„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Útigangsféð fékk „heyrudda“ í dag: „Ekki gott þegar sveitarstjórn lýgur upp í opið geð á fólki“

Útigangsféð fékk „heyrudda“ í dag: „Ekki gott þegar sveitarstjórn lýgur upp í opið geð á fólki“

Kind­urnar í Þver­ár­hlíð fengu „heyrudda“ til sín en þurfa áfram að dúsa í kuld­anum. Gaddavír var ekki fjar­lægður af einni þeirra.

Lygar sveitastjórnaraðila

Steinunn Árna­dóttir skrif­aði enn eina færslu á Facebook í gær þar sem hún sagði frá hræði­legu ástandi á úti­gang­skindum frá bænum Höfða í Borg­ar­firði. Sagði hún að hún „hafi eftir tals­verða fyr­ir­höfn“ náð sam­bandi við hér­aðs­dýra­lækni vegna úti­gang­skind­anna. Sagðist dýra­lækn­ir­inn hafa heyrt í aðila í sveita­stjórn Borg­ar­byggðar sem hafi full­yrt að búið væri að bregð­ast við kvört­unum. „Búið væri að smala og gefa kindum.“ En þegar Steinunn athug­aði með kind­urnar kom í ljós að ekk­ert hefði verið gert, kind­urnar væru þarna ennþá og ekk­ert fóður hjá þeim. „Það er ekki gott þegar sveit­ar­stjórn lýgur upp í opið geð á fólki. Lygar sem bitna á mál­leys­ingjum. Hafið skömm fyrir!“ skrif­aði Steinunn og bætti við: „Þið fáið ekki verð­laun á þessu ári fyrir bættan hag mál­leys­ingja!!“

Ástandið í dag

Mannlíf sagði frá því í morgun að dýra­vernd­ar­sinnar hafi ætlað sér að fara í björg­un­ar­að­gerð til bjargar kind­unum í Þver­ár­hlíð. Steinunn var ein af þeim sem mættu í dag í til­raun til að bjarga kindum sem hafa verið sjálfala um nokk­urt skeið í Þver­ár­hlíð í Borg­ar­nesi, með marg­falda ull­ar­reifa á sér. Ein þeirra er föst í gadda­vír.

Gaddavír flæktur í kind­inni

„Fram­halds­sagan af úti­gangsfé í Þver­ár­hlíð 30.des­em­ber

Út af ein­hverju var búið að henda heyrudda í ves­al­ing­ana!Gadda­vír­inn var enn á sínum stað vaf­inn um kind­ina. Táknrænt: þessar skepnur eiga að líða!!

Ómakið við að koma heyi í þessar kindur hefur senni­lega orðið til þess að aðrar kindur fá ekki neitt þennan dag­inn(sjá myndir).“ Þannig hefst ný færsla frá Stein­unni sem hún birti á Facebook. Og færslan hélt áfram: „Einn þátt­tak­and­inn í þessum gjörðum í dag af hálfu dýra­vina varð að orði: „Kúa­bónd­inn á næsta bæ fær ekki að selja mjólk­ina sína ef vatns­karið hjá kúnum er ekki nógu stórt. Bóndinn hér má pína kind­urnar sínar ára­tugum saman. Alltaf getur hann haldið áfram og selt kjötið af þessum hor­uðu ves­al­ingum. Ekkert sem stoppar þá fram­leiðslu. Og fær auk þess greitt fyrir hjá rík­inu Millj­ónir á ári.”

Ekki margar atvinnu­greinar sem standa sig svona vel (HÆÐNI).“

Við færsl­una birt Steinunn ljós­myndir af kind­unum en þær eru fimm á þessum stað en víðs­vegar um sveit­ina eru úti­gang­skindur frá bónda­bænum Höfða.

Hér má sjá nokkrar myndir sem Steinunn tók af fénu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins