„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Ferðafélag Íslands og Háskólinn verðlaunuð

Ferðafélag Íslands og Háskólinn verðlaunuð

Ferða­fé­lag Íslands og Háskóli Íslands hlutu nýlega við­ur­kenn­ingu Rannís fyrir vís­inda­miðlun með verk­efn­inu „Með fróð­leik í far­ar­nesti“.Verk­efnið felur í sér fræð­andi göngu­ferðir í nátt­úr­unni þar sem fræða- og vís­inda­fólk HÍ miðlar af þekk­ingu sinni til almenn­ings, barna og ung­menna um fjöl­breyttar rann­sóknir, ekki síst á líf­ríki og umhverfi. Áhersla er lögð á mark­vissa og skemmti­lega fræðslu um leið og boðið er upp á hreyf­ingu og sam­veru fyrir alla fjöl­skyld­una.Fræða­göng­urnar byrj­uðu sem nýj­ung í vís­inda­miðlun til almenn­ings og var þeim strax afar vel tekið af almenn­ingi. Mark­miðið með ferð­unum er að veita fólki á öllum aldri spenn­andi val­kost til að hreyfa sig í borg­ar­land­inu og fá að auki skemmti­legan og afar gagn­legan fróð­leik um rann­sóknir, nýsköpun, vís­indi og fræði og í raun flest það sem ber fyrir augu í göng­unum.

Pöddur og fuglar

Ætlunin í upp­hafi var að brydda upp á ferð­unum sem nýjum vís­inda­miðl­un­ar­val­kosti fyrir fjöl­skyldur á ald­ar­af­mæli Háskóla Íslands 2011 í sam­starfi við Ferða­fé­lag barn­anna sem er angi undir FÍ. Hins vegar urðu vin­sæld­irnar það miklar að ákveðið var að halda verk­efn­inu áfram. Á yfir­stand­andi ári hefur verið met­þátt­taka í öllum ferðum, en aldrei í 12 ára sögu verk­efn­is­ins hafa fleiri mætt í fræða­göng­urnar. Umfjöllun um verk­efnið hefur einnig verið afar ríku­leg í fjöl­miðlum sem hefur aukið áhrif miðl­un­ar­innar á sam­fé­lag.Pöddur, fjara, fuglar, fiskar, sam­fé­lag og sjálf­bærni

Forsetinn mætti

Gríð­ar­legur fjöldi vís­inda­fólks hefur stýrt þessum göngum en lík­lega er eng­inn þekkt­ari en Guðni Th. Jóhann­es­son, pró­fessor í sagn­fræði við HÍ og núver­andi for­seti Íslands. Hann leiddi göngu ásamt Helga Gunn­laugs­syni, pró­fessor í afbrota­fræði við HÍ, en þeir fjöll­uðu um mót­mæli í mið­borg­inni og glæpi og refs­ingu í sögu­legu sam­hengi. Af öðrum við­fangs­efnum má nefna norð­ur­ljós, pöddur, fiska og far­fugla og hvernig megi nýta afurðir nátt­úru Íslands, eins og kræk­ling, jurtir og sveppi. Fræðsla um jarð­fræði, eld­gos og jökla hefur líka verið vin­sæl, auk þess sem rætt hefur verið um sögu, menn­ingu, nýsköpun og sjálf­bærni.

Frá verð­launa­af­hend­ing­unni.

Áslaug Árna Sig­ur­björns­dóttir ráð­herra háskóla, iðn­aðar og nýsköp­unar afhenti verð­launin. Ólöf Kristín Sívert­sen for­seti FÍ veitti verð­laun­unum við­töku fyrir hönd félags­ins og sagði verð­launin fela í sér mik­inn heiður og við­ur­kenn­ingu. Ólöf þakk­aði Háskóla Íslands fyrir frá­bært sam­starf sem og öllum þeim fjöl­mörgu aðilum sem lagt hafa verk­efn­inu lið..

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins