk. Svo fór að heyr­ast gler­brestir og svo­leiðis. Ég barði á hurð­ina hjá þeim en þau hafa ekk­ert heyrt því þau hafa öll verið komin út á svalir.“

Sigfús Sig­ur­þórs­son

Aðspurður hvort þetta hafi staðið tæpt svar­aði Sigfús því ját­andi. „Já, þetta var það, íbúðin er gjör­brunnin öll. Og á mjög stuttum tíma, það hefur verið byrjað að kvikna í rétt um tvö, eða fyrir það, það hefur verið búið að krauma heil­lengi.“

Sigfús segir að reyk­lyktin sé nú alls­ráð­andi í fjöl­býl­is­hús­inu. „Já, þetta smit­aði um allt.“ Þá segir hann að íbúum sé mis­brugðið. „Jú, en fólk er svona mis­sjokkerað, þetta er nátt­úr­lega ekk­ert grín. En það sluppu allir við meiðsli og svona en það var ein stúlka að ég held flutt með sjúkra­bíl en ég á ekki von á að það hafi verið eitt­hvað að, þetta hefur verið bara reykur. Ég heyrði í henni að hún vildi stökkva fram af svöl­unum en þetta er á þriðju hæð þannig að það hefði verið svo­lítið vont fyrir hana.“

Eldur frá Rafhlaupahjólum dreifist hratt

Mannlíf ræddi einnig við vakt­stjóra Slökkvi­liðs Höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins og spurði hann út í brun­ann. Aðspurður út í orsak­irnar, hleðsla á raf­magns­hlaupa­hjóli, hvort aukn­ing sé á slíkum brunum, svar­aði hann því ját­andi. „Það virð­ist vera að ger­ast annað slagið. Og okkur finnst svona eins og það sé aukn­ing í þessu ein­hver. Það hafa orðið nokkrir alvar­legir brunar af þessum völdum.“ Sagði varð­stjór­inn að eldar sem verða af völdum hleðslu á raf­magns­hlaupa­hjólum, dreif­ist oft hratt. „Þetta dreif­ist mjög hratt nefni­lega. Það byrjar bara sem smá reykur en svo á örskömmum tíma verður þetta mik­ill eldur.“

En hvað er hægt að gera til að hlaða hjólin á örugg­ari máta?

„Bara með því að vera með rétta hleðslu,“ svar­aði varð­stjór­inn og hélt áfram: „Rétt hleðslu­tæki og vera ekki með þetta lengur í hleðslu en þarf. Og vera með reyk­skynjara nálægt.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins