„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Endaði einhentur eftir blackout á Spáni: „Fíkniefnadjöfullinn hann hrifsar allt frá þér“

Endaði einhentur eftir blackout á Spáni: „Fíkniefnadjöfullinn hann hrifsar allt frá þér“
Einar Örn missti hand­legg­inn. Hann segir Reyni frá í þátta­röð­inni Hvað varð um Skugga­börn

Einar Örn Sig­urðs­son eða Einsi glæpur eins og hann oft kall­aður segir frá sögu sinni þegar hann missti hand­legg­inn 8. nóv­em­ber 2017 og átaka­legum atburðum í ein­lægu við­tali hjá Reyni Trausta­son. Leiðir Einars og Reynis lágu saman árið 2005 við gerð bók­ar­innar Skugga­börn þar sem saga og þátt­taka Einars spil­aði viða­mik­inn þátt. Þætt­irnir Hvað varð um Skugga­börn eru aðgengi­legir á vefTV Mannlífs.

„Sagan er nú bara sú að á þessum tíma var ég ungur að aldri og ekki með þroska til að sjá hvert líf mitt stefndi næstu 35 árin, og að ánetj­ast fíkni­efnum. En á þessum tíma var ég ungur, og alls kyns við­ur­nefni að fest­ast við fólk. Ég tók seint stökk til að stækka og var smeykur við að verða kall­aður Einar-litli. Því fór ég sjálfur að korta á vegg­ina Einar-glæpur og þannig byrj­aði þetta allt saman,“ útskýrir Einar og seg­ist hafa fengið þetta sjálf­valda við­ur­nefni í bakið á síð­ari árum, enda er Einsi glæpur góð­kunn­ingi lög­regl­unnar.

Einar og Reynir rifja upp af hverju leiðir þeirra lágu saman en það var vegna til­komu móður sem misst hafði dóttur sína í bílslysi. Hún hafði sam­band við Reyni um skrif bók­ar­innar og nefnt Einar sem einn af vinum stúlkunnar. Einar var þá edrú og sam­þykkti að að leggja mál­staðnum lið.

„Ég vil að skila­boðin séu tær og skýr af hverju ég er kom­inn hingað og það er af því ég vil vara ung­menni og aðra við að vera að fikta í þessu – Ekki vera að taka sjens­inn á þessu,“ segir Einar og seg­ist eiga erfitt með að horfa á sjálfan sig í dag í spegli; ein­hentan eftir „blackout“ á Spáni.

„Hefðir þú ekki leiðst út í neyslu, hvað hefði orðið úr þér?“ spyr Reynir.

„Ég hefði orðið Messi Íslands eða Mara­donna,“ svarar Einar og lýsir sjálfum sér sem ofvirku og síhlaup­andi barni. „Eða lög­fræð­ingur eða sál­fræð­ingur eða eitt­hvað -Mér voru allir vegir færir,“ og seg­ist hafa fæðst inn í for­rétt­indi og með öll tæki­færi.

„En það fór svona. Fíkni­efna­djöf­ull­inn hann hrifsar allt frá þér.“

Viðtalið við Einar Örn er aðgengi­legt hér fyrir áskrif­endur vefTV Mannlífs 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins