„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Sjóslysin og afleiðingar þeirra

Sjóslysin og afleiðingar þeirra
Svava Jóns­dóttir

Svava Jóns­dóttir blaða­maður skrif­aði bók­ina HEIMTIR ÚR HELJU. RÆTT VIÐ 12 SKIPBROTSMENN sem kom út í vetur. Hún tók við­töl við 12 sjó­menn sem voru skip­verjar á bátum eða skipum sem fór­ust. Í sumum til­fellum voru menn­irnir í sjónum í nokkra klukku­tíma jafn­vel innan um fljót­andi gáma og í öðrum til­fellum komust þeir um borð í björg­un­ar­báta og voru þar jafn­vel í marga klukku­tíma áður en hjálp barst. Í einu til­fell­inu lágu látnir skips­fé­lagar í botni báts­ins. Menn­irnir segja frá sjó­slys­unum og því sem tók við en and­lega áfallið varð þess vald­andi til dæmis að einn vildi síðar klára það sem sjónum tókst ekki að klára, svo má nefna þung­lyndi, örorku í um 20 ár, geð­hvarfa­sýki og neyslu.

Hér er brot úr nokkrum við­tölum:

„Það er svo skrýtið. Ég held að fólk geri sér ekki grein fyrir kraft­inum í brot­unum. Ég gleymi ekki þessu broti sem ég lenti þarna í; kraft­ur­inn var svo mik­ill og svo gíf­ur­legur af þessu broti sem ég lenti í sem þeytti mér út í haf og dembdi mér á bólakaf af svo miklum krafti að kinn­arnar á mér flök­suðu á leið­inni niður. Ég var í flot­galla og ég vissi að hann kæmi mér upp aftur og ég var mjög rólegur á þessum tíma.

Svo þaut ég niður í haf­dýpið. Það hægð­ist meira og meira á mér og ég fór svo að fara hægt upp þangað til ég var kom­inn upp á yfir­borðið. Ég man nú ekki til þess að ég hafi sopið neinar hveljur. Ég hafði passað mig á að vera með kjaft­inn á mér lok­aðan og ekki reynt að anda neitt. Það fyrsta sem ég gerði var að líta í kringum mig og þá sá ég lát­inn mann í sjónum. Við reyndum svo að draga hann svo til okkar. Strák­arnir voru byrj­aðir að festa sig saman með því krækja sig saman; við vorum eins og slanga í sjónum.“

(Valdimar Hallur Sig­þórs­son – Dís­ar­felli)

„Ég bara hugs­aði með mér að ég yrði við stýrið á meðan verið væri að bjarga áhöfn­inni og svo þegar allir voru eig­in­lega farnir þá fór ég að hugsa um að kannski væri best að koma sér sjálfur. Þá sá ég að minn tími væri kom­inn þannig að ég gæti farið að hugsa mér til ferðar.“ Það var eng­inn tími til að fara í flot­galla og var hann í skyrtu og buxum. „Ég byrj­aði að klöngr­ast niður að næsta þil­fari og svo niður á þil­farið þar fyrir neðan sem var nátt­úr­lega ekki þil­far; skipið lá á hlið­inni. Gólfið var eins og veggur. Ég gekk á lúg­unni. Svo fór ég niður á dekk með ein­hverjum ósköpum en nátt­úr­lega datt nokkrum sinnum og velt­ist um í sjónum. Það var ekki mjög kalt. Það var það góða við það að sjór­inn var ekki mjög kaldur; hann var svo­lítið varmur þannig að manni var ekk­ert kalt á því að busla í sjónum. Ég hélt mér í hand­riðið sem var á stiga. Ég var renn­andi blautur. Ég fór nokkrum sinnum í kaf með skip­inu og svo kom það upp aftur. Ég hef farið í kaf alla­vega þrisvar til fjórum sinnum. “

Einn maður á sökkvandi skipi.

„Svo kom allt í einu niður taug úr þyrl­unni og ég greip í hana og tókst mér að halda henni þannig utan um mig að þeir hífðu mig upp.“

Skip­stjór­anum var bjargað. Karlinum í brúnni.

„Þegar ég var kom­inn í þyrl­una og sestur aft­ast í hana kom flug­stjór­inn til mín og sagði mér að þeir væru búnir að ná öllum og mér létti.“

(Gunnar Scheving Thor­ster­ins­son – Tungu­fossi.)

„Öldurnar kaf­færðu okkur og ég hugs­aði stundum um hvort eg ætti bara að sleppa. Þetta var alveg búið fyrir mér. Ég sá engan bát neins staðar. Við vissum ekk­ert hvort neyð­ar­kall hefði borist, björg­un­ar­bát­ur­inn var sprung­inn, við vorum bara klæddir í venju­leg föt og sam­kvæmt öllu þá áttum við að deyja úr ofkæl­ingu.

Mér skilst að við höfum verið í sjónum upp undir tvo tíma en fyrir mér er þetta heil ævi eða nokkrar sek­úndur. Ég missti þarna allt sem heitir tíma­skyn. Ég man bara að við vorum þarna. Ég er ekki trú­aður maður en ég bað til Guðs um hjálp og ég hugs­aði líka um að mamma mín ætti bara mig og hún væri að fara að missa son sinn í sjó­inn.“

(Hilmar Þór Jónsson – Bjarma.)

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

#Bókaútgáfa

Hundrað börn gefa út Spírur, ungar raddir í umhverfismálum: „Markmiðið að opna umræðurnar“
Menning

Hundrað börn gefa út Spírur, ungar raddir í umhverf­is­málum: „Mark­miðið að opna umræð­urnar“

Fullt var út úr dyrum í hátíð­ar­sal Safna­húss­ins við Hverf­is­götu um helg­ina, þar sem Ungir umhverf­is­sinnar verð­laun­uðu rit­höf­unda fram­tíð­ar­innar með útgáfu bók­ar­innar Spírur, ungar raddir í umhverf­is­málum. Bókin hefur að geyma 30 sögur af þeim 100 sem bár­ust í keppn­ina „Ungir rit­höf­undar fyrir umhverfið“ sem UU héldu á haust­mán­uðum. Krakkar, for­eldrar, frænd­fólk og kenn­arar komu alls staðar að af land­inu...
Þóra kemur sterk inn með sína fyrstu skáldsögu: „Fannst eins og ég væri að berskjalda mig“
Menning

Þóra kemur sterk inn með sína fyrstu skáld­sögu: „Fannst eins og ég væri að ber­skjalda mig“

Þóra Sveins­dóttir steig fram á rit­völl­inn fyrir þessi jól með sína fyrstu skáld­sögu en það er bókin Sjúk. Mannlíf ræddi við hana um bók­ina og sitt­hvað fleira. Hver er Þóra Sveins­dóttir? Þóra: „Þóra er hug­mynda­ríkur húmoristi með mikla rétt­læt­is­kennd. Hef skrifað tvæ greinar er varða jafn­rétti kynj­anna því til sönn­unar. Ég hef sterkar skoð­anir á hvað þurfi að gera svo...
Viðbrögðin við nýjustu bók Elísabetar frábær: „Fólk segir að hún hitti beint í hjartastað“
Menning

Við­brögðin við nýj­ustu bók Elísa­betar frá­bær: „Fólk segir að hún hitti beint í hjarta­stað“

Jóla­bóka­flóðið stendur nú sem hæst á Íslandi og kepp­ast nú sölu­að­ilar við að selja les­þyrstum kaup­endum bækur. Eins og oft áður er úrvalið ansi fjöl­breytt. Hægt er að finna fjöldan allan af spennu­sögum, ljóða­bókum og ævi­sögum en ein af bók­unum sem standa svo­lítið upp úr í flóð­inu er bókin Límonaði frá Díafani eftir þjóð­ar­ger­sem­ina Elísa­beti Jök­uls­dóttur. „Mig lang­aði að segja...
Valur Gunnarsson hélt útgáfuteiti í bókabúð Sölku með þýsku þema: LJÓSMYNDIR
Menning

Valur Gunn­ars­son hélt útgáfu­teiti í bóka­búð Sölku með þýsku þema: LJÓSMYNDIR

Valur Gunn­ars­son hélt útgáfu­teiti í bóka­búð Sölku á Hverf­is­göt­unni á föstu­dag­inn en smekk­fullt var út að dyrum. Hófið var með þýskt þema enda heitir bókin Berlín­ar­bjarmar – Langamma, David Bowie og ég. Mannlíf mætti á svæðið með lélega mynda­vél úr ann­ars ágætum Samsung-síma. Valur les úr bók sinni.Mynd: Björgvin Gunn­ars­son Margt var um mann­inn í bráð­skemmti­legri bóka­búð útgáfu­fyr­ir­tæk­is­ins Sölku á...
Elísabet Jökuls blæs til veislu í dag – Fagnar útgáfu nýrrar bókar
Menning

Elísabet Jökuls blæs til veislu í dag – Fagnar útgáfu nýrrar bókar

Elísabet Jök­uls­dóttir heldur heldur útgáfu­teiti í Eymunds­son í Aust­ur­stræti í dag, til að fagna nýj­ustu bók sinni, Límonaði frá Díafani. Þjóð­ar­ger­semin Elísabet Kristín Jök­uls­dóttir gaf út á dög­unum bók­ina Límonaði frá Díafani en hún hefur verið að fá glimmr­andi dóma gagn­rýnenda og er sjálf­sagt eng­inn eft­ir­bátur bókanna hennar Sakn­að­arilmur og Apr­ílsól­ar­kuldi sem slógu ræki­lega í gegn fyrir fáeinum árum. Í...
Þórunn rýnir í íslenska fyndni í nýrri bók: „Sögurnar eru lyklar að horfnum hugsunarhætti“
Menning

Þórunn rýnir í íslenska fyndni í nýrri bók: „Sögurnar eru lyklar að horfnum hugs­un­ar­hætti“

Þórunn Valdi­mars­dóttir stendur fyrir tvö­földu útgáfu­teiti í Iðnó á morgun, sunnu­dag. Einn fjöl­hæf­asti rit­höf­undur Íslands, Þórunn Valdi­mars­dóttir gaf út á dög­unum hvorki meira né minna en tvær bækur og það af sitt­hvoru tag­inu. Um er að ræða ann­ars vegar ljóða­bók­ina Fag­ur­boðar og hins vegar bókin Spegill íslenskrar fyndni – glettnin greind og skoðuð en í þeirri bók skoðar hún rit...
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Menning

Menning

Hundurinn hans Dwayne Johnson dó í nótt: „Ég hef verið dofinn yfir þessum missi“

Menning

The Highwaymen heiðraðir í Hörpu: „Fullt af tímalausum smellum og anda kántrítónlistar“

Menning

DJ Khaled og 6ix9ine fengu báðir óhugnanlegar líkkistur sendar heim til sín: „RIP Drake“

Menning

Friðrik Dór hugsar um lygar

Menning

Myrkvi gefur út þriðju breiðskífu sína – Vonast til þess að slá vopnin úr höndum tímans

Menning

Bubbi og Frikki Dór styðja fórnarlömb þjóðarmorðsins á Gaza