„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Plötugagnrýni Hilmars – Sorglegur svanasöngur Peter Gabriel?

Plötugagnrýni Hilmars – Sorglegur svanasöngur Peter Gabriel?
IO Peter Gabriel

I/O er 9 platan frá Peter Gabriel. Síðasta platan með frum­sömdu efni var Up sem að kom út árið 2002, að vísu sendi hann frá sér hina und­ur­fögru töku­laga plötu „Scratch my back“ árið 2008.

Áður en ég hlust­aði ákvað ég að gera mitt besta í því að leggja allt fyrra efni frá honum til
hliðar, og ekki gera mér of miklar vonir þó svo að biðin hafi verið löng, og alls ekki að fara að bera hana saman við meist­ara­verkin Us og So. Í boði eru 2 útgáfur „Bright side mix “og „Dark side mix.“ Ég ætla ekki að gera upp á milli þeirra, þau eru bæði góð þó svo að dark side mix eigi betur við núna í skamm­deg­inu. Þetta er mjög skemmti­leg nýj­ung hjá honum sem að ég vona að fleiri fari að til­einka sér. Hinn 73 ára gamli lista­maður byrj­aði á því snemma árs að gefa nokkur lög út á fullu tungli áður en að platan kom út. Sjálfur sér hann um upp­töku stjórn ásamt Brian Eno og Richard Russell. Á plöt­unni eru hinir ýmsu hljóð­færa­leik­arar en sjálf­ur­spilar hann á píanó hljóm­borð per­úska gít­ar­inn Charango og glasa­hörpu og ber helst að nefna Tony Levin á bassa, David Rhodes á gítar, Manu Katché á trommur og Melanie Gabriel í bak­röddum.

Platan fer vel af stað og opnar með smell­inum „panopticom“ sem að er ágætis popp­lag með
drunga, hálf­gert bipolar lag sem flakkar á milli jarð­ar­farar og næt­ur­klúbbs. Næst tekur við
lagið the „court“ sem er fagur hitt­ari með sterkum texta. Nú kemur þessi fal­lega lág­stemda
ball­aða „Playing for time“ fagur píanó­leikur kveður á við strengi, lagið er lág­stemmt og fag­urt með sterkum milli­kafla. Nú dettur platan niður með tit­il­lag­inu i/0 lagið er ekki slæmt þannig séð heldur bara frekar venju­legt popp­lag sem fer inn um annað og út um hitt. Næst er það lagið „For kinds of hor­ses“ sem að mér finnst lang besta lag plöt­unnar svo und­ur­fag­urt og svo sterkt að meira að segja harð­kjarna tog­ara­jaxlar munu fá tár í augun og gæsa­húð. Dásam­legur bassa­leikur Tony Levine sem hefur starfað með Gabriel lengi fær að skína skært og njóta sín.

Nú er það „Road of Joy“ frekar ómerki­legt lag eins og eitt­hvað sam­bland af Steam og Kiss that frog, bara veru­lega leið­in­legt í alla staði. Nú tekur við eitt af feg­urri lögum plöt­unar „So much“ sem er virki­lega fagur ball­aða. Nú popp­ast allt upp með lag­inu „Olive tree“ lagið er ágætt en mér finnst Gabriel vera far­inn að end­ur­taka sig og er ég far­inn að þreyt­ast við hlustun. „Love can heal“ er ekki alveg að gera sig þó svo að dóttir hans Melanie syngi í því eins og engil en þarna er kall­inn að end­ur­taka sig enn og aftur sem að gerir ekk­ert fyrir plöt­una annað en að lengja hana.

Lagið „This is home“ er næst, flott lag sem reynir að hífa plöt­una upp úr þessum botn­lausa pytti sem hún er komin í. Ég er far­inn að  þreyt­ast veru­lega enda búinn að vera að hlusta á hana í yfir 50 mín­útur og ennþá eru tvö lög eftir. Nú er það lagið „And still“ og er það ekki gott, eig­in­lega bara leið­in­legt í alla staði.

Lokalag plöt­unnar er hið fal­lega „Live and let live og í því er von jákvæðni og feg­urð sem er
fal­legur endir eftir að hafa teygað myrkrið í gegnum dimma dali Gabriels. Platan er alltof löng, heilar 68 mín­útur sem allir vita að boðar ekki gott. Lögin eru mis­jöfn „4 kinds of hor­ses” „The court“ og „So Much“ standa uppúr og get ég trúað því að þau eigi eftir
að lifa ágæt­lega þó svo að þau verði aldrei hans bestu lög, en hin níu eru bara ekk­ert
merki­leg og alltof löng.

Peter Gabriel var þekktur fyrir það á sínum sóló­plötum að vera með lögin í venju­legri lengd og fyrir það að semja stóra hitt­ara sem voru samt ekki gerðir í þeim eina til­gangi að vera hitt­arar heldur voru þeir frum­legir og fullir af töfrum en svo kom Up. Sú plata leið fyrir það hversu löng lögin voru og fékk hún ekki mikla spilun í kjöl­farið og það er eins með þessa og verður þetta aldrei ein af hans betri plötum. Hérna er ekk­ert lag í raun­inni mjög sterkt, ekk­ert Blood of Eden, ekk­ert Mercy Street, ekk­ert Family Snaps­hots, ekk­ert Shock the mon­key. Það sorg­lega við plöt­una er það að hann byrj­aði að vinna hana sam­hliða Up 2002 og hafði yfir 20 lög til þess að velja úr en nið­ur­staðan voru þessi 12 lög og eru 12 lög alltof mikið fyrir þessa plötu vegna lengdar en átta lög max hefðu gert plöt­una betri. Hins­vegar er þetta yfir­leitt með verk sem að eru of lengi í vinnslu lenska að þau floppi og er þessi plata engin und­an­tekn­ing. Hljóð­færa­leik­ur­inn allur er til fyr­ir­myndar og eins er rödd Peter Gabriel upp á sitt besta. Text­arnir eru langt yfir með­al­lagi og hjúpaðir dulúð. Svo ber að
líta til þess að kall­inn er 73 ára og það eru ekki margir á þeim aldri að gera sína bestu plötu.

Hins­vegar verður þetta aldrei eitt af hans betri verkum og finnst mér þetta vera hálf­gerður
hræri­grautur ekki sjálf­stæð heild eins og hinar átta, heldur mikið um end­ur­tekn­ingar og ekk­ert nýtt að ger­ast og er þetta erfitt að sjá mann sem hafði aldrei gert sömu plöt­una tvisvar þar til nú, vera fastur í kvik­syndi og sökkva hægt og rólega dýpra og dýpra. Ég vona samt inni­lega að Peter Gabriel sendi frá sér aðra plötu en ef svo er ekki þá er þetta sorg­legur svana­söngur. það er ekki hægt að segja að sökum ald­urs verði næsta plata slæm, því ég er viss um að hann eigi fullt inni og svo væri gaman að heyra hann gera aðra töku­laga plötu eins og Scratch my back sem hann gerði 2008. En þessi plata deilir botn­inum með Peter Gabriel 2 og Up.

Hilmar Garð­ars­son, tón­list­ar­maður

Hilmar Garð­ars­son
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Aðsend skoðun

Hið níu daga smokklausa sumar
Skoðun

Björgvin Gunnarsson

Hið níu daga smokklausa sumar

Á hverju ári kem ég til Kaup­manna­hafnar og er þar í viku eða tvær. Ég vafra um á kassa hjól­inu og heim­sæki staði og vini. Í gær hjól­uðum við um 100 kíló­metra, Vester­bro-Lang­el­inie-Norrebro-Vester­bro-Christania-Orested-Vester­bro, geggj­aður 12 tíma túr.Við bjuggum hérna í tæp fimmtán ár, eign­uð­umst vini og bjuggum okkur til heim­ili. Svo fluttum við heim til Íslands og erum búin að...
Eru hvalveiðar dýraníð?
Skoðun

Aðsend grein

Eru hval­veiðar dýra­níð?

Ég var að hlusta á Vilhjálm Birg­is­son í Bítinu á Bylgj­unni. Honum finnst hval­veiða­bannið með ólík­indum og það er hans skoðun því það skerðir lífið hjá mörgum á Akranesi og nær­liggj­andi umhverfi. Við erum mjög mörg, bæði hér­lendis og erlendis sem erum þakk­lát fyrir ákvörðun Svan­dísar mat­væla­ráð­herra og finnst með ólík­indum hvernig Vil­hjálmur og það fólk sem er á hans...
Á nú að raska grafarró Skálholtsfólksins sísvona?
Skoðun

Ritstjórn Mannlífs

Á nú að raska graf­arró Skál­holts­fólks­ins sís­vona?

Í mogg­anum í dag er Kristján Björns­son vígslu­biskup að segja frá því að rann­saka eigi lík­ams­leifar bisk­upa þeirra sem jarð­sett hafa verið í Skál­holti, opna eigi kistur og raska eigi ró mörg­hund­ruð ára gam­alla lík­ams­leifa – í þágu vís­ind­anna! Ég er stað­kunn­ugur hvelf­ingu Skál­holts­kirkju og man reyndar vel eftir því þegar kirkjan var byggð og lík­ams­leifum bisk­upanna og fjöl­skyldu­með­lima þeirra...
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Menning

Menning

Hundurinn hans Dwayne Johnson dó í nótt: „Ég hef verið dofinn yfir þessum missi“

Menning

The Highwaymen heiðraðir í Hörpu: „Fullt af tímalausum smellum og anda kántrítónlistar“

Menning

DJ Khaled og 6ix9ine fengu báðir óhugnanlegar líkkistur sendar heim til sín: „RIP Drake“

Menning

Friðrik Dór hugsar um lygar

Menning

Myrkvi gefur út þriðju breiðskífu sína – Vonast til þess að slá vopnin úr höndum tímans

Menning

Bubbi og Frikki Dór styðja fórnarlömb þjóðarmorðsins á Gaza