„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Paul Adalsteinsson reyndi að fjárkúga meðlimi konungsfjölskyldunnar- Ráðabrugg lukkuriddara

Paul Adalsteinsson reyndi að fjárkúga meðlimi konungsfjölskyldunnar- Ráðabrugg lukkuriddara
Kampa­víns-Kalli

Maður er nefndur Paul Adal­steins­son. Paul var af íslenskum ættum, en afi hans hét Páll Aðal­steins­son. Páll flutt­ist búferlum frá Íslandi til Grimsby á Englandi á fyrri hluta 20. aldar og var þar meðal ann­ars skip­stjóri. Paul fædd­ist árið 1976 í Aberdeen í Skotlandi. For­eldrar hans skildu árið 1985, þegar Paul var níu ára, en hann ákvað þá að taka upp ætt­ar­nafn breskrar móður sinnar, Elizabeth Strachan, og gekk þaðan í frá undir nafn­inu Ian Strachan. En allt um það.

Barst mikið á

Af ævi Ians segir fátt fyrr en hann komst í fréttir árið 2005. Um þær mundir gekk hann undir nafn­inu Charles Gold­stein og gaf sig út fyrir að vera umsvifa­mik­ill fast­eigna­sali og skreytti sig að auki með lög­mannstitli. Þetta gerði honum kleift að dand­al­ast eitt­hvað með elít­unni þar og þá. Allt í fari hans bar þess merki að honum vegn­aði vel; fötin voru klæð­skera­saumuð og hann virt­ist lifa lífi þar sem kampa­vín og kav­íar komu mikið við sögu. Vinum sínum sagði hann að hann hefði erft fúlgur fjár eftir ömmu sína og ekki voru bestu vinir hans neitt slor. Þeirra á meðal voru, að hans sögn, prins­arnir og bræð­urnir William og Harry.

Bjó heima hjá mömmu

Ian var háður lyf­seð­ils­skyldum lyfjum og var sagður bryðja þau eins og sæl­gæti. Til að verða sér úti um þau not­aði hann ýmis nöfn; Ian Strachan, Paul Adal­steins­son, Charlie Gold­stein og Paul Stein. Sögur af vel­gengni Ians voru veru­lega ýktar, svo ekki sé tekið dýpra í árinni, og reyndin allt önnur. Ian hafði fátt til að guma sig af; hann hafði gef­ist upp á háskóla­námi og bjó heima hjá mömmu sinni. Í Daily Record sagði að fjöl­skylda Ians, sem hann hafði þá fjar­lægst, hefði gert gys að full­yrð­ingum um elítu­lífs­stíl Ians; hann væri svo sann­ar­lega eng­inn „Kampa­víns-Kalli (e. cham-pagne Charlie)“, eins og lög­fræð­ingur hans síðar meir kall­aði hann. Frændi Ians, hót­el­eig­andi í Aberdeen, sagði: „Mér er til efs að hann eigi skyrt­una sem hann klæð­ist.“

Þannig var nú það.

Svæsið mynd­band

Árið 2005 fékk Ian frá­bæra hug­mynd til að hagn­ast veru­lega, eða svo hélt hann. Ian og maður að nafni Sean Mc-Guigan hugð­ust verða sér úti um 50.000 sterl­ingspund með fjár­kúgun. Þeir réð­ust ekki á garð­inn þar sem hann var lægstur, því fórn­ar­lambið til­heyrði bresku kon­ungs­fjöl­skyld­unni. Félag­arnir sögð­ust hafa í fórum sínum mynd­skeið sem sýndi helsta aðstoð­ar­mann, „right hand man“, þess kon­ung­borna sniffa kókaín af miklum móð og nota við athöfn­ina kredit­kort frá Harrods. Harrods-kort ku víst vera afar fáséð og ekki á hvers manns færi að kom­ast yfir slíkt. Það var þó ekki allt, því einnig átti mynd­bandið að sýna aðstoð­ar­mann­inn og þann kon­ung­borna stunda kyn­líf saman á meðan nekt­ar­dans­mey frá Stringfellow-klúbbnum horfði á, sú hét Cindy. Einhver annar kon­ung­bor­inn er einnig nefndur til sög­unnar, en sá dingl­aði kyn­færum sínum að Ian; „waved his willy“, eins og segir á vef­síðu Daily Mail.

Enginn vildi kaupa

Þegar þarna var komið sögu höfðu þeir kump­ánar leitað hóf­anna hjá Max nokkrum Clifford. Max þessi ku ekki hafa verið vand­aður pappír um þær mundir og hrærð­ist í vafasömum kreðsum. Hann var einkum þekktur fyrir að reyna að selja slúð­ur­blöð­unum frá­sagnir af ást­ar­æv­in­týrum fólks sem eitt­hvað átti undir sér. Þegar félag­arnir Ian og Sean viðr­uðu mögu­leg við­skipti við Max Clifford, kom á dag­inn að ekki einu sinni hann vildi snerta á því sem þeir höfðu að bjóða. Þeir reyndu að selja öðrum dag­blöðum mynd­bands­upp­tök­una, en sneru bón­leiðir til búða. Því var fátt annað í stöð­unni en að ganga beint til verks og kúga fé út úr þeim kon­ung­borna, sem var hvorki meira né minna en syst­ur­sonur Elísa­betar Eng­lands­drottn­ingar.

Gripnir glóð­volgir

Frá því er skemmst að segja að þetta ráða­brugg lukku­riddar­anna fór ekki sem skyldi og þeir voru hand­teknir 11. sept­em­ber, 2007. Lög­reglan fékk 50.000 sterl­ingspund sem nota átti sem beitu til að hafa hendur í hári fjár­kúgar­anna og Ian og Sean voru hand­teknir á hót­eli í London af óein­kenn­is­klæddum lög­reglu­mönnum úr hryðju­verka­deild bresku lög­regl­unnar. Þeir félagar, Ian og Sean, áttu senni­lega von á hinum kon­ung­borna, eða full­trúa hans, með 50.000 pund í fartesk­inu og eflaust kom hand­takan þeim í opna skjöldu. Ian og Sean voru úrskurð­aðir í gæslu­varð­hald í Belmarsh-fang­elsi og skyndi­lega staddir í hring­iðu fjöl­miðl­anna, en ljóst var að þeir myndu aldrei kom­ast í álnir með þeim hætti sem þeir hugð­ust. Þeir sóttu um lausn gegn trygg­ingu 2. nóv­em­ber og aftur 8. des­em­ber, en höfðu ekki erindi sem erf­iði. Báðir lýstu yfir sak­leysi sínu við for­rétt­ar­höldin 20. des­em­ber, 2007. Ian og Sean þurftu nú að að huga að vörnum í mál­inu, en rétt­ar­höldin hófust 14. apríl, 2008.

Vafa­samur verj­andi

Í far­ar­broddi í vörn Ians var Giovanni Di Stefano, alræmdur og marg­dæmdur svika­hrappur. Hann mun vera rétt­inda­laus með öllu í þeim efnum. Á meðal við­skipta­vina hans, að eigin sögn, má nefna Saddam Hussein, for­seta Íraks, Slobodan Milosevic, for­seta Serbíu, og glyspopp­ar­ann, kyn­ferð­is­brota­mann­inn og barn­a­níð­ing­inn Gary Glitter. Di Stefano hefur verið bannað að koma nálægt slíkum málum í Bret­landi og hefur ekki rétt­indi til að starfa sem lög­maður á Ítalíu. Sagan segir að hann hafi verið útlægur ger frá Banda­ríkj­unum og eng­inn aufúsu­gestur á Nýja-Sjálandi, en þar­lend yfir­völd hafa bannað honum að flytj­ast til lands­ins. Giovanni Di Stefano hefur verið sak­felldur fjórum sinnum á Írlandi og Bret­landi, alla jafna fyrir svik og pretti. Dómari einn sagði um Di Stefano að hann væri: „einn mesti svika­hrappur í heimi.“ Árið 2013 fékk Giovanni Di Stefano 14 ára dóm eftir að hafa verið fund­inn sekur um 27 ákæru­at­riði, meðal ann­ars að villa á sér heim­ildir. En allt þetta er önnur saga.

Velvild, ekki hagn­að­ar­von

Við rétt­ar­höldin vís­uðu Ian og Sean báðir sak­ar­giftum á hendur sér á bug. Þeir full­yrtu hins vegar að þeir hefðu haft að leið­ar­ljósi hags­muni syst­ur­sonar Elísa­betar drottn­ingar og vel­ferð. Þeim hefði verið umhugað um að forða honum frá fári miklu. Ekki var lagður trún­aður á þá útskýr­ingu; til­gang­ur­inn hefði ein­göngu verið að kom­ast yfir fé. Í maí, 2008, voru Ian Strachan og Sean McGuigan sak­felldir fyrir til­raun til fjár­kúg­unar. Hvor um sig fékk fimm ára dóm, en kostn­aður vegna rann­sókn­ar­innar og rétt­ar­hald­anna mun hafa farið yfir eina milljón sterl­ingspunda. Ekki hafði þá verið gerð til­raun til fjár­kúg­unar á hendur kon­ungs­fjöl­skyld­unni í meira en eina öld og var það mat margra að hin kostn­að­ar­sömu rétt­ar­höld hefðu verið helst til „yfir­drifin við­brögð“. Ian Strachan afplán­aði tæp­lega helm­ing dóms­ins.

Ian flýr land

Það bar til tíð­inda árið 2010 að Ian Strachan, sem þá hafði leitað á bernsku­slóðir í Skotlandi, hefði flúið land og þannig senni­lega rofið skil­orð sem fylgdi stytt­ingu afplán­unar hans á bak við lás og slá. Ekki var vitað hvert Ian hafði farið, en talið nokkuð víst að áfanga­staður hans hefði verið ríki sem ekki hafði fram­sals­samn­ing við Bretland. Í Daily Record er haft eftir Ian: „Ég var búinn að fá nóg af þessu. Þeir hót­uðu að henda mér aftur í grjótið ef ég setti mig upp á móti dómnum sem ég fékk.“ Ian full­yrti að hann hefði geng­ist undir lýta­að­gerðir og breytt útliti sínu svo hann yrði óþekkj­an­legur. Að hans sögn kost­uðu aðgerð­irnar 34.000 sterl­ingspund. „Ég verð á flótta, þar til sak­leysi mitt verður sannað,“ sagði Ian. Stjórn­völd í Skotlandi gáfu út hand­töku­skipun á hendur Ian, en talið var að hann nýtti sér tvö­faldan rík­is­borg­ara­rétt, íslenskan og breskan, á flótt­anum.

Aflimun og far­bann

Segir ekki meira af ævin­týrum Ians fyrr en árið 2013. Þá lenti hann í því óhappi að falla niður af svölum. Fallið var 10 metrar og það segir sig kannski sjálft að slíkt er engum manni hollt. Taka þurfti af Ian vinstri fót­legg auk þess sem mjaðma­grindin hlaut veru­legan skaða af. Í kjöl­farið neytti Ian kóka­íns reglu­lega og drakk stíft, að sögn til að þola óbæri­legan sárs­auka vegna aflimun­ar­innar. Ætla má að sjaldan hafi verið logn­molla þar sem Ian Strachan var á ferð. Í des­em­ber, 2015, varð hann enn og aftur frétta­efni breskra fjöl­miðla. Þá var hann staddur í Dúbaí undir nafn­inu Charles Gold­stein. Þar hafði hann, að eigin sögn, þjáðst í átta mán­uði og vega­bréfið hafði verið tekið af honum. Honum var meinað að yfir­gefa landið fyrr en hann hefði greitt 100.000 sterl­ingspund sem hann var kraf­inn um af lúx­us­bíla­leigu þar í landi, vegna skemmda á bíl sem hann hafði leigt. Sjálfur sagð­ist Ian vera fórn­ar­lamb svika, að hann skuld­aði minna en 1.000 pund og skemmd­irnar á bílnum, Audi R8, hefðu verið til staðar þegar hann tók hann á leigu. „Mér líður eins og ég sé í hrylli­legri, nið­dimmri holu. Allt sem ég átti, hefur Dúbaí haft af mér. Ég hef tapað gjör­sam­lega öllu,“ sagði Ian.

Síðustu skila­boðin

Eftir tíu mán­aða dvöl í Dúbaí komst Ian heim til Englands. Segir sagan að hann hafi flúið frá Dúbaí og kom­ist til Íran og þaðan með ein­hverjum leiðum heim á gamlar slóðir. Þangað kom­inn tók hann upp fyrri siði í West End. Árið 2016 fékk Ian Strachan hjarta­á­fall í tvígang, í bæði skiptin vegna kóka­ínn­eyslu, var sagt. Einnig varð hann þekktur að ofbeld­is­fullri hegðun í garð móður sinnar. Á aðfanga­dags­kvöld, árið 2016, fannst Ian lát­inn heima hjá sér. Hann hafði þá inn­byrt feiknin öll af lyf­seð­ils­skyldum lyfjum; codein, maxicodone, xopicone og fleira. Lyfjunum hafði hann blandað saman við mjólk. Um þetta leyti hafði Ian orðið sífellt árás­ar­gjarn­ari í garð móður sinnar. Hann hafði þó snætt hádeg­is­verð með henni 23. des­em­ber. Síðar sama dag hafði móðir hans heim­sótt hann og farið um klukkan 21.30 um kvöldið. Um sól­ar­hring áður en hann fannst lát­inn hafði hann sent móður sinni texta­skila­boð: „Þú vilt fá lík, nú hefur þú fengið það. Það verður öðru­vísi dagur á morgun, ég mun ekki verða hér.“

Heim­ildir: Daily Record, The ScottishSun, Daily Mail, Scotsman, Wikipedia,mbl.is, visir.is

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Baksýnisspegill

Síðasti líflátsdómurinn á Íslandi – Setti rottueitur í skyr bróður síns og kenndi manni sínum um
InnlentBaksýnisspegill

Síðasti líf­láts­dóm­ur­inn á Íslandi – Setti rottu­eitur í skyr bróður síns og kenndi manni sínum um

Eitt fal­legt laug­ar­dags­kvöld ákvað Júlíana Silfa Jóns­dóttir að bjóða 48 ára bróður sínum, Eyjólfi Jónssyni, í heim­sókn til sín á Brekku­stí 14 í Reykja­vík. Júlíanna bauð honum upp á góm­sætt skyr. Eyjólfur grun­aði ekki hvað lá að baki. Um nótt­ina fékk hann heift­ar­leg upp­köst. Honum hafði verið byrlað. Ástæðan var sú fárán­leg­asta. Eyjólfur átti spari­sjóðs­bók með nokkrum hund­ruð krónum sem...
Fimmtug prestsfrú hjólaði hringinn í kringum landið með tösku fulla af sparikjólum.
InnlentBaksýnisspegill

Fimmtug prests­frú hjólaði hring­inn í kringum landið með tösku fulla af spari­kjólum.

Árið 1987 tald­ist það til tíð­inda að sjá hjól­reiða­fólk á hring­veg­inum. Alla jafna var þá um að ræða ævin­týrasólgna ferða­menn. Hin fimm­tuga prests­frú, Auður Guð­jóns­dóttir, vakti þar af leið­andi tölu­verða athygli þegar til hennar sást á á for­láta þriggja gíra kven­manns­hjóli með fót­bremsu og með sjö spari­kjóla í fartesk­inu. Auður Guð­jóns­dóttir, sem þá var búsett í Bergland í norð­vest­ur­hluta Ontario...
Nemandi missti heyrn og fékk heilahristing: „Annar árásarmannanna virkur í hnefaleikafélagi“
InnlentBaksýnisspegill

Nemandi missti heyrn og fékk heila­hrist­ing: „Annar árás­armann­anna virkur í hnefa­leika­fé­lagi“

Árið 2009 var ráð­ist á 14. ára nem­anda Grunn­skól­ans í Sand­gerði. Ger­end­urnir voru tveir sam­nem­endur hans. Dreng­ur­inn hafði verið að spila við skóla­fé­laga sína þegar drengirnir tveir gengu upp að honum og réð­ust á hann. Dreng­ur­inn slas­að­ist alvar­lega. DV greindi frá mál­inu á sínum tíma: „Fjórtán ára nem­andi í Grunn­skóla Sand­gerðis slas­að­ist alvar­lega þegar tveir skóla­fé­lagar hans réð­ust á hann...
Lögregla kom upp um milljóna þýfi eftir tilkynningu um hnífsstungu: „Meðlimir í alræmdu þjófagengi“
InnlentBaksýnisspegill

Lögregla kom upp um millj­óna þýfi eftir til­kynn­ingu um hnífs­s­tungu: „Meðlimir í alræmdu þjófa­gengi“

Í mars árið 1995 fékk lög­regla til­kynn­ingu um hávaða og ölvun í kjall­ara­í­búð við Stang­ar­holt í Reykja­vík. Síðar var til­kynnt um hnífs­tungu í sömu íbúð. Til­kynn­ing um hnífstungu varð til þoss að lögreglan í Reykja­vik fann mikið af þýfi sem stolið hefur verið að und­anförnu. Talið er að verð­mæti þýfis­ins nemi milljónum. „Lögreglan í Reykjavík fékk til­kynn­ingu um mikil ólæti...
Morðið á Vesturgötu – Daníel fannst í rúminu með hendurnar bundnar fyrir aftan bak
Innlent

Morðið á Vest­ur­götu – Daníel fannst í rúm­inu með hend­urnar bundnar fyrir aftan bak

Það var eitt mið­viku­dags­kvöld að maður nokkur bank­aði á dyr í Vest­ur­götu 22 í Reykja­vík. Spurði hann eftir einum íbúa húss­ins en sá var ekki við. Daníel Sím­on­ar­son, sem bjó í einni íbúð­inni í hús­inu, bauð hinum ókunn­uga manni inn og hófu þeir drykkju. Seinna um kvöldið fannst Daníel örendur í rúmi sínu, með hendur bundnar fyrir aftan bak. Þann...
Stórfelldur innflutningur á klónuðum farsímum: „Við gerum ekki við þá“
InnlentBaksýnisspegill

Stór­felldur inn­flutn­ingur á klón­uðum far­símum: „Við gerum ekki við þá“

Mikil rann­sókn átti sér stað árið 1997 þegar kom í ljós stór­felldur inn­flutn­ingur á GSM símum. Talið var að þeir væru breyttir og margir með sama fram­leiðslu­númer. „Þetta er ekki eins og hlut­irnir eiga að vera. í hverjum síma á að vera eitt númer, en það er það ekki í þessum símum. Það eru því miður margir símar á sama...
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Mannlífið

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður