„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Amerískur hermaður skaut Gunnar í hnakkann í gegnum bílrúðu – Í tveimur tilfellum voru börn myrt

Amerískur hermaður skaut Gunnar í hnakkann í gegnum bílrúðu – Í tveimur tilfellum voru börn myrt

Hermenn eru þjálfaðir til að drepa, eðli máls­ins sam­kvæmt, en það er munur á drápi á óvinum og morði. Þar til nýlega var talið að her­menn hefðu myrt þrjá Íslend­inga á tímum her­set­unnar, en nú þykir ljóst að morðin voru fjögur. Í tveimur til­fellum voru börn myrt, en í hinum tveimur voru það karl­menn sem urðu fyrir barð­inu á her­mönnum. Hér verða málin rifjuð upp með hjálp gam­alla frétta af mál­unum.

Rifrildi sem gekk of langt

Hermaður varð ungum manni að bana í Hafn­ar­firði. Nokkrum her­mönnum hafði lent saman við hóp Íslend­inga og end­uðu þau mál á því að tveir her­mann­anna hófu að skjóta á Íslend­ing­ana með skamm­byssum sínum. Eftir skot­hríð­ina lá einn í valnum og tveir slas­aðir. Svo virð­ist sem lætin hafi byrjað þegar fórn­ar­lambið gætti ekki að því hvar hann gekk.

Strand­gata 4

Þetta gerð­ist þann 8. nóv­em­ber árið 1941. Alþýðu­blaðið sagði svo frá mál­inu á mánu­deg­inum 10. nóv­em­ber:

„Amer­íkskir her­menn skjóta á hóp manna í Hafn­ar­firði

Þrír af mönn­unum særð­ust og einn þeirra mjög hættu­lega.
Skýrsla bæi­ar­fó­geta­full­trú­ans í Hafn­ar­fl­rði.

SÍÐASTLIÐIÐ LAUGARDAGSKVÖLD kl 10.30 gjörð­ist sá atburður, að tveir her­menn úr Banda­ríkja­hernum á Íslandi skutu með skamm­byssu á hóp íslenzkra manna fyrir utan húsið Strand­götu 4 í Hafn­ar­firði. Skutu þeir 5—6 skotum áður en þeir hlupu burt vestur Vest­ur­götu. Tveir menn urðu fyrir skotum: Þórður Sig­urðs­son, Aust­ur­götu 27 sem fékk kúlu­skot í gegnum magan og liggur hann nú á St. Jós­eps­spít­ala þungt hald­inn.

Sigurður L. Eiríks­son Kross­eyr­ar­veg 2 varð einnig fyrir skoti. Fór kúla upp um sól­ann á skó á vinstra fæti og marð­ist fót­ur­inn og kom á hann smá­skeina. Auk þess var hann mar­inn á lófa á vinstri hönd, að því er virð­ist eftir kúlu, sem hafði strok­ist með lóf­anum. Margir menn veittu her­mönn­unum eft­ir­för vestur göt­una. Þegar komið var vestur fyrir sölu­búð
F. Hansens skaut annar her­mað­ur­inn enn einu skoti á þá, sem eltu hann. Annar her­mað­ur­inn var hand­samaður uppi á Kirkju­vegi og afhentur lög­regl­unni. Hinn her­mað­ur­inn hljóp vestur Kirkju­veg­inn og skaut þá enn einu skoti á Sig­ur­geir Gíslason, Aust­ur­götu 21, sem veitti honum eft­ir­för, og straukst kúlan við fremsta lið á þum­al­fingri á vinstri hendi, og kom skeina á fing­ur­inn. Þessi her­maður náð­ist ekki.

Aðdrag­andi að þessum atburði er sá, að margt manna var saman komið inni á veit­inga­stofu við Strand­götu 6 og þar á meðal 4 Banda­ríkja­her­menn, sem sátu þar við borð og voru að drekka öl. Á gólf­inu stóð Þórður Sig­urðs­sen með ölflösku í hend­inni og var að tala við annan mann. Snéri Þórður baki að her­mönn­unum. Steig Þórður eitt eða tvö skref aftur á bak og mun þá hafa komið við einn af Banda­ríkja­her­mönn­unum; tók hann sam­stundis upp skamm­byssu úr frakka­vasa sínum og otaði henni að Þórði. Reiddi Þórður þá upp ölflösk­una sem hann hafði í hend­inni, og skip­aði her­mann­inum að láta byss­una niður, og stakk hann henni taf­ar­laust í frakka­vas­ann aftur. Stuttu síðar stóðu her­menn­irnir upp og fóru út. Um leið og þeir fóru út, munu þeir hafa sagt Þórði að koma út með sér. Fór hann út á eftir þeim og flestir þeir, sem höfðu verið inni á veit­inga­stof­unni. Her­menni­mir gengu vestur Strand­götu og Þórður og hinir menn­irnir í humátt á eftir þeim.

Þegar her­menn­irnir höfðu gengið lít­inn spotta snéru tveir þeirra sér allt í einu við og hófu skot­hríð á menn­ina og skutu senni­lega 4—5 skotum þarna. Þegar stot­hríðin hófst, var Þórður Sig­urðs­son í um tveggja faðma fjar­lægð frá her­mönn­unum. Miðaði annar þeirra skamm­byss­unni á hann og skaut á hann. Þórður hljóp þegar á her­mann­inn og hafði að hrista skamm­byss­una úr hend­inni á honum. Um leið hlupu margir þeir, sem staddir voru
þama nálægt, af stað til þess að hjálpa Þórði, en áður en þeir komu til þeirra, hafði her­mað­ur­inn losað sig og hlaupið burtu, vestur göt­una. Þeir tveir her­menn sem voru með þeim, er að skot­hríð­inni stóðu, hlupu einnig burtu, og náð­ust ekki. Af Þórði hefir enn ekki verið hægt að taka skýrslu sökum þess, að hann liggur þungt hai­dinn á St. Josephs spít­ala.
Þetta er sam­kvæmt skýrslu frá full­trúa bæj­ar­fó­get­ans í Hafn­ar­firði. Samkvæmt öðrum heim­ildum hefir blaðið frétt um áverka Þórðar, að kúlan hafi farið inn í mag­ann hægra megin og út vinstra megin.

Þórður Sig­urðs­son er 22 ára að aldri.“

Þórður Sig­urðs­son

Nokkrum dögum síðar lést Þórður af sárum sínum. Samkvæmt blað­inu Vest­ur­land brut­ust út slags­mál milli her­mann­anna og Íslend­ing­anna sem lauk með skotárás Banda­ríkja­mann­anna. Sagt er frá mál­inu í Vest­ur­landi hér að neðan:

„Íslenzkur maður skot­inn til bana af amer­ískum her­manni

Síðastl. laug­ar­dag urðu skærur milli íslend­inga og amer­ískra her­manna á veit­inga­húsi í Hafn­ar­firði. Bárust áflogin siðan út á götu, fyrir framan veit­inga­húsið. Er sagt, að amer­ísku her­menn­irnir hafi beðið þar lægri hlut. Tóku þeir þá til skot­vopna. Var einn Íslend­ing­anna, Þórður Sig­urðs­son, skot­inn i kvið­inn, en annar i rist­ina. Ameríska her­lög­reglu bar þá að þarna og flutti her­menn­ina burt, en Þórður var taf­ar­laust fluttur i sjúkra­hús og lá þar þungt hald­inn, þar til að hann and­að­ist s. l. mið­viku­dags­kvöld af völdum skotsárs­ins. Yfir­hers­höfð­ingi amer­íska setu­liðs­ins og sendi­herra Banda­ríkj­anna hafa tjáð for­sæt­is­ráð­herra afsökun sína út af þessum atburðum og lýst því yfir, að hinir amer­ísku her­menn hafi borið vopn í leyf­is­leysi og verði ríkt gengið eftir þvi fram­vegis að slíkt komi ekki fyrir.“

Her­menn­irnir hlutu fimm ára fang­els­is­dóm fyrir morðið.

Skotinn í hnakk­ann

Laug­ar­dag­inn 14. mars árið 1942 gerð­ist sá hroða­legi atburður að amer­ískur her­maður skaut Gunnar Ein­ars­son í hnakk­ann í gegnum bíl­rúðu í bif­reið sem Gunnar var far­þegi í. Gunnar lést af sárum sínum.

Gunnar Ein­ars­son

Dag­blaðið Verka­mað­ur­inn skrif­aði harð­orða frétt, viku seinna, þann 21. mars, enda vakti málið óhug og reiði Íslend­inga um allt land.

„Hroða­legur glæpur.

Amer­ískur her­maður myrðir íslenzkan mann.

S.l. laug­ar­dags­kvöld gerð­ist sá atburður í Sogamýri við Reykja­vík, að amer­ískur varð­maður skaut Gunnar Ein­ars­son, starfs­mann hjá Kol & Salt h.f., til bana, þar sem hann var á ferð, í bíl, með kunn­ingja sínum, Magnúsi Ein­ars­syni, fram­kvæmda­stjóra Dósa­verk­smiðj­unnar.
Fara hér á eftir helstu atriðin úr skýrslu, sem Magnús Ein­ars­son hefir gefið saka­dóm­ara um þetta mál.

Gunnar Ein­ars­son var staddur hjá Magnúsi, á laug­ar­dags­kvöldið, en hann býr að Soga­mýr­ar­bletti 54. Kl. 10.15 ætl­aði Magnús að aka Gunnari heim í bif­reið­inni R 1183, en hún er með hægri handar stýri. Ók Magnús bif­reið­inni, en Gunnar sat við hlið hans. Þeir ætl­uðu að koma við í Lauf­skálum á leið­inni, en þeir liggja við Engjaveg, en að honum liggur
tröðn­ingur frá Suð­ur­lands­braut­inni. Liggur troðn­ing­ur­inn rétt vestan við her­búð­irnar „Háloga­land Camp“, en þar dvelja amer­ískir her­menn. Rétt fyrir norðan þann stað, þar
sem beygt er út af Suð­ur­lands­braut­inni voru þeir stöðv­aðir af amer­ískum varð­manni. Kom hann hægra megin að bílnum — þeim megin er Magnús sat — og inti þá eftir hvert för­inni væri heitið. Svöruðu báðir sam­tímis, en Magnús segir, að hann skilji ekki vel ensku og tók hann því ekki vel eftir, hvað þeim Gunnari og varð­mann­inum fór á milli, en því lauk á þann veg, að varð­mað­ur­inn sagði „all right“ og leyfði þeim að halda áfram. En þegar þeir höfðu ekið um fjórar bif­reiða­lengdir stöðv­aði annar varð­maður þá og kom hann vinstra megin að bílnum — Gunnars megin — og tal­aði við hann. Sögðu þeir þrjár til fjórar setn­ingar hvor, og fór varð­mað­ur­inn síðan frá bílnum, svo ekki var hægt að skilja þetta öðru vísi, en að þeir mættu halda leiðar sinnar með sam­þykki hans. Ók Magnús þá af stað, en þegar hann hafði ekið um 3—4 bíla­lengdir kvað við skot. Áleit hann að það væri þeim óvið­kom­andi, en
stöðv­aði þó bif­reið­ina til vonar og vara. Tók hann þá eftir því að fram­rúða bíls­ins var möl­brotin og í sama mund hné höfuð Gunnars á vinstri öxl hans. Leit hann þá framan í Gunnar og sá, að blóð streymdi úr vitum hans, og þegar hann þreif­aði á höfði hans fann
hann skotsár á hnakk­anum. Fór Magnús strax úr bílnum, en í því bili kom hópur Banda­ríkja­her­manna þarna að og tóku þeir Gunnar út úr bílnum. Virtist Magnúsi hann þá lát­inn, en hann mun ekki hafa and­ast fyr en um klukkan 3 um nótt­ina.

Þessi atburður hefir vakið hryll­ing og við­bjóð um allt land. Ameríski her­inn hefir áður framið hér óhæfu­verk, en nú er gengið feti framar og virt­ist mönnum þó áður nóg komið af óhappa­verkum „vernd­ara“ okkar. Enginn íslend­ingur fær skilið, að amer­íska hernum sé nauð­syn­legt að myrða íslenska menn til þess að vernda öryggi amer­íska hers­ins. Vér fáum ekki séð, að öryggi amer­íska hers­ins sé stefnt í hættu, þó látið sé vera að beita skot­vopnum gegn vopn­lausum Islend­ingum. Reynsla bretska setu­liðs­ins hér á landi bendir ekki til þess að nauð­syn­legt sé að beita glæpa­manna­að­ferðum í umgengni við þá menn, sem eru undir „vernd“ ensku og amer­ísku setu­lið­anna. Það væri betur, að amer­íski her­inn sýndi meiri dugnað, í bar­átt­unni gegn Japönum, en að skjóta vopn­lausa íslend­inga aftan
frá. Slíkur atburður, sem þessi má ekki end­ur­taka sig. íslenska þjóðin krefst þess, að gerðar verði taf­ar­laust ráð­staf­anir til að tryggja að slíkt end­ur­taki sig ekki. Rík­is­stjórnin verður að halda fast og sköru­lega á rétti íslend­inga í þessu máli, og ekki láta þann mál­flutn­ing niður falla fyr en trygt er að amer­ísku her­menn­irnir komi fram í við­skiftum sínum við íslend­inga,
sem full­trúar sið­menn­ing­ar­þjóðar en ekki sem fyr­ir­lit­legir glæpa­menn. Á þann eina hátt verður best borgið öryggi íslend­inga og öryggi og sæmd amer­íska hers­ins.“

Her­mað­ur­inn var sýkn­aður af her­rétti en öku­maður bif­reið­ar­innar hafði ekki hlýtt skipun her­manns­ins um að stöðva.

Hinn kolsvarti hvítasunnudagur

Það er hvíta­sunnu­dagur. Tveir drengir leika sér við varð­stöð Banda­ríkja­hers við Hall­veig­ar­stíg og annar þeirra fer upp í bíl á vegum hers­ins og startar bílnum. Hermaður sem hafði haft afskipti af þeim rétt áður, rekur dreng­inn út úr bílnum og dreng­ur­inn hlýðir. Her­mað­ur­inn gengur upp að drengnum og leggur byssu­hlaup við gagn­auga hans. Og tekur í gikk­inn. Lífvana dreng­ur­inn dettur í jörð­ina. Þessi hvíta­sunnu­dagur er orð­inn kol­svartur. Þetta var árið 1942.

Jón H. Bene­dikts­son

Í blað­inu Íslend­ingur er atvik­inu svo lýst:

„Á hvíta­sunnu­dag kl. 11 árdegis gerð­ist sá óheyri­legi atburður í Reykja­vík, að amer­ískur her­maður skaut 12 ára dreng til bana, er var að leik með öðrum dreng nálægt
varð­stöðvum her­manns­ins. Þetta furðu­lega glæpa­verk gerði hvíta­sunnu­há­tíð­ina að sorg­ar­degi í Reykja­vík og ann­ars­staðar, er fregnin spurð­ist. Dreng­ur­inn hét Jón Hinrik Bene­dikts­son og átti heima aö Ing­ólfs­stræti 21 í Reykja­vík. Her­mað­ur­inn og yfir­menn hans
voru óðar hand­teknir, en her­stjórn og sendi­herra Banda­ríkj­anna lýstu yfir harmi sínum yfir þessum atburði. Málið er enn ekki upp­lýst að fullu, en frek­ari upp­lýs­ingar hljóta að varða gefnar mjög bráð­lega.“

Í Morg­un­blað­inu var fjallað ítar­lega um málið en meðal þess sem fram kom þar voru frá­sagnir nokk­urra vitna.

Ein frá­sögnin kemur frá leik­bróður Jóns, Guðmundi.

„Fyrir hádegi í dag hitti jeg leik­bróðir minn, Jón Hinrik Bene­dikts­son. Hann ætl­aði að
kaupa sjer filmu í mynda­vjel og fór jeg með honum í Lyfja­búð­irnar Ingólfs Apótek,
Reykja­víkur Apótek og Lauga-,vegs i Apótek, én hvergi var filmu að fá. Þegar við komum
úr Lauga­vegs Apóteki gengum við suður Berg­staða­stræti óg niður Hall­veig­ar­stíg, fram­hjá
her­stöð­inni, sem er þar norð­an­megin göt­unnar. Við stopp­uðum móts við her­mann, sem stóð á verði á Hall­veig­ar­stígnum, móts við her­búð­irnar. Svo kom her­maður og festi upp aug­lýs­ingu í varð­manns­skýlið. Við Jón fórum að skýl­inu og lásum aug­lýs­ing­una. Svo gengum við niður með girð­ing­unni, niður að Ing­ólfs­stræti. Jeg var með skamm­byssu, tálg­aða úr trje. Jón kippti af mjer byss­unni og henti henni yfir girð­ing­una inn á milli her­búð­anna. Jón stökk svo aftur upp á móts við varð­mann­inn og jeg sagði honum
að ná í byss­una. Um sama leyti tók her­maður byss­una og kastaði henni út fyrir girð­ing­una og greip hana þá lít­ill strákur, sem var þar fyrir utan. Jón hljóp inn um hliðið á girð­ing­unni, fram­hjá varð­mann­inum. Varð­mað­ur­inn kall­aði þá til hans og, að mjer skild­ist, skip­aði honum að koma út og hlýddi Jón því strax. Jeg var með dolk í slíðri, sem var fest í streng­inn á bux­unum mínum og tók jeg nú dolk­inn og fór að kasta honum í ljósa­staur, sem stendur skamt frá stað þeim, sem varð­mað­ur­inn stóð á og var jeg að reyna að láta odd­inn sting­ast í staur­inn. Jeg lán­aði svo Jóni dolk­inn og hann gerði það sama og jeg, kastaði honum í staur­inn og reyndi að láta odd­inn sting­ast í trjeð. Þar næst fór Jón upp í lít­inn bíl, sem stóð við girð­ing­una, rjett hjá varð­mann­inum. Jón fiktaði við stýrið á bif­reið­inni, en gerði ekki annað. Varð­mað­ur­inn kom þá út úr skýl­inu og kall­aði til Jóns og fór Jón þá niður úr bílnum.

Þá vildi jeg fara heim, en Jón sagði að við skyldum bíða til kl. 12, því þá mundu her­menn­irnir gefa okkur epli, það væri hátíð­is­dagur hjá þeim í dag. Jeg var til með að bíða. Við stóðum svo þarna á göt­unni og töl­uðum eitt­hvað saman. Svo fór Jón aftur upp í sama bíl­inn og áður og fór þá að ,starta’ bílnum. Varð­mað­ur­inn kom þá aftur út úr byrg­inu, gekk að bílnum og skip­aði honum út úr bílnum, að því er mjer skild­ist.Jón hlýddi því strax og fór út úr bílnum. Jón fór svo upp að girð­ing­unni bak við bíl­inn og jeg kom þangað til hans. Varð­mað­ur­inn var með stóra byssu, jeg heyrði og sá að hann spenti byss­una upp. Þá var hann götu­megin við bíl­inn. Svo gekk hann að Jóni og beindi byssu­hlaup­inu að höfð­inu á honum, svo reið skotið af, Jón fjell í göt­una og jeg sá að blóð rann úr vitum hans. Varð­mað­ur­inn gekk svo í burtu án þess að hreyfa neitt við Jóni, en jeg hljóp í burtu
niður á Ing­ólfs­stræti og svo skemstu leið heim til mín.“

Gunn­laugur Magn­ús­son skrif­stofu­maður var eitt af vitn­unum.

„Jeg bý á fyrstu hæð húss­ins Hall­veig­ar­stíg 2, og er þar her­bergi mitt austan megin við for-
stofu­inn­gang­inn og snýr her­berg­is­glugg­inn út að Hall­veig­ar­stígnum. 1 morgun, þegar jeg
var að klæða mig, varð mjer litið út um her­berg­is­glugg­ann og sá þá her­menn standa við end­ann á bif­reið, sem stóð rjett fyrir vestan varð­manns­skýlið. Her­mað­ur­inn beindi byssu að
dreng, sem stóð þar fyrir framan hann upp við girð­ing­una. Á næsta augna­bliki heyrði jeg
skot­hvell og dreng­ur­inn datt niður í göt­una og lenti með höf­uðið ofan í litlum vatns­polli, sem var þar á göt­unni á milli girð­ing­ar­innar og bíls­ins. Her­mað­ur­inn gekk svo í burtu og inn í her­búð­irnar, en nokkrir her­menn komu út í girð­ing­ar­hliðið og einn her­maður gekk að
drengnum með teppi og breiddi yfir hann. Alveg rjett á eftir komu tveir her­menn með börur og báru dreng­inn inn í her­búð­irnar. Jeg heyrði ekki nema einn skot­hvell.“

Sendi­herra Banda­ríkj­anna á Íslandi á stríðs­ár­unum hét Lincoln MacVeagh en hann sendi yfir­lýs­ingu á alla helstu fjöl­miðla lands­ins þar sem hann harm­aði atburð­inn.

„Það hefir fengið mjög á alla sanna Banda­ríkja­menn við frjett­irnar um hinn sorg­lega atburð. Við erum hjer á íslandi sem vinir íslands til að gera gott en ekki ilt og við óskum að hjálpa land­inu á allan mögu­legan hátt. Við lítum á það sem heiður fyrir okkur að dvelja hjer, og okkur er það sjer­stakur harmur að við skulum vera valdir að sorg hjer á landi. Verið er að rann­saka þetta mál, en það er hægt að segja það strax, að það er sjer­stak­lega hræði­legt í augum Banda­ríkja­manna sem elska börn, að dreng­ur­inn skuli hafa verið skot­inn til bana. Hin harmi lostna fjöl­skylda og allir sorg­mæddir Islend­ingar mega vera vissir um, að ótelj­andi Banda­ríkja­menn syrgja með þeim af heilum hug.“

Málið vakti skilj­an­lega mik­inn óhug á Íslandi enda ekki á hverjum degi sem morð var framið á land­inu, hvað þá á barni. Her­mað­ur­inn sagði skotið hafa verið slysa­skot, en hann fór fyrir her­rétt í Banda­ríkj­unum. Alþýðu­blaðið sagði svo frá úrskurð­inum í mál­inu:

„Mál litla drengs­ins, Jóns Bene­dikts­sonar, sem skot­inn var til bana af amer­íkskum her­manni síð­ast­lið­inn hvíta­sunnu­dags­morgun: Her­mað­ur­inn reynd­ist sjúkur af brjál­semi. Var hann
sendur í geð­veikra­hæli í Banda­ríkj­unum.“

Morðið á Steinunni

Þökk sé Gísla Jökli Gísla­syni lög­reglu­manns, hefur nú komið í ljós með nokkuð óyggj­andi hætti að hin þrettán ára Steinunn Sig­urð­ar­dóttir lést ekki úr heila­himnu­bólgu 19. apríl 1945, líkt og skráð er í dán­ar­vott­orði hennar, heldur vegna höf­uð­höggs sem hún hlaut í árás her­manns, þremur mán­uðum áður.

Steinunn Sig­urð­ar­dóttir

Gísli Jökull var í við­tali hjá Rúv á dög­unum þar sem hann sagð­ist hafa birt færslu á Facebook-hópnum Gamlar ljós­myndir, þar sem hann fjallar um þau morð sem her­menn frömdu hér á landi á stríðs­ár­unum. Þá hafi Herdís Dögg Sig­urð­ar­dóttir skrifað athuga­semd og bent honum á að hann hefði gleymt frænku hennar, Stein­unni Sig­urð­ar­dóttur eða Lillu líkt og vinir og ætt­ingjar köll­uðu hana jafnan. Og þannig fór bolt­inn að rúlla. Ekki voru til miklar heim­ildir um árás­ina en eina frétt fann Gísli, minn­ing­ar­grein og gamla dag­bók­ar­færslu lög­regl­unnar. Sagði hann í við­tali við RÚV að allar líkur væru á að Steinunn hefði hlotið höf­uð­högg í árásinni, sem síðan hafi dregið hana til dauða, þremur mán­uðum síðar. „Hún hefur án efa fengið höf­uð­högg, því að þær lýs­ingar eru til hjá fjöl­skyld­unni að hún var eig­in­lega ófær um nokkuð eftir þetta,“ sagði Gísli. „Hún var alltaf rúm­liggj­andi, með mik­inn höf­uð­verk, og svo deyr hún nokkrum mán­uðum seinna.“ Bætti hann við: „Heila­himnu­bólga og alvar­legur höf­uð­á­verki eru með mjög lík ein­kenni.“

Hér má sjá frétt Alþýðu­blaðs­ins um árás­ina:

„Ný árás:Hermaður ræðst á 13 ára telpu á Laug­ar­ness­vegi.

Það lítur svo út, sem óhæfu­verk her­manns­ins sem réðst á stúlk­una á Ásvalla­göt­unni á sunnu­dags­kvöldið hafi smitað út frá sér, því í fyrra­kvöld var önnur árás gerð af her­manni, á 13 ára telpu inn á Laug­ar­nes­vegi, og særð­ist stúlkan á hníf, sem her­mað­ur­inn otaði að henni.

Klukkan um hálf­ell­efu á mánu­dags­kvöldið var lög­reglan kvödd inn á Laug­ar­nes­veg og hitti hún þar telpuna, sem skýrði frá því, að her­maður hefði ráð­ist á sig og otað að sér hníf, er hún hefði ekkí viljað fylgj­ast með honum. Kvaðst hún hafa verið á gangi suður Laug­ar­nes­veg­inn og her­maður veitt sér eft­ir­för, og ávarpað sig, en hún gaf því engan gaum — og hélt áfram. Veit hún þá ekki fyrri til, en her­mað­ur­inn ræðst á hana og ætlar að draga hana út fyrir veg­inn, en hún streytt­ist á móti. Tók þá her­mað­ur­inn upp hníf og otar að henni, en hún ber að sér lagið, en hlýtur við það skurð á hægri hendi. Enn­fremur meidd­ist telpan á hné í viður­eign­inni.

Rétt í þessu ók bif­reið um. veg­inn og stað­næmd­ist rétt hjá þeim. Við það brast hetj­una móð­inn og tók til fóta sinna og flýði í burt, en telpan fór inn í næsta hús, og var þar gert að sárum hennar, og fór hún því næst heim til sín.“

ÚR dag­bók lög­regl­unnar um árás­ina. Skjáskot af RÚV.

Kennari Stein­unnar skrif­aði hjart­næma minn­ing­ar­grein um hana í Morg­un­blað­inu sem má lesa hér að neðan:

„ÞAÐ ER dimmur vetr­ar­dagur. Litlu skóla­börnin, 7 ára gömul, lúta yfir verk­efnin sín: fyrstu sög­una — fyrstu heilu bók­ina, sem þau eiga að skila. Hæglát og prúð stúlka stendur fyrst á fætur, gengur til kenn­ar­ans og rjettir fram bók­ina sína. Jú, þarna er alt eins og um var beðið: Sagan fyllir út bók­ina, 4 blað­síður, 2 línur á hverri, hrein­lega skrifað. Og með gleði­blik í augum, svo hóg­vært, að það sjest aðeins ef vel er að gætt, segir litla stúlkan: „Jeg trufl­að­ist aldrei“. — Þetta var Steinunn Sig­urð­ar­dóttir, sem for­eldrar og nán­ustu vinir köll­uðu Lillu. Sex ár hafa liðið. Lilla stund­aði námið í sama hópnum — með ljúf­lyndi og prúð­mensku, sem aldrei trufl­að­ist. Jeg minn­ist þess ekki, að bekkj­ar­systk­ini hennar ættu nokk­urn­tíma við hana mis­klíð­ar­efni. Kurteis og mild var hún öllum hug­þekk. Á fyrstu sól­skins­stund þessa sum­ars, er öll íslensk börn halda sína per­sónu­legu fagn­að­ar­há­tíð, barst okkur fregnin um and­lát Lillu. Á fyrsta fulln­að­ar­prófs degi sínum fengu bekkj­ar­systk­ini hennar öll að vita, að Lilla hafði þegar •— fyrst okkar allra — lokið þyngsta fulln­að­ar­prófi lífs­ins. Lokið því með sinni hlýju, traustu hóg­værð — án þess að trufl­ast. Og minn­ing­arnar fögru og hlýju í hjörtum for­eldra hennar, systk­ina og allra vina munu heldur ekki trufl­ast. — Við vonum öll að fá síðar að fagna henni í þeim heimi, þar sem við­kvæmni og blíða er meira metin en oft vill verða í þeim heimi, sem við nú lifum í.
J.E.“

Þetta sam­an­safn Bak­sýn­is­spegla birt­ist í fimmta tölu­blaði Mannlífs sem kom út í apríl 2023 og má lesa hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Baksýnisspegillinn

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“
MannlífiðBaksýnisspegillinn

Íslend­ingur kom upp um rúss­neska njó­sn­ara: „Tveir af njósn­urum erlends stór­veldis stóðu afhjúpaðir“

Styrmir Gunn­ars­son heit­inn er ekki eini njósn­ari Íslands­sög­unnar. Á meðan Styrmir njósn­aði um vinstri­s­inn­aða Íslend­inga fyrir Banda­ríkin og Sjálf­stæð­is­flokk­inn, reyndu Soví­et­menn að fá Ragnar nokkurn Gunn­ars­son til lags við sig. Árið 1962 hafði Ragnar sam­band við lög­regl­una og tjáði þeim frá því að Soví­et­menn væru að biðja hann um að ger­ast njósn­ari í þeirra þágu. Við tók reyfara­kennd atburða­rás sem...
Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“
MannlífiðBaksýnisspegillinn

Glitfaxi – flug­vélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hug­hvarf“

Þann 31. jan­úar 1951 lagði Dagota flug­vél Flug­fé­lags Íslands að nafni Glitfaxi af stað í áætl­un­ar­flug frá Vest­manna­eyjum til Reykja­víkur. Um borð var þriggja manna áhöfn og sautján far­þegar. Veðrið var vafa­samt en hríða­bylur var úti og ekki hafði verið flogið til eða frá Eyjum í þrjá daga vegna veð­urs­ins. Rétt fyrir fimm var Glitfaxi staddur yfir stefnu­vita Reykja­vík­ur­flug­vallar á...
Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls
MannlífiðBaksýnisspegillinn

Frækileg björgun Víkverja er Sig­ur­björg strand­aði – Aðstæður erf­iðar vegna roks og sand­byls

Föstu­dag­inn 7. mars árið 1981 strand­aði bát­ur­inn Sig­ur­bára VE-249, á Skóg­ar­sandi. Sjö menn voru í áhöfn báts­ins en tókst að bjarga þeim öllum. Vest­manna­eyja­radíó til­kynnti björg­un­ar­sveit­inni Víkverja frá Vík í Mýrdal klukkan 10:50 föstu­dags­morg­un­inn 7. mars 1981, að Vest­manna­eyja­bát­ur­inn Sig­ur­bára VE-249 hefði strandað á Skóg­ar­sandi. Björg­un­ar­sveitin, sem var þaul­vön álíka björg­unum, var ekki í miklum vand­ræðum með að bjarga öllum...
Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir
MannlífiðBaksýnisspegillinn

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyja­firði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrek­aðir

Fimm ungir skátar frá Akureyri lögðu af stað í leið­angur í Eyja­firði annan í jólum 1980. Aðeins þrír þeirra komu lif­andi úr ferð­inni. Fimm manna skáta­hópur lentu í skelfi­legu óveðri, sem eng­inn hafði búist við, þegar þeir tjöld­uðu í Finna­staða­dal annan í jólum 1980. Í óveðr­inu fauk ofan af þeim annað tjald þeirra af tveimur. Ákváðu þeir því að ganga...
Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður
MannlífiðBaksýnisspegillinn

Hópur afbrotaung­linga napp­aður á Sauð­ár­króki – Innbrot, búðar- og jóla­skraut­s­þjófn­aður

Hópur afbrotaung­linga var hand­samaður á Sauð­ár­króki í des­em­ber árið 1980 en höfðu þeir þá stolið úr versl­unum í bænum fyrir hátt á fjórðu milljón króna. Í ein­hvern tíma á seinni­hluta árs­ins 1980, hafði stór hópur afbrotaung­linga á Sauð­ár­króki gert það sem „starfs­heiti“ þeirra ber með sér, framið afbrot víðs­vegar um bæinn. Ekki höfðu þeir ein­ungis brot­ist inn í versl­anir í...
Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“
MannlífiðBaksýnisspegillinn

Íslend­ingur yfir­bug­aði banka­ræn­ingja í Kaup­manna­höfn: „Hann er spennu­fík­ill“

Ungur íslenskur spennu­fík­ill komst í frétt­irnar í Danmörku þegar hann yfir­bug­aði banka­ræn­ingja. Brynjar Jökull Elíasson, þá 27 ára, var staddur á mót­or­hjóli sínu á rauðu ljósi í Kaup­manna­höfn fimmtu­dag­inn 29. apríl árið 1999, þegar hann verð var við fimm hettu­klædda menn koma hlaup­andi út úr banka og stökkva upp á skell­inöðrur. Beið hann ekki boð­anna heldur hent­ist strax af stað...
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins