„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Sigmar hryggur eftir mótmæli á Austurvelli: „Úrræðaleysið er algert og því þarf að breyta“

Sigmar hryggur eftir mótmæli á Austurvelli: „Úrræðaleysið er algert og því þarf að breyta“
Sigmar Guð­munds­son Mynd: Facebook

Sigmar Guð­munds­son segir að stefnu­leysi stjórn­valda í áfengis- og vímu­vörnum vera sorg­lega.

Á laug­ar­dag­inn safn­að­ist saman fólk á Aust­ur­velli og mót­mælti aðgerð­ar­leysi stjórn­valda í garð fólks með fíkni­sjúk­dóm. Einn af ræðu­mönnum mót­mæl­anna var Sigmar Guð­munds­son þing­maður Við­reisnar. Skrifaði hann Facebook-færslu í dag þar sem hann sagði það hafa verið mjög áhrifa­mikið að vera á mót­mæl­unum á Aust­ur­velli. „Erfiðast var að fylgj­ast með aðstand­endum fólks sem hefur lát­ist leggja rósir á tröpp­urnar við alþing­is­húsið,“ sagði Sigmar og hélt áfram. „Að sjá mæður með ung föð­ur­laus börn og tár­vota for­eldra að syrgja barnið sitt er auð­vitað mjög sorg­legt en að sama skapi vitn­is­burður um hve vand­inn er alvar­legur.“

Þá segir Sigmar stefnu­leysi stjórn­valda í mála­flokknum sorg­legt. „Stefnu­leysi stjórn­valda er sömu­leiðis sorg­legt en það hefur ekki verið í gildi stefna í áfengis og vímu­vörnum síðan árið 2020. Fólk deyr í tuga­tali á hverju ári og samt er ekki unnið eftir neinu lang­tímaplani.“

Segir hann að lokum hann sé nú búinn að leggja fram þings­á­lykt­un­ar­til­lögu á Alþingi þar sem hann krefst þess að stefna í mála­flokknum verði mótuð. „Við hljótum að gera allt sem við getum til þess að fækka dauðs­föllum og hlúa betur að fár­veiku fólki.“ Segir hann að lokum: „Fárveikt fólk með ban­vænan sjúk­dóm á ekki að þurfa að bíða mán­uðum saman eftir aðstoð. Úrræða­leysið er algert og því þarf að breyta.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins