„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Langþráð viðbót við heilbrigðiskerfið komið af stað: „Skapa góðar aðstæður fyrir fólkið“

Langþráð viðbót við heilbrigðiskerfið komið af stað: „Skapa góðar aðstæður fyrir fólkið“
Heil­brigð­is­ráð­herra, Willum Þór Þórsson, tók í dag fyrstu skóflustung­una að nýrri við­bygg­ingu við Grens­ás­deild Land­spít­ala. Auk ráð­herra tóku skóflustung­una Runólfur Pálsson for­stjóri Land­spít­ala, Svava Magn­ús­dóttir full­trúi Hollvina Grens­ás­deildar, Arnar Helgi Lárusson for­maður SEM sam­tak­anna svo og starfs­menn Grens­ás­deildar þær Guðbjörg Efemía Magn­ús­dóttir og Eirík­sína Kr. Haf­steins­dóttir. – myndin er ekki sam­sett

Fyrsta skóflustungan að nýrri við­bygg­ingu við Grens­ás­deild Land­spít­ala var tekin í dag

Stefnt að því að stækkun Grens­ás­deildar verði tekin í notkun 2027.

„Grens­ás­deild er end­ur­hæf­ing­ar­deild Land­spít­ala, en þangað koma sjúk­lingar til end­ur­hæf­ingar eftir að hafa lokið með­ferð á öðrum deildum spít­al­ans. Algeng­ast er að sjúk­lingar komi í sér­hæfða sjúkra- og iðju­þjálfun, tal­þjálfun eða við­töl og með­ferðir hjá fjöl­mörgum sér­fræð­ingum end­ur­hæf­ing­ar­deild­ar­innar. Núver­andi hús­næði Grens­ás­deildar er komið til ára sinna og styður ekki við nýj­ustu þekk­ingu og þróun hjálp­ar­tækja og bún­aðar í end­ur­hæf­ingu mænu­skað­aðra og mikið slas­aðra ein­stak­linga.

Nýbygg­ingin sem verður um 4.400 m2 að stærð verður sér­sniðin fyrir þjálf­un­ar­starf­semi Grens­ás­deildar og nýja legu­deild, en einnig verður þar nýr mat­salur og ýmis önnur sam­veru­rými ásamt til­heyr­andi stoð­rýmum. Áhersla verður á þarfir sjúk­lings­ins til end­ur­hæf­ingar og upp­bygg­ingar, en einnig á vel­ferð starfs­fólks, aðgengi fyrir alla og góða hljóð­vist, ljós­vist og inni­vist,“ sagði í frétta­til­kynn­ingu um deild­ina.

„Ég er viss um að þessi lang­þráða við­bót við Grens­ás­deild­ina eigi eftir að reyn­ast starf­sem­inni vel. Í allri heild­ar­upp­bygg­ingu Land­spít­al­ans er nauð­syn­legt að halda því til haga að það er verið að fjár­festa í steypu, veggjum og öðrum innviðum til þess eins að skapa góðar aðstæður fyrir fólkið innan veggj­anna. Við erum því fyrst og fremst að fjár­festa í fólki og byggja undir áfram­hald­andi öfl­uga heil­brigð­is­þjón­ustu,“ sagði Willum Þór Þórsson, heil­brigð­is­ráð­herra, um málið.

„Verk­efnið við Grensás er eitt af fjöl­mörgum sem Nýr Land­spít­ali ohf. sinnir og það fyrsta sem félagið sinnir utan fram­kvæmda­girð­ing­ar­innar á Hring­braut. Nú þegar hönnun er langt komin og jarð­vinna er að hefj­ast þá tekst NLSH á við nýjar áskor­anir að byggja í þegar byggðu hverfi. Umhverfis- og örygg­is­málin eru alltaf hjá félag­inu í önd­vegi og munu verða það í þessu verk­efni líka. Mark­miðið er að verk­legar fram­kvæmdir séu unnar í sátt við allt og alla,“ sagði Gunnar Svav­ars­son fram­kvæmda­stjóri Nýs Land­spít­ala ohf.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins