„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Sigmundur fór til fjallsins – Hjartaáfall á Esjunni og 3623 ferðir á Úlfarsfell

Sigmundur fór til fjallsins – Hjartaáfall á Esjunni og 3623 ferðir á Úlfarsfell
Sig­mundur Stef­áns­son hefur farið yfir 3200 sinnum á Úlf­ars­fell. Mydn: Reynir Trausta­son. Mynd: Reynir Traustason.

„Ég er venju­lega klukku­stund upp og niður fjallið,“ segir Sig­mundur Stef­áns­son, fyrr­ver­andi starfs­maður Skatts­ins, sem und­an­farin átján ár hefur gengið hvorki meira né minna en 3263 ferðir á Úlf­ars­fell. Enginn vafi leikur á því að Sig­mundur, sem er 76 ára, á Íslands­met sem seint verður slegið. Hann sagði í sam­tali við Mannlíf að göng­urnar skiptu hann öllu máli. Þetta ævin­týri hans hófst árið 2005. Hann fór rólega af stað.

„Fyrsta árið fór ég 40 sinnum á fjallið. Um ára­mótin 2005 og 2006 setti ég mér það árta­móta­heit að fara 100 ferðir. Ég stóð við það,“ segir Sig­mundur sem síðar náði að fara upp í 294 ferðir á einu ári.

„Ég fékk hjarta­á­fall“

Sig­mundur seg­ist ganga á jöfnum hraða og ekki of hratt. Hann hefur lært af bit­urri reynslu að kapp er best með for­sjá.

„Ég fékk hjarta­á­fall á Esjunni fyrir nokkrum árum. Ég datt niður og það þurfti að bera mig niður fjallið. Ég var með með­vit­und allan tím­ann. Ég var fluttur á spít­ala og settur í hjarta­þræð­ingu. Þá kom í ljós að ég var með stíflu í kransæðum,“ segir Sig­mundur.

Framan af göng­unum á Úlf­ars­fell bjó Sig­mundur í Graf­ar­vogi og þurftu að aka að fjall­inu til að fara í göng­urnar. Hann og eig­in­kona hans ákváðu seinna að minnka við sig hús­næðið. Þá var svo við að þeim bauðst íbúð á Úlf­arsár­dal, í skjóli fjalls­ins sem var honum svo kært. Þau slógu til. Sig­mundur fór til fjalls­ins og er nú í göngu­færi.

„Fjallið blasir við mér út um glugg­ann. Nú sleppi ég bílnum og geng á fjallið og nýt lífs­ins,“ segir Sig­mundur.

Hann seg­ist ekki vilja missa úr göngur því þá versnar líðan hans.

„Mér líður betur með að fara í reglu­bundnar göngur á fjallið. Ef það falla úr dagar þá finnst mér eitt­hvað vanta,“ segir Sig­mundur.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins