„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Biskupinn bítur frá sér: „Ég hef sinnt starfi mínu með köllun í hjarta og huga“

Biskupinn bítur frá sér: „Ég hef sinnt starfi mínu með köllun í hjarta og huga“
Agnes M. Sig­urð­ar­dóttir biskup.

Agnes M. Sig­urð­ar­dóttir biskup sendi frá sér yfir­lýs­ingu þar sem hún seg­ist ætla að áfrýja nið­ur­stöðu úrskurð­ar­nefndar þjóð­kirkj­unnar, um að kikju­þing hafi brugð­ist skyldum sínum.

Bisk­upinn seg­ist taka nið­ur­stöðu úrskurð­ar­nefndar þjóð­kirkj­unnar um að hún hafi verið van­hæf til að gegna emb­ætti sínu frá því að skip­un­ar­tími hennar rann út þann 1. júlí 2022, alvar­lega. Í yfir­lýs­ingu sem Agnes sendi frá sér í gær­kvöldi seg­ist hún telja rétt að áfrýja nið­ur­skurð­inum „með hags­muni þjóð­kirkj­unnar að leið­ar­ljósi.“

Segist Agnes hafa í starfi sínu hafa beitt sér sér­stak­lega fyrir því að taka á ofbeld­is­málum innan kirkj­unnar. „Ég er stolt að því en átta mig um leið á því að það geti verið umdeilt af hálfu þeirra ein­stak­linga sem um ræðir.“ Þá segir hún stuðn­ing vígslu­bisk­up­anna í Skál­holti og á Hólum hafa verið henni ómet­an­legur og mik­il­vægur í krefj­andi „þegar reynir á stjórn­sýslu­legan styrk í stöku málum.“ Bætti hún við: „Þá er ég afar þakk­lát þeim stuðn­ingi sem prestar og djáknar sýndu mér og þjóð­kirkj­unni í sumar með  yfir­lýs­ingum.“

Yfir­lýs­ing­una má lesa í heild hér fyrir neðan:

Frá bisk­upi Íslands 

Á grund­velli köll­unar minnar til að þjóna þjóð­kirkj­unni gaf ég kost á mér til emb­ættis bisk­ups Íslands  og var kosin af fólk­inu í kirkj­unni árið 2012 til þeirra starfa. Fimm árum síðar árið 2017 var umboð mitt fram­lengt á for­sendum sömu kosn­ingar. Þegar þjóð­kirkjan fékk aukið sjálf­stæði með lögum árið  2021 fylgdu skýr skila­boð frá rík­inu um að kirkju­þing þyrfti að setja reglur um það hvernig þessum málum væri háttað. Öllum skyldi tryggð sömu rétt­indi.  

Nú hefur úrskurð­ar­nefnd þjóð­kirkj­unnar kom­ist að þeirri nið­ur­stöðu að kirkju­þing hafi brugð­ist  þess­ari skyldu sinni. Ég tek það alvar­lega. Mik­il­vægt er nú að fá nið­ur­stöðu dóm­stóla um málið. Þess vegna tel ég rétt að áfrýja þess­ari nið­ur­stöðu með hags­muni þjóð­kirkj­unnar að leið­ar­ljósi. 

Framundan á næsta ári eru bisk­ups­kosn­ingar, eins og komið hefur fram í máli kjör­stjórnar  þjóð­kirkj­unnar, þar sem fólkið í kirkj­unni mun kjósa sér nýjan biskup til næstu ára. Ég hef hvatt for­seta kirkju­þings til að tryggja og skýra stöðu bisk­ups Íslands til fram­búðar. 

Ég hef beitt mér sér­stak­lega fyrir því að taka á ofbeld­is­málum innan kirkj­unnar til þess að kirkjan sé öruggur staður. Ég er stolt að því en átta mig um leið á því að það geti verið umdeilt af hálfu þeirra ein­stak­linga sem um ræðir.  

Vígslu­bisk­up­arnir í Skál­holti og á Hólum hafa verið mér sam­stíga alla mína bisk­ups­tíð og verið mér styðj­andi kollegar í mörgum krefj­andi málum. Það er stuðn­ingur sem er bæði ómet­an­legur og  mik­il­vægur þegar reynir á stjórn­sýslu­legan styrk í stöku málum. 

Þá er ég afar þakk­lát þeim stuðn­ingi sem prestar og djáknar sýndu mér og þjóð­kirkj­unni í sumar með  yfir­lýs­ingum. 

Ég hef sinnt starfi mínu sem biskup Íslands með köllun í hjarta og huga. Á þeirri veg­ferð hafa orðið grund­vallandi breyt­ingar á þjóð­kirkj­unni sem ég tel efla og móta kirkj­una til að takast á við bjarta fram­tíð kristni í land­inu. Ég er stolt af kirkj­unni minni, fólk­inu sem hana myndar, þjónar og starfar um land allt. Það er hin eig­in­lega þjóð­kirkja. 

Reykja­vík, mánu­dag­inn 16. októ­ber 2023 

Agnes M. Sig­urð­ar­dóttir 

biskup Íslands

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins