„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Hödd segir kirkjuna hafa eytt 10 milljónum í málskostnað fyrir Agnesi á árinu

Hödd segir kirkjuna hafa eytt 10 milljónum í málskostnað fyrir Agnesi á árinu
Hödd Vil­hjálms­dóttir

Hödd Vil­hjálms­dóttir, almanna­teng­ill og lög­fræð­ingur tekur upp hansk­ann fyrir séra Gunnar Sig­ur­jóns­son, sem Agnes M. Sig­urð­ar­dóttir biskup, leysti frá störfum vegna ásak­ana sam­starfs­kvenna Gunnars um ein­elti hans.

Vísir birti í dag pistil frá Hödd Vil­hjálms­dóttur, almanna­teng­ill og lög­fræð­ingur, þar sem hún gerir sér mál­efni þjóð­kirkj­unnar að umræðu­efni. Vitnar hún í pistl­inum í orð Agnesar M. Sig­urð­ar­dóttur bisk­ups, sem birt­ust í yfir­lýs­ingu hennar eftir að úrskurð­ar­nefnd þjóð­kirkj­unnar komst að þeirri nið­ur­stöðu að Agnes hefði verið setið valda­laus í emb­ætti frá því að skip­un­ar­tími hennar rann út 1. júlí 2022. Sagði Agnes meðal ann­ars að „öllum skyldi tryggð sömu rétt­indi“ og „Ég hef beitt mér sér­stak­lega fyrir því að taka á ofbeld­is­málum innan kirkj­unnar til þess að kirkjan sé öruggur staður.“ Hödd segir að frá því að skip­un­ar­tími hennar hafi runnið út, hafi landið „í raun verið bisk­ups­laust“ en að það hafi „ekki aftrað frú Agnesi frá því, í nafni emb­ætt­is­ins sem hún eitt sinn gegndi, að taka stórar og afdrifa­ríkar ákvarð­anir sem koll­varpað hafa lífi ein­stak­linga.“

Því næst nefnir Hödd sem dæmi að fyrir tæpum tveimur árum hefði bisk­upinn „fyrr­ver­andi“ hafa leyst Gunnar Sig­ur­jóns­son sókn­ar­prest Digra­nes­presta­kalls, frá störfum vegna ásak­ana sam­starfs­kvenna hans um ein­elti af hans hálfu.

Rekur Hödd svo í pistl­inum mál Gunnars, sem hafði unnið að því að sam­eina Digranes- og Hjalla­kirkju­presta­köll og óskað eftir aðstoð mannauðs­stjóra kirkj­unnar við þá vinnu en ekki fengið þá aðstoð. Í kjöl­far brott­rekstrar Gunnars hafið teymi þjóð­kirkj­unnar af stað rann­sókn um ávirð­ingar á hendur Gunnari en teymið hafi skilað áliti sínu 27. júlí í fyrra. „Af þeim 48 atriðum sem borin voru á Gunnar komst teymi kirkj­unnar að þeirri nið­ur­stöðu að í fjórum þeirra hafi hann sýnt af sér hegðun sem þætti óæski­leg. Eins taldi teymið Gunnar mögu­lega hafa brotið gegn ákvæðum reglu­gerðar um ein­elti. Þar sem það meg­in­skil­yrði ein­eltis að um ítrek­aða hegðun sé að ræða var ekki upp­fyllt, átti það ekki við í til­felli Gunnars. Um ein­angruð til­vik voru að ræða.“ Segir Hödd að þess­ari nið­ur­stöðu hefði teymið kom­ist að „Þessari nið­ur­stöðu komst teymið að þótt það hafi í máls­með­ferð sinni virt sönn­un­ar­reglu íslenskra laga að vettugi og það eðli­lega sök­uðum Gunnari í óhag.“

Þá segir Hödd að Agnes hafi í stað þess að gefa út yfir­lýs­ingu um sak­leysi Gunnars hafi hún þess í stað sent yfir­lýs­ingu á fjöl­miðla þar sem Gunnar var sagður hafa verið fund­inn sekur um ein­elti í sex til­vikum. „Það er ekk­ert minna en alrangt. Orð frú Agnesar höfðu eðli­lega mikil áhrif úti í sam­fé­lag­inu enda töldu fjöl­miðlar og lands­menn flestir að um biskup Íslands væri að ræða – og hann færi jú með rétt mál.“

Hödd seg­ist hafa fyrir því heim­ildir að þjóð­kirkjan hafi „að fyr­ir­skipan fyrrum bisk­ups“ eytt ríf­lega 10 millj­ónum króna í lög­manns­kostnað fyrir Agnesi, frá árs­byrjun 2023 og fram í sept­em­ber, vegna máls úrskurða­nefnd­ar­innar. „ Það er þá bara fyrir fyrstu níu mán­uði þessa árs og eru þá ótaldar þær upp­hæðir sem greiddar hafa verið árin þar á undan vegna heild­ar­máls­ins.“

Hægt er að lesa pistil­inn í heild sinni hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins