„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Ekki enn búið að ákveða hvort kæra eigi dr. Skúla Tómas – Grunaður um sex manndráp

Ekki enn búið að ákveða hvort kæra eigi dr. Skúla Tómas – Grunaður um sex manndráp
Skúli Tómas Gunn­laugs­son.

Mál Skúla Tómasar Gunn­laugs­sonar hjarta­læknis er enn til skoð­unar hjá hér­aðs­sak­sókn­ara en hann er sak­aður um að vera valdur að dauða sex sjúk­linga sinna á Heil­brigð­is­stofnun Suð­ur­nesja á árunum 2018 til 2020, ell­efu mán­uðum eftir að hér­aðs­sak­sókn­ari fékk málið í hendur.

Sjá einnig: Dr. Skúli seg­ist hafður fyrir rangri sök – Sjúk­lingur hans missti part úr eyra
Sjá einnig: Ólafía er eitt af 14 meintum fórn­ar­lömbum dr. Skúla: „Í raun­inni sveltur hún til dauða á níu dögum“

Lög­reglan rann­sak­aði mál sex sjúk­linga sem Skúli Tómas hafði yfir­um­sjón með en hann er grun­aður um að hafa valdið dauða sjúk­ling­anna með því að setja þau í til­efn­is­lausar lífsloka­með­ferðir er hann starf­aði sem yfir­læknir á Heil­brigð­is­stofnun Suð­ur­nesja. Eftir að lög­reglan lauk rann­sókn­inni í febr­úar á þessu ár, var málið sent til hérðassak­sókn­ara. Ýmsar ástæður eru fyrir seina­gang­inum að sögn Kol­brúnar Bene­dikts­dóttur vara­hér­aðs­sak­sókn­ara.

Í skrif­legu svari Kol­brúnar til Mannlífs, segir hún að alls hafi fjögur mál verið tekin fyrir síð­ustu ár, sem varðar grun um að heil­brigð­is­starfs­menn hafi gerst sekir um mann­dráp eða mann­dráp af gáleysi. Eitt þeirra hafi verið látið niður falla, eitt hafi endað með ákæru en svo séu tvö óaf­greidd. Annað þeirra barst 27. des­em­ber 2022 en hitt er mál Skúla Tómasar. Að sögn Kol­brúnar eru málin tvö ótengd. Þau mál sem afgreidd voru tóku fimm og hálfan mánuð og sex mán­uði en þau sem eftir standa hafa verið hjá hér­aðs­sak­sókn­ara í hátt í 11 mán­uði (mál Skúla) og tæpt ár.

Aðspurð um það af hverju hin málin séu ekki enn afgreidd segir Kolbrún ýmsar ástæður geta verið fyrir því. „Það eru ýmsar ástæður fyrir því, staðan er auð­vitað ekki þannig að við getum tekið mál til afgreiðslu um leið og þau ber­ast emb­ætt­inu. Á ákæru­sviði 1 starfa nú 14 ákærendur og sviðið fær um 500 mál til afgreiðslu á ári. Mörg mál­anna eru mjög flókin og viða­mikil og tíma­frekt að vinna þau. Þau mál sem ákært er í taka auk þess mik­inn tíma í dómi. Þannig að staðan er ekki sú því miður að mál sem ber­ast frá lög­reglu fari strax til afgreiðslu. Ég hef nú nýverið úthlutað málum til starfs­manna sem bár­ust í maí og þessu ári en fram að þeim tíma voru þau í bið.“

Spurð hvort hér­aðs­sak­sókn­ara­emb­ættið sé að rann­saka málin eitt­hvað frekar segir Kolbrún ekki svo vera. „Við rann­sökum ekki mál á svið­inu en það kemur oft fyrir að mál eru að mati ákær­anda ekki fullrann­sökuð og þá eru þau end­ur­send lög­reglu með fyr­ir­mælum.“

Þegar Mannlíf spurði Kolbrúnu hvort fyr­ir­séð væri hvenær tekin yrði afstaða til óaf­greiddu mál­anna svar­aði hún: „Já von­andi verða óaf­greiddu málin afgreidd sem allra fyrst.“

Enn starfar Skúli Tómas sem læknir á Land­spít­al­anum, þrátt fyrir grun um sex mann­dráp en Land­læknir veitti honum tak­markað lækna­leyfi og starfar hann nú við almennar lyf­lækn­ingar. Gildir leyfið til 30 júní 2024.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins