Hjálmar Örn Jóhannsson er 49 ára verkamaður og skemmtikrafturbúsettur í Reykjavík. Hann er fjögurra barna barna faðir og einn fyndnasti núlifandi Íslendingurinn. Hjálmar er Neytandi vikunnar.
Gerir þú verðsamanburð á vörum og þjónustu?
Hef ekki gert það.
Hvernig sparar þú í matarinnkaupum?
Get ekki sagt að það sé minn sterkasti kostur að spara því miður.
Endurnýtir þú? Ertu með ráð til annarra?
Mæli með því fyrir fólk að endurnýta!
Hvað hefur þú í huga þegar þú kaupir mat, fatnað og gjafir?
Ég hlusta á fólk allt árið og kaupi svo eitthvað sem fólki langar í. Sem dæmi þá er Helgi Jean vinur minn í veseni með dósir og því fær hann frá mér dósatunnu þar sem hann getur sett dósirnar sínar í.
Hverju átt þú erfiðast með að draga úr kaupum á?
Tottenham-treyjum
Skiptir umhverfisvernd þig máli?
Já, ég sem dæmi tek alltaf plast með mér erlendis og hendi því þar.
Annað sem þú vilt taka fram?
Gerum betur við getum það!


























Athugasemdir