„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Sýktur Gunnar Smári gagnrýnir heilbrigðiskerfið: „Það er kominn bólga, brún-búrgundí-lituð“

Sýktur Gunnar Smári gagnrýnir heilbrigðiskerfið: „Það er kominn bólga, brún-búrgundí-lituð“
Gunnar Smári Egilsson. Mynd / Hallur Karlsson.

„Mér er illt í tánni og hef verið í rúma viku, og það versnar bara. Það er eins og ég sé tábrot­inn án þess að muna eftir að ég hafi brotnað. Og það er kom­inn bólga, brún-búrg­undí-lituð og nokkuð þétt við­komu (þó ég geti ekki ýtt fast, það er vont).“

Svona byrjar Facebook-færsla Gunnars Smára Egils­sonar í gær. Í færsl­unni segir sós­í­alista­for­ing­inn frá heilsu­far­s­vanda­máli sínu og gagn­rýnir sam­fé­lagið harð­lega. „Þetta eru allt ómerki­legar raunir. Í góðu sam­fé­lagi myndi ég renna við í heilsu­gæslu og fá ein­hvern til að kíkja á þetta, gefa mér pensi­lín, skera af mér tána eða senda mig heim með til­sögn um að hætta þessu kvarti, lík­am­inn lagar sig sjálfur. Og það var línan sem ég tók fyrir viku, að þetta myndi lag­ast. Sú kenn­ing hefur fallið, þetta er að versna. Ég gæti aðlagað kenn­ing­una og sagt að þetta muni skána eftir að hafa fyrst versnað. Sumt er þannig. Eða farið og látið kíkja á tána. Sem ég myndi gera ef ég byggi í góðu sam­fé­lagi, ver­andi búinn að vera á vinnu­mark­aði síðan ég var 5 ára og búinn að borga reið­innar býsn til sam­trygg­ingar okkar borg­ar­anna.“ En af hverju lætur Gunnar Smári ekki kíkja á tánna? „ En ég bý ekki í góðu sam­fé­lagi. Í vik­unni sendu heil­brigð­is­yf­ir­völd frá sér áskorun til fólks um að trufla ekki lækna og hjúkr­un­ar­lið nema það væri við dauð­ans dyr, helst dautt.“Gunnar Smári seg­ist þess vegna ganga haltur og kval­inn í „rík­asta sam­fé­lagi heims.“ Og bætir við: „Pen­ing­arnir sem ég borg­aði fyrir sam­trygg­ingu heil­brigð­is­kerf­is­ins voru sendir sem styrkir til Samherja, svo þeir réðu við orku­skiptin og gætu prentað og dreift áróðri sínum um eigið ágæti og ömur­leika allra sem vilja aukið rétt­læti í sam­fé­lag­inu.“

Við­brögðin við færslu Gunnars Smára hafa verið gríð­ar­leg en yfir þrjú­hund­ruð manns hafa sett „like“ við hana og 118 skrifað athuga­semdir. En máttur sam­fé­lags­miðl­anna er mik­ill og fékk sós­í­alista­for­ing­inn að finna fyrir honum en hann skrif­aði við­bót vil færsl­una seinna í dag en þar segir hann frá lækni sem hafi haft sam­band við sig og beðið um ljós­mynd af tánni. Greindi hann þetta svo sem sýk­ingu við nagla­böndin og skrif­aði upp á lyf­seðil. „Svona virkar vel hið óform­lega sam­fé­lag okkar Íslend­inga, náunga­kær­leik­ur­inn og hjálp­semin. Þótt okkur hafi ekki auðn­ast að byggja upp sterkt form­legt sam­fé­lag,“ skrif­aði Gunnar Smári að lokum.

Ekki eru þó allir sam­mála lækn­inum hjálp­sama en flestir eru á því að um þvag­sýru­gigt sé að ræða, þar á meðal Benedikt Erlings­son leik­ari:

„Þetta er röng sjúk­dóms­grein­ing hjá þínum lækni. Gunnar Smári Egilsson . Þetta er örugg­lega þvag­sýru­gigt eða kónga­veikin sem Snorri Sturlu­son var ílla haldin af. Of mikið af kónga­fæði, kjöti og víni. Urgangs­efnin krist­all­ast og koma fram í liðum og vald þar bólgu. Hefst í stóru­tánni. Heit böð lina ein­kennin en lækna ekki. Þú þarft breytt matar­æði.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins