„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Þóra sakar sveitarstjórn um að hunsa Seyðfirðinga: „Flestir skrifuðu undir“

Þóra sakar sveitarstjórn um að hunsa Seyðfirðinga: „Flestir skrifuðu undir“
Seyð­is­fjörður – Myndin teng­ist frétt­inni ekki beint. Mynd: Kase Fue

Þóra Bergný Guð­munds­dóttir gagn­rýnir sveit­ar­stjórn Múla­þings harka­lega fyrir fram­göngu þeirra gegn Seyð­firð­ingum í pistli sem hún skrif­aði og segir þá ekki hafa neinn áhuga á norskum eld­is­laxi í firð­inum þeirra.

„Þegar við Seyð­firð­ingar heyrðum fyrst af áformum erlends fyr­ir­tækis og hlaupa­stráka þeirra um að smella litlum 10 þús­und tonnum af norskum eld­is­laxi í fjörð­inn okkar, tók það ekki nema 2-3 daga að virkja íbúa bæj­ar­ins og að safna und­ir­skriftum undir þessa ein­földu kröfu:

„Við und­ir­rituð leggj­umst alfarið gegn öllum áformum um sjó­kvía­eldi í Seyð­is­firði“

Fólk gekk hús úr húsi, bank­aði á dyr og bað um und­ir­skrift allra sem höfðu náð kosn­inga­aldri. Flestir skrif­uðu undir og þykkum bunka lista var skilað til okkar nýja yfir­valds í Múla­þingi,“ en allt kom fyrir ekki því ekki hafi verið hlustað á íbúa Seyð­is­fjarðar.

Hún bendir á að í könnum sem Gallup gerði hafi 75% aðspurða hafnað lax­eld­inu og að Seyð­firð­ingar séu ekki ginn­keyptir eða opnir fyrir skyndi­lausnum enda séu síld­ar­árin í fersku minni fólks en þegar þeim lauk hafi þurft að finna ný bjarg­ráð.

„Það gerð­ist ekki af sjálfu sér. Við vissum þó að sam­fé­lagið bjó yfir auði sem lá í ein­stöku nátt­úru­fari og kaup­stað sem bjó yfir dýr­mætum húsa­arfi og frjóum hug­myndum. Það var bær­inn okkar og varð svo bær­inn allrar þjóð­ar­innar sem og ungs fólks víðs­vegar að úr heim­inum, sem kaus að setj­ast þar að,“ skrif­aði Þóra í pistl­inum sem birt­ist á Vísi.

„Þegar við Seyð­firð­ingar gengum gengjum í eilífð­ar­hjóna­band með ólíkum byggð­ar­lögum; Fljóts­dals­hér­aði, Djúpa­vogi og Borg­ar­firði eystri var okkur lofað að það væri aðeins hag­ræð­ing sem ein­fald­aði stjórn­sýslun en áfram gætum við sungið með okkar nefi og ráðið okkar innri mál­efnum. En þrátt fyrir það eru nú hags­munir ann­ar­staðar í þessu stóra og sam­ein­aða sveit­ar­fé­lagi meira aðkallandi en hags­munir Seyð­firð­inga.

Nú hefur ekki borist einn ein­asti lús­ét­inn laxa­sporður í laxa­slát­ur­húsið á Djúpa­vogi í marga mán­uði, vegna blóð­þorra og ann­ara plága, í marga mán­uði og erlenda verka­fólkið, sem þar er við störf, hefur þurft að dunda sér við að mála og þrífa og gera klárt fyrir 10 þús­und tonnin af laxi, sem búist er við að komi úr sjó­kví­unum í Seyð­is­firði. En ég segi ykkur kæru félagar, það mun aldrei verða,“ skrif­aði Þóra að lokum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Laxeldi

Tekjur Arnarlax lækkuðu um 39 prósent á milli ára – Eigið fé metið á 17 milljarða króna
InnlentLaxeldi

Tekjur Arnarlax lækk­uðu um 39 pró­sent á milli ára – Eigið fé metið á 17 millj­arða króna

Arnarlax hefur nú birt afkomu­upp­lýs­ingar sínar frá 2024 en þar má sjá að afkoman er mun verri en árið 2023. Mikill laxa­dauði vegna lúsa­fárs árið 2023 hafði þar mikil áhrif. BB.is segir frá því að tekjur Arnarlax á síð­asta ári hafi verið 39 pró­sent minni en árið áður eða um 9 millj­örðum lægri. Tekj­urnar 2024 urðu um 15 millj­arðar króna...
Steinunn Ólína orti tækifærisgaldur gegn laxeldi fyrir norðan: „Ratið út villusauðir!“
Menning

Steinunn Ólína orti tæki­fær­is­galdur gegn lax­eldi fyrir norðan: „Ratið út villu­sauðir!“

Steinunn Ólína Þor­steins­dóttir orti tæki­fær­is­galdur gegn áformum um upp­setn­ingu eld­is­stöðva á Norð­ur­landi, og birti á Facebook. Leik­konan og fyrr­ver­andi for­seta­fram­bjóð­and­inn Steinunn Ólína Þor­steins­dóttir birti í morgun magn­þrungna vísu eða tæki­fær­is­galdur eins og hún orðað það. Þar mót­mælir hún eld­is­stöðvum sem setja á upp víða á Norð­ur­landi með til­heyr­andi mengun og raski. Hefst færsla hennar á eft­ir­far­andi hátt: „Nú er horfið...
Sir Jim Ratcliffe framleiðir gin til verndar villta laxinum
Landið

Sir Jim Ratcliffe fram­leiðir gin til verndar villta lax­inum

Sir Jim Ratcliffe og sam­tök hans, Six Rivers munu á næst­unni fram­leiða sér­stakt gin í sam­starfi við sænskan gin­fram­leið­anda. Hluti sölu­hagn­að­ar­ins mun renna til verndar villta Atl­ants­haf­s­lax­inum. Samkvæmt heima­síðu Six Rivers segir um Íslands­deild sam­tak­anna: „Six Rivers Iceland er vernd­ar­á­ætlun sem er ekki rekin í hagn­að­ar­skyni, sem leit­ast við að snúa við hnignun Atl­ants­haf­s­laxa.“ Það er í því ljósi sem...
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins