„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Tómas er fótboltaverkfræðingur sem vill gott úrval: „Löngun samhliða þörf“

Tómas er fótboltaverkfræðingur sem vill gott úrval: „Löngun samhliða þörf“
Tómas Joð er neyt­andi vik­unnar – myndin er sam­sett

Tómas Joð Þor­steins­son er 34 ára gam­all bygg­ing­ar­verk­fræð­ingur. Hann starfar hjá Eykt ehf við upp­bygg­ingu Nýja Lands­spít­al­ans og spil­aði 141 leiki með Fylki í efstu deild í knatt­spyrnu. Tómas býr ásamt kær­ustu og tveimur börnum þeirra í Garðabæ. Hann er neyt­andi vik­unnar.

Gerir þú verðsamanburð á vörum og þjónustu?

Já ég geri oft verð­sam­an­burð, sér­stak­lega við mat­ar­inn­kaup heim­il­is­ins og ýmsa þjón­ustu sem þarf að nýta sér í dag­legu lífi. Einnig snýst starfið mitt oft á tíðum  mikið um að gera verð­sam­an­burð á vörum & þjón­ustu.  Að mínu mati snýst verð­sam­an­burður þó ekki ein­ungis að meta tvö hluti með til­liti til þess hvaða krónur þær kosta heldur þarf einnig að taka til­lit til gæða hverrar vöru og þjón­ustu hverju sinni.

Hvernig sparar þú í matarinnkaupum?

Sparn­að­ur­inn liggur aðal­lega í að fara í magninn­kaup á ýmsum vörum og mat sem tengj­ast heim­il­inu, sem sparar einnig tíma að þurfa ekki að fara oft í búð­irnar.

Endurnýtir þú?

Já við fjöl­skyldan reynum að end­ur­nýta ýmsa hluti, til dæmis föt fyrir börnin. Það er hægt að gera mjög góð kaup hjá Barna­lopp­unni og einnig er oft hægt að spyrj­ast fyrir hjá stór­fjöl­skyld­unni eða vinum hvort ein­hver eigi t.d auka stíg­vél fyrir krakk­ana sem væri hægt að fá lánað í nokkra mán­uði þangað til þau vaxa í næstu stærð.

Ertu með ráð til annarra?

Mín ráð væru að hugsa aðeins fram í tím­ann og skipu­leggja mat­ar­inn­kaupin nokkuð vel, einnig myndi ég mæla sterk­lega með að vera ekki að gera ekki mikið af spont­ant kaupum, frekar að staldra við í nokkra daga og hugsa hvort maður virki­lega þurfi á þessum hlut að halda, ég hef sjálfur beitt þeirri aðferð þegar kemur að fata inn­kaupum, manni langar að sjálf­sögðu í allt og ýmis­legt en það þarf að vera genuine löngun sam­hliða þörf sem mér finnst rétt­læta kaupin.

Hvað hefur þú í huga þegar þú kaupir mat, fatnað og gjafir?

Efst í huga við mat­ar­inn­kaupum er að gefa fjöl­skyld­unni að borða svo þau verði ekki svöng.  Innkaup á fatn­aði þessa dag­ana felst aðal­lega í að hugsa um hvað börn­unum vantar næst, þau stækka svo hratt á þessum aldri og þurfa tals­verða end­ur­nýjun á fötum. Gjafainn­kaup ráð­ast aðal­lega af því að reyna finna gjöf sem ein­hverjum langar í og er nyt­sam­legt.

Hverju átt þú erfiðast með að draga úr kaupum á?

Mér finnst ég eiga erf­ið­ast að sleppa tak­inu á að vera áskrif­andi af ýmsum streym­isveitum, vil oft eiga mögu­leik­ann á því að horfa á ein­hverja þætti/fót­bolta­leiki og vil hafa úrvalið.

Skiptir umhverfisvernd þig máli?

Já hún skiptir mig tölu­vert miklu máli. Mörg fyr­ir­tæki hafa verið að gera vel í þessum málum, eins og t.d Te&Kaffi að skipta yfir í umhverf­is­vænni umbúðir. Mér finnst að neyt­endur þurfi almennt að bera ábyrgð á  hverju þeir velja og ættu frekar að velja umhverf­is­vænni kost.

Annað sem þú vilt taka fram?

Áfram Ísland! Takk fyrir mig.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

neytandi vikunnar

Borgarfulltrúinn sem vill kaupa falleg föt: „Ákveðnar verslanir ættu að taka sig á“
Innlentneytandi vikunnar

Borg­ar­full­trú­inn sem vill kaupa fal­leg föt: „Ákveðnar versl­anir ættu að taka sig á“

Kjartan Magn­ús­son er 55 ára borg­ar­full­trúi Sjálf­stæð­is­flokks­ins. Kjartan býr í Vest­ur­bænum og starf­aði árum saman sem blaða­maður Morg­un­blaðs­ins. Kjartan er Neytandi Mannlífs. Gerir þú verð­sam­an­burð á vöru og þjón­ustu? Já, ég ber gjarnan saman verð á vörum og þjón­ustu því ég veit að það getur verið mjög mis­mun­andi á milli versl­ana. Reyndar finnst mér tölu­vert vanta upp á verð­merk­ingar í...
Gerir unnustu sína brjálaða með tuði: „Endar í geymslunni“
Innlentneytandi vikunnar

Gerir unn­ustu sína brjál­aða með tuði: „Endar í geymsl­unni“

Arnar Freyr Gunn­steins­son er 34 ára, fæddur og upp­alin á Sel­tjarn­ar­nesi. Hann er þjón­ustu­full­trúi hjá BL og bassa­leik­ari Ultra Mega Technobandsins Stefáns. Arnar býr ásamt Jóhönnu, unn­ustu hans, í Árbænum. Arnar er Neytandi vik­unnar. Gerir þú verð­sam­an­burð á vörum og þjón­ustu? Já, ég skoða alltaf verð á sam­bæri­legum vörum þegar ég er að versla í keðj­unum. Get stundum gert Jóhönnu...
Hjálmar gaf vini sínum dósatunnu: „Tek alltaf plast með mér erlendis og hendi því þar“
Innlentneytandi vikunnar

Hjálmar gaf vini sínum dósa­tunnu: „Tek alltaf plast með mér erlendis og hendi því þar“

Hjálmar Örn Jóhanns­son er 49 ára verka­maður og skemmti­kraft­ur­bú­settur í Reykja­vík. Hann er fjög­urra barna barna faðir og einn fyndn­asti núlif­andi Íslend­ing­ur­inn. Hjálmar er Neytandi vik­unnar. Gerir þú verð­sam­an­burð á vörum og þjón­ustu? Hef ekki gert það. Hvernig sparar þú í mat­ar­inn­kaupum? Get ekki sagt að það sé minn sterkasti kostur að spara því miður. End­ur­nýtir þú? Ertu með ráð...
Emil kjúklingakarl er Pepsi Max fíkill: „Neysla er líklega stærsta vandamálið“
Innlentneytandi vikunnar

Emil kjúklinga­karl er Pepsi Max fík­ill: „Neysla er lík­lega stærsta vanda­málið“

Emil Ólafur Ragn­ars­son heiti ég, giftur með eitt barn. Búsettur í Hval­fjarð­ar­sveit, fæddur í Reykja­vík, upp­al­inn í Dýra­firði og Kjós. Starfa sem bústjóri á kjúklinga­búi. Hef einnig búið hér og þar á höf­uð­borg­ar­svæð­inu. Gerir þú verð­sam­an­burð á vörum og þjón­ustu? Já, ætli maður geri það ekki, þó er ég ekki með það nið­ur­skrifað í excel skjal. En maður reynir að...
Þingmaðurinn sem veiðir sér til matar: „Matarsóun er mikið vandamál og við þurfum að gera betur“
Innlentneytandi vikunnar

Þing­mað­ur­inn sem veiðir sér til matar: „Mat­ar­sóun er mikið vanda­mál og við þurfum að gera betur“

Jódís Skúla­dóttir er 45 ára Fell­bæ­ingur og þing­maður Norð­aust­ur­kjör­dæmis fyrir Vinstri­hreyf­ing­una grænt fram­boð. Hún er stúd­ent frá Mennta­skól­anum á Egils­stöðum og er með BS-próf í við­skipta­lög­fræði frá Háskól­anum á Bifröst. Þá er hún með ML-próf í lög­fræði úr Háskóla Reykja­víkur. Jódís er fjög­urra barna móðir. Hún er þekkt fyrir hress­leika og húmor og fyrir mik­inn sann­fær­ing­ar­kraft. Jódís er Neytandi vik­unnar....
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins