Leikkonan og handritshöfundurinn, Júlíana Sara Gunnarsdóttir, og Andri Jóhannesson trúlofuðu sig á gamlársdag. Parið greindi frá þessu á samfélagsmiðlinum Instagram þar sem þau birtu fallegar myndir af sér.
Andri og Júlíana hafa verið par frá árinu 2019 og eiga bæði tvö börn úr fyrri samböndum. Andri starfar sem þyrluflugmaður hjá Landhelgisgæslunni en Júlíönu þekkja flestir landsmenn fyrir leik sinn síðustu ár.


























Athugasemdir