„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Segir Svandísi vinna gegn bændum: „Dugir ekki lengur að ráðherra sendi ungum bændum fingurkoss“

Segir Svandísi vinna gegn bændum: „Dugir ekki lengur að ráðherra sendi ungum bændum fingurkoss“
Högni Elfar Gylfason er ósáttur við stöð­ina

Högni Elfar Gylfason telur yfir­völd vera svíkja bændur.

Vara­þing­mað­ur­inn og sauð­fjár­bónd­inn Högni Elfar Gylfason telur að stjórn­völd á Íslandi standi ekki með bændum og séu í raun að vinna gegn þeim. Högni ræðir stöðu bænda í nýjum pistli.

„Eftir ára­langan barn­ing bænda við að ná endum saman undir reglu­verki stjórn­valda, síminnk­andi stuðn­ingi þeirra og í sam­keppni stór­auk­inn inn­flutn­ing erlendra land­bún­að­ar­vara sem gerður er með vit­und og vilja rík­is­stjórn­ar­flokk­anna er komið að kross­götum. Margir bændur og þá helst sauð­fjár­bændur hafa árum saman orðið að ná sér í tekjur með auka­vinnu utan búa sinna. Á því hefur nú orðið sú breyt­ing að kúa­bændur hafa bæst í þann hóp því búin bera ekki að greidd séu nein laun, þ.e. ef bank­arnir eiga að fá sína okur­vexti greidda á réttum tíma. Verst er ástandið hjá þeim sem farið hafa í end­ur­bætur og upp­bygg­ingu, ásamt þeim sem nýlega hafa keypt bújarðir og hafið búskap, vegna gíf­ur­lega hás vaxta­stigs. Þetta vaxta­stig hefur ekk­ert með rekstur í sveitum að gera, heldur er það að miklu leyti til komið vegna óráðsíu í fjár­málum rík­is­ins sem hefur valdið þenslu í þjóð­fé­lag­inu. Ýmsar aðrar ástæður liggja einnig að baki s.s. þensla á hús­næð­is­mark­aði og atvinnu­mark­aði í þétt­býl­inu,“ sagði vara­þing­mað­ur­inn knái í pistli sem birt­ist á Vísi um málið en í gær var hald­inn fundur hjá Samtökum ungra bænda. Þar segir Högni frá að Svandís Svav­ars­dóttir, mat­væla­ráð­herra, hafi mætt og sagt að ekki væru til pen­ingar til að hjálpa ungum bændum.

„Nú þegar grafal­var­legt ástandið er svo hressi­lega komið upp á yfir­borðið er rétt að benda á að enn vinnur Svandís Svav­ars­dóttir mat­væla­ráð­herra ein­arð­lega gegn því að ungir bændur fái “Laun fyrir lífi” eins og þeir eru að fara fram á. Hún hefur nefni­lega boðað að 1.nóv­em­ber næst­kom­andi muni hún veita einni grein land­bún­aðar tækni­legt rot­högg með því að fella niður reglu­gerð um blóð­töku úr hryssum og taka í stað­inn upp reglu­gerð Evr­ópu­sam­bands­ins sem gerð er til verndar dýra sem eru svo óheppin að vera notuð í til­raunum á til­rauna­stofum, s.s. músum, rottum og apa­köttum. Eftir lestur reglu­gerð­anna verður engan­vegin séð hvernig rétt geti talist að fella blóð­mera­hald undir inn­fluttu reglu­gerð­ina. Hins­vegar kemur þar ber­lega í ljós að úti­lokað er að stunda þessa grein land­bún­aðar undir nýju regl­unum. Því kalla ég það tækni­legt rot­högg þegar ráð­herra bannar ekki bein­línis starfs­sem­ina en kemur í veg fyrir að hægt sé að stunda hana.“

„Bráða­að­gerða er þörf og um leið þurfa mat­væla­ráð­herra og rík­is­stjórn að hætta að vega að bændum með óþarfa hækk­unum gjalda og nið­ur­rifs­starfs­semi á mögu­leikum bænda til að afla sér tekna.

Nú dugir ekki lengur að ráð­herra sendi ungum bændum fing­ur­koss og fal­legt bros,“ sagði Högni að lokum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins