„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Veðkall aldarinnar hefur reynst dýrkeypt – Verðhrun Marel og forstjórinn í greiðslustöðvun

Veðkall aldarinnar hefur reynst dýrkeypt – Verðhrun Marel og forstjórinn í greiðslustöðvun
Frá­far­andi for­stjóri Marles er í miklum vanda eftir for­dæma­lausar aðgerðir Arion­banka.

Árni Oddur Þórð­ar­son, fyrr­ver­andi for­stjóri Marels, hefur staðið í ströngu síð­ustu daga. Á þriðju­dags­kvöld leysti Arion banki til sín 4,87 pró­sent af hluta­bréfum í Eyri Invest, kjöl­festu­fjár­festi Marels. Bréfin hafði bank­inn til trygg­ingar per­sónu­legri lán­veit­ingu for­stjór­ans.

Árni Oddur hafði starfað sem for­stjóri fyr­ir­tæk­is­ins í 10 ár og hefur í kjöl­far veð­kalls­ins fengið sam­þykkta greiðslu­stöðvun. Margir hafa nefnt aðgerðir Arion banka „veð­kall ald­ar­innar“ og aðilar á fjár­mála­mark­aði muna ekki eftir jafn harka­legri inn­heimtu­að­gerð gegn stjórn­anda í skráðu fyr­ir­tæki hér á landi. Áður grun­lausir hlut­hafar Marels hafa horft á hluta­bréf sín lækka um 25 millj­arða króna frá opnun mark­aða á mið­viku­dag.

Samkvæmt heim­ildum Mannlífs jafn­gildir lækkun hluta­bréf­anna um fjórt­án­faldri fjár­hæð láns­ins sem bank­inn gjald­felldi. Auk þess hafa flest önnur hluta­bréf í Kaup­höll­inni lækkað í kjöl­far tíð­ind­anna. Árni Oddur sendi frá sér yfir­lýs­ingu vegna máls­ins á þriðju­dags­kvöld og telur aðgerðir bank­ans hvorki í sam­ræmi við samn­inga né lög. Hann seg­ist hafa brugð­ist við veð­kalli bank­ans og lagt fram full­nægj­andi trygg­ingar sem að hans sögn höfðu ríf­lega tvö­falt virði lán­veit­ingar.

Samkvæmt heim­ildum Mannlífs mun málið hafa strandað á mik­il­vægum skil­mála­breyt­ingum láns­ins, sem hafi meðal ann­ars falið í sér hækkun vaxta, eitt­hvað sem for­stjór­inn gat ekki sætt sig við. Þrátt fyrir ítrek­aðar til­raunir fjöl­miðla hefur Benedikt Gíslason, banka­stjóri Arion banka, ekki viljað tjá sig um málið. Í stuttri yfir­lýs­ingu til fjöl­miðla seg­ist bank­inn fara eftir skýrum innri reglum og ferlum um lán­veit­ingar.

Búast má við harka­legum deilum vegna máls­ins sem nú þegar er á borði Fjár­mál­eft­ir­lits­ins. Samkvæmt heim­ildum Mannlífs eru það lög­menn Logos og lög­mann­stofan Mörkin sem takast á um málið bak­við tjöldin.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins