„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Emil kjúklingakarl er Pepsi Max fíkill: „Neysla er líklega stærsta vandamálið“

Emil kjúklingakarl er Pepsi Max fíkill: „Neysla er líklega stærsta vandamálið“
Emil Ólafur er Neytandi vik­unnar

Emil Ólafur Ragn­ars­son heiti ég, giftur með eitt barn. Búsettur í Hval­fjarð­ar­sveit, fæddur í Reykja­vík, upp­al­inn í Dýra­firði og Kjós. Starfa sem bústjóri á kjúklinga­búi. Hef einnig búið hér og þar á höf­uð­borg­ar­svæð­inu.

Gerir þú verðsamanburð á vörum og þjónustu?

Já, ætli maður geri það ekki, þó er ég ekki með það nið­ur­skrifað í excel skjal. En maður reynir að taka eftir verði á því sem maður kaupir og sjá hvort maður sé að gera góð kaup eða ekki. Þá einna helst á mat­vöru og elds­neyti.

Hvernig sparar þú í matarinnkaupum?

Það sem hefur virkað best fyrir okkur er að skipu­leggja mat­ar­inn­kaupin vel, vita hvað við ætlum að kaupa áður en við löbbum inn í búð­ina. Að gera mat­seðil fyrir vik­una er mjög góð leið til þess að spara, það fækkar búð­ar­ferðum veru­lega mikið og þá eru minni líkur á að dýrir hlutir eins og nammi og snakk rati í körf­una. Við höfum líka passað að elda alltaf mat­inn sjálf, en ekki kaupa skyndi­bita og þess háttar. Nema í ein­staka til­fellum, enda búum við á þannig stað að það þarf að keyra dálitla leið eftir svo­leiðis fæði.

Endurnýtir þú? Ertu með ráð til annarra?

Já, það er alveg hægt að segja að við end­ur­nýtum. Það getur sparað manni nokkrar krón­urnar að end­ur­nýta. Við höfum verslað þónokkur notuð hús­gögn og hluti yfir ævina á mörk­uðum og á inter­net­inu, Bland.is og Facebook. Við höfum end­ur­nýtt t.d. afmæliskort og önnur tæki­fær­iskort með því að klippa not­uðu síð­una í burtu og nota bak­síð­una á for­síðu­mynd­inni, konan mín á alfarið heið­ur­inn af þeirri hug­mynd, bráð­snjallt alveg. Flestir pokar sem koma inn á heim­ilið, plast­pokar og bréf­pokar, eru end­ur­nýttir undir rusl. Líklega er ég að gleyma ein­hverju.

Hvað hefur þú í huga þegar þú kaupir mat, fatnað og gjafir?

Það fer algjör­lega eftir hvað ég er að kaupa, gæði „versus“ verð er mér ofar­lega í huga í fata og tækja inn­kaupum. Það borgar sig ekki alltaf að kaupa það ódýrasta. Oft reynir maður að stíla inn á útsölur og þess háttar. Við höfum líka nýtt inter­netið í fata­kaup og jóla­gjafa­kaup, þar sem það er auð­veld­ara að finna góð verð þar. Í mat­ar­inn­kaupum þá er það lík­lega svipað, ég reyni að prófa að kaupa ódýru týpuna af flestu sem ég er að kaupa í mat­inn, eins og t.d. Euros­hopper vör­urnar. Þær eru í flestum til­fellum ódýr­ari, en ekki alltaf betri. En maður veit það ekki fyrr en maður prófar. Held mig samt oft­ast við að kaupa inn­lenda fram­leiðslu á kjöt­vöru, enda starfa ég í þeim geira.

Hverju átt þú erf­ið­ast með að draga úr kaupum á?

Ég er ótta­legur snakk­ari og popp­ari, Pepsi Max fík­ill í þokka­bót. Svo er það nikó­tínið, maður. Þetta eru svona hlutir sem maður hefur reynt að draga úr á lífs­leið­inni en hefur átt erfitt með.

Skiptir umhverf­is­vernd þig máli?

Það er rosa­lega auð­velt að segja já við þess­ari spurn­ingu og segj­ast svo flokka ruslið og skila inn dósum. Dósunum skila ég fyrir pen­ing­inn. Ruslið flokka ég því maður verður víst að gera það. En ég hef alltaf verið á þeirri skoðun að flokkun á heim­il­issorpi sé ekki nóg til þess að segj­ast vera að vernda umhverfið. Mér finnst mjög skrítið að flokka pappír, sem er svo tek­inn og seldur til útlanda, búinn til kló­sett­pappír úr honum, svo er honum siglt aftur til Íslands þar sem við setjum hann í kló­settið. Ég sé ekki hvernig það ætti að hjálpa umhverf­inu á nokkurn hátt, það býr vissu­lega til pen­inga fyrir ein­hverja, en ekki mig.

Hins­vegar kasta ég ekki rusli út í nátt­úr­una. Og mér þykir mik­il­vægt að við sem mann­kyn verndum umhverfið eins og við getum. Þar þyrftum við fyrst og fremst að pressa á stór­fyr­ir­tækin að minnka t.d. plast­notkun og elds­neyt­is­notkun. En ef við ætlum og viljum lifa í kap­ít­al­ísku sam­fé­lagi þá verður það seint umhverf­is­vænt, þar sem neysla er lík­lega stærsta vanda­málið í bar­átt­unni við lofts­lags­vand­ann. Þannig að ég hugsa að umhverf­is­vernd skipti mig máli upp að vissu marki, því ég vil geta keypt pasta frá Ítalíu, osta frá Frakk­landi, avocado frá Spáni, vín frá Síle o.s.frv. En geri mér grein fyrir því að það er ekki umhverf­is­vænt. En þá flokka ég til þess að róa sam­visk­una.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

neytandi vikunnar

Borgarfulltrúinn sem vill kaupa falleg föt: „Ákveðnar verslanir ættu að taka sig á“
Innlentneytandi vikunnar

Borg­ar­full­trú­inn sem vill kaupa fal­leg föt: „Ákveðnar versl­anir ættu að taka sig á“

Kjartan Magn­ús­son er 55 ára borg­ar­full­trúi Sjálf­stæð­is­flokks­ins. Kjartan býr í Vest­ur­bænum og starf­aði árum saman sem blaða­maður Morg­un­blaðs­ins. Kjartan er Neytandi Mannlífs. Gerir þú verð­sam­an­burð á vöru og þjón­ustu? Já, ég ber gjarnan saman verð á vörum og þjón­ustu því ég veit að það getur verið mjög mis­mun­andi á milli versl­ana. Reyndar finnst mér tölu­vert vanta upp á verð­merk­ingar í...
Tómas er fótboltaverkfræðingur sem vill gott úrval: „Löngun samhliða þörf“
Innlentneytandi vikunnar

Tómas er fót­bolta­verk­fræð­ingur sem vill gott úrval: „Löngun sam­hliða þörf“

Tómas Joð Þor­steins­son er 34 ára gam­all bygg­ing­ar­verk­fræð­ingur. Hann starfar hjá Eykt ehf við upp­bygg­ingu Nýja Lands­spít­al­ans og spil­aði 141 leiki með Fylki í efstu deild í knatt­spyrnu. Tómas býr ásamt kær­ustu og tveimur börnum þeirra í Garðabæ. Hann er neyt­andi vik­unnar. Gerir þú verð­sam­an­burð á vörum og þjón­ustu? Já ég geri oft verð­sam­an­burð, sér­stak­lega við mat­ar­inn­kaup heim­il­is­ins og ýmsa...
Gerir unnustu sína brjálaða með tuði: „Endar í geymslunni“
Innlentneytandi vikunnar

Gerir unn­ustu sína brjál­aða með tuði: „Endar í geymsl­unni“

Arnar Freyr Gunn­steins­son er 34 ára, fæddur og upp­alin á Sel­tjarn­ar­nesi. Hann er þjón­ustu­full­trúi hjá BL og bassa­leik­ari Ultra Mega Technobandsins Stefáns. Arnar býr ásamt Jóhönnu, unn­ustu hans, í Árbænum. Arnar er Neytandi vik­unnar. Gerir þú verð­sam­an­burð á vörum og þjón­ustu? Já, ég skoða alltaf verð á sam­bæri­legum vörum þegar ég er að versla í keðj­unum. Get stundum gert Jóhönnu...
Hjálmar gaf vini sínum dósatunnu: „Tek alltaf plast með mér erlendis og hendi því þar“
Innlentneytandi vikunnar

Hjálmar gaf vini sínum dósa­tunnu: „Tek alltaf plast með mér erlendis og hendi því þar“

Hjálmar Örn Jóhanns­son er 49 ára verka­maður og skemmti­kraft­ur­bú­settur í Reykja­vík. Hann er fjög­urra barna barna faðir og einn fyndn­asti núlif­andi Íslend­ing­ur­inn. Hjálmar er Neytandi vik­unnar. Gerir þú verð­sam­an­burð á vörum og þjón­ustu? Hef ekki gert það. Hvernig sparar þú í mat­ar­inn­kaupum? Get ekki sagt að það sé minn sterkasti kostur að spara því miður. End­ur­nýtir þú? Ertu með ráð...
Þingmaðurinn sem veiðir sér til matar: „Matarsóun er mikið vandamál og við þurfum að gera betur“
Innlentneytandi vikunnar

Þing­mað­ur­inn sem veiðir sér til matar: „Mat­ar­sóun er mikið vanda­mál og við þurfum að gera betur“

Jódís Skúla­dóttir er 45 ára Fell­bæ­ingur og þing­maður Norð­aust­ur­kjör­dæmis fyrir Vinstri­hreyf­ing­una grænt fram­boð. Hún er stúd­ent frá Mennta­skól­anum á Egils­stöðum og er með BS-próf í við­skipta­lög­fræði frá Háskól­anum á Bifröst. Þá er hún með ML-próf í lög­fræði úr Háskóla Reykja­víkur. Jódís er fjög­urra barna móðir. Hún er þekkt fyrir hress­leika og húmor og fyrir mik­inn sann­fær­ing­ar­kraft. Jódís er Neytandi vik­unnar....
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins